Meistararnir snöggir að nýta sér liðs­muninn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hakan Calhanoglu skoraði bæði mörk Inter gegn Torino.
Hakan Calhanoglu skoraði bæði mörk Inter gegn Torino. getty/Image Photo Agency

Inter varð ítalskur meistari í tuttugasta sinn eftir 1-2 sigur á AC Milan í grannaslag á mánudagskvöldið.

Engin meistaraþynnka var í Inter í dag þegar liðið fékk Torino í heimsókn. Staðan var reyndar markalaus í hálfleik en á 49. mínútu fékk Adrien Tameze, leikmaður Torino, rautt spjald, fyrir brot á Henrikh Mkhitaryan.

Inter-menn voru ekki lengi að nýta sér liðsmuninn og á 56. mínútu kom Hakan Calhanoglu þeim yfir. Fjórum mínútum síðar skoraði Tyrkinn sitt annað mark úr vítaspyrnu og þar við sat.

Þetta var 28. sigur Inter í 34 deildarleikjum á tímabilinu. Strákarnir hans Simones Inzaghi eru með nítján stiga forskot á Milan á toppi deildarinnar.

Torino, sem hefur ekki unnið í fjórum leikjum í röð, er í 10. sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira