Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Talsverðar breytingar eru á fylgi forsetaframbjóðenda samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem greint verður frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Við rýnum í niðurstöðurnar og sýnum frá undirbúningi kappræðna efstu sex frambjóðenda, sem mætast strax eftir fréttir. Innlent
Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Leeds United er komið í úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir 4-0 sigur á Norwich City í síðari leik liðanna í undanúrslitum umspilsins. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli en í kvöld var aldrei spurning um hvort liðið væri á leið á Wembley. Enski boltinn
Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks Iceland Airwaves hefur kynnt 22 nýja tónlistarmenn sem bætast við hóp þeirra flytjenda sem koma fram á tónlistarhátíðinni. Hátíðin fer fram 7.- 9. nóvember 2024 í miðbæ Reykjavíkur í 25. sinn. Tónlist
Hvað á Ísland að taka á móti mörgu flóttafólki? Forsetaefnin voru spurð út í skoðun þeirra á fjölda flóttafólks sem Ísland geti tekið við. Úr fyrri forsetakappræðum Stöðvar 2. Fréttir
Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, hefur verið tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunin 2024 (European Inventor Award) í flokki stærri fyrirtækja. Hann keppir þar á móti teymum frá Svíþjóð annars vegar og Þýskalandi og Ítalíu hins vegar, en tilkynnt verður um vinningshafa á verðlaunahátíð á Möltu 9. júlí. Viðskipti innlent
Hækkar verðmat Amaroq sem er 38 prósent yfir markaðsverði Bandaríska fjármálafyrirtækið Stifel hefur hækkað markgengi sitt á auðlindafyrirtækinu Amaroq Minerals um tólf prósent frá því í febrúar. Meðal annars er bent að verð á gulli hafi hækkað um 15 prósent og að styttra sé að í að fyrirtækið fari að afla tekna. Í verðmatinu er gert ráð fyrir að það hagnist um tvo milljarða á næsta ári en fyrirtækið afli ekki tekna í ár. Innherji
Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela á hlutabréfum félagsins fyrir skráningu á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hefst klukkan 10 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Samstarf