Innlent

Staða flokka í kosningakerfinu í Víglínunni í dag

Heimir Már Pétursson skrifar
Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis og Dr. Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði við HÍ ræða kosningakerfið í Víglínunni í dag.
Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis og Dr. Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði við HÍ ræða kosningakerfið í Víglínunni í dag. Stöð 2/Einar

Fjöldaflokkakerfi virðist komið til að vera í íslenskum stjórnmálum og útlit fyrir að átta flokkar nái fólki á þing í alþingiskosningunum hinn 25. september. Jöfnun þingsæta milli smærri og stærri flokka í samræmi við fylgi þeirra raskast hins vegar meira eftir því sem flokkarnir eru fleiri. Heimir Már Pétursson fréttamaður fær þá Dr. Ólaf Þ. Harðarson stjórnmálafræði prófessor og Steingrím J. Sigfússon forseta Alþingis til sín í Víglínunni á Stöð 2 í dag.

Dr. Ólafur Þ. Harðarson undrast að ekki eigi að leiðrétta kosningalög þannig að flokkar fái fjölda þingmanna í samræmi við hlutfallslegt fylgi þeirra á landsvísu.Stöð 2/Einar

Dr. Ólafur hefur lengst allra fræðimanna rannsakað kosningar og kosningahegðun íslenskra kjósenda og verið einn helsti útskýrandi kosningaúrslita undanfarna áratugi. Hann hefur sent inn umsögn um frumvarp forseta Alþingis til kosningalaga sem ætlað er að samræma öll lög um kosningar til Alþingis, sveitarstjórna og forseta.

Ólafur gagnrýnir að í frumvarpinu séu ekki gerðar ráðstafanir til að jafna þingsæti milli flokka. En í mörgum undanförnum kosningum hafi það markmið ekki náðst.

Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingis segir að erfitt geti reynst að ná samkomulagi um breytingar á uppbótaþingsætakerfinu svo skömmu fyrir kosningar.Stöð 2/Einar

Frumvarp Steingríms byggir á samkomulagi milli formanna allra flokka og felur í sér umtalsverðar breytingar. En eins og allaf þegar breyta á kosningalögum felur það í sér mikla jafnvægislist þannig að allir flokkar geti við unað og telji ekki á hlut þeirra gengið. Miðað við síðustu fylgiskönnun Gallups fengi Sjálfstæðisflokkurinn einum þingmanni of mikið miðað við hlutfallslegt fylgi flokkanna á landsvísu og hefur þann þingmann af Samfylkingunni.

Flokkar þurfa að fá fimm prósenta fylgi á landsvísu til að ná inn kjördæmakjörnum þingmanni. Flokkur fólksins mældist með 4,7 prósenta fylgi í fyrrnefndri könnun Gallups og fengi einn kjördæmakkjörinn þingmann. Ef flokkurinn fengi hins vegar 0,3 prósentum meira fylgi og búið væri að fjölga uppbótarþingmönnum á kostnað kjördæmakjörinna fengi flokkurinn hins vegar einnig tvo uppbótarþingmenn. Sjálfstæisflokkurinn missti tvo og Framsóknarflokkurinn einn.

Víglínan er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 17:40 og fer fljótlega inn á Stöð 2 + að lokinni útsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×