Innlent

Flótta­menn tóku for­skot á stóra plokkdaginn

Margrét Helga Erlingsdóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa
Stóri plokkdagurinn verður haldinn þann 30. apríl. 
Stóri plokkdagurinn verður haldinn þann 30. apríl.  Vísir

Hátt í fimmtíu flóttamenn og sjálfboðaliðar frá hinum ýmsu löndum fóru í dag um Landspítalasvæðið í Fossvogi til að hreinsa og fegra svæðið. Fólkið fór á vegum Rauða krossins til að hita upp fyrir stóra plokkdaginn.

Karla Isabel Johnson verkefnastjóri hjá Rauða krossinum átti frumkvæðið að plokkinu en hún finnur mjög sterka þörf hjá flóttafólki til að leggja sitt að mörkum til samfélagsins.

„Þau spurðu mig hvar þau gætu boðið sig fram sem sjálfboðaliða. En þegar tungumálaerfiðleikar spila inn í er erfitt að finna vettvang,“ segir Karla.

Karla og Einar virtust ánægð með daginn.Vísir

„Við köllum verkefnið "Þátttaka (e. InterACT)". Það er vettvangur fyrir sjálfboðaliða sem vilja gefa aftur til íslensks samfélags og verða hluti af því. Þannig kemst fólk yfir tungumála- og menningarmúra.“

Einar Bárðarson yfirplokkari segir hugmyndina með deginum þá að hann sé allra. „Og það mega allir skipuleggja eitthvað og það þarf ekki að bíða eftir neinum. Þetta er bara svona frumkvæðisdagur þar sem allir sem láta allt litla ruslið fara í taugarnar á sér geta farið út og gert eitthvað í því.“

Jean Araque frá Venesúela er einn þeirra sem lagði hönd á plóg í dag. „Ég vildi leggja mitt að mörkum til samfélagsins,“ segir Jean.

Hinn úkraínski Medianyk Oleksandr tók í sama streng. „Mig langaði að hjálpa Íslandi, ég er náttúruunnandi, ég elska sumarið og vil hreinsa göturnar, trjágróðurinn og allt hvað eina.“

Fréttin var sýnd í fréttatíma Stöðvar 2 klukkan 18:30 sem er á ný í opinni dagskrá. Tímann í heild má sjá að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×