Innlent

Helmingurinn af bú­slóðinni í ruslið

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Feðgarnir Fernando og Þórólfur.
Feðgarnir Fernando og Þórólfur. Vísir

Grindvíkingar hafa neyðst til að henda gríðarlegum verðmætum undanfarið vegna búferlaflutninga. Að minnsta kosti hálf búslóðin fór í ruslið hjá einum þeirra. Annar segir að enginn vilji hirða dótið og Góði hirðirinn sé sprunginn.

Þórkatla sem annast kaup á húsnæði í Grindavík hefur borist um 730 umsóknir um að félagið kaupi fasteignir í bænum og hefur samþykkt kaup á um 260. Hluti Grindvíkinga er því byrjaður að flytja allt sitt alfarið úr bænum.

Það er eitt og annað heillegt sem finnst í endurvinnslugámum Grindvíkinga þessa dagana enda vel flestir íbúar að fara í miklu minna húsnæði og erfitt að koma dótinu fyrir.

„Góði hirðirinn og þeir í Keflavík líka, þetta er allt orðið yfirfullt af húsgögnum og dóti. Þeir bara geta ekki tekið á móti þessu,“ segir Þórólfur Már Þórólfsson sem tekinn var tali á endurvinnslustöð Grindvíkinga.

Þar var einnig Baldur Pálsson.

Ákveðin hreinsun

8Við erum rétt að byrja. Það fer sennilega rúmlega helmingur af búslóðinni í tunnuna,“ segir Baldur.

Heilmikið af heillegu dóti?

„Já, þegar verið var að henda uppi á Festaplani, þegar gámarnir voru þar, þá stóðu mublur þar á planinu því gámarnir fylltust strax.“

Enginn að hirða það?

„Það mátti enginn koma hingað í bæinn.“

Það hlýtur að vera ansi sárt?

„Þetta er líka ákveðin hreinsun. Maður tekur til aðeins í lífinu,“ segir Baldur. Hann játar því að þetta reyni á taugarnar.

Þarf að farga mjög miklu

„Fólk fer í miklu minna húsnæði. Eins og við, við lendum í þriggja herbergja blokkaríbúð. Erum að fara úr yfir tvö hundruð fermetra húsi.“

Fernando Már Þórólfsson var að hjálpa föður sínum.

„Það er sumt sem maður mundi vilja reyna að losna við en nennir ekki að standa í því að bíða. Svo mega utanaðkomandi ekki koma nema í fylgd. Þá er maður bara að henda þessu, til að losa sig við þetta sem fyrst.“

Róbert Novak var í sömu erindagjörðum. Hann segist þurfa að farga mjög miklu.

„Maður er að leigja án geymslu svo maður þarf eiginlega að henda mest af dótinu sem maður hefur,“ segir Róbert. Ekki hjálpi til að hann hafi líka verið með marga hluti á háaloftinu hjá sér.

Fjallað var um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×