Viðskipti innlent

Spá því að stýri­vextir haldist ó­breyttir

Atli Ísleifsson skrifar
Una Jónsdóttir er hagfræðingur Landsbankans. Greininin gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd líti svo á að verðbólguvæntingar hafi ekki gefið nægjanlega eftir og að enn séu merki um þó nokkra spennu í hagkerfinu.
Una Jónsdóttir er hagfræðingur Landsbankans. Greininin gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd líti svo á að verðbólguvæntingar hafi ekki gefið nægjanlega eftir og að enn séu merki um þó nokkra spennu í hagkerfinu. Vísir/Vilhelm

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda stýrivöxtum óbreyttum í næstu viku. Spáin rímar við spá Íslandsbanka sem gerir einnig ráð fyrir að stýrivextir haldist óbreyttir.

Í greiningu Hagfræðideildar Landsbankans segir að þótt verðbólga hafi hjaðnað verulega í apríl og ýmis merki séu komin fram um að undirliggjandi verðbólga fari hjaðnandi telji deildin horfur á að verðbólga verði föst í kringum sex present fram yfir sumarmánuðina.

„Auk þess teljum við að nefndin líti svo á að verðbólguvæntingar hafi ekki gefið nægjanlega eftir og að enn séu merki um þó nokkra spennu í hagkerfinu.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kemur saman í næstu viku og kynnir vaxtaákvörðun miðvikudaginn 8. maí. Við spáum því að nefndin haldi stýrivöxtum óbreyttum, fimmta fundinn í röð. Nefndin kemur ekki aftur saman fyrr en í ágúst og ef vextir haldast óbreyttir þangað til verður vaxtastigið óbreytt í 9,25% í heilt ár.

Peningastefnunefnd hefur haldið stýrivöxtum óbreyttum í 9,25% á síðustu fjórum fundum. Ákvarðanir um óbreytt vaxtastig hafa ýmist grundvallast á mikilli óvissu um efnahagsþróun eða á þeirri skoðun nefndarinnar að ótímabært sé að lækka vexti, en óþarft að hækka þá. Eftir því sem verðbólga hefur hjaðnað við óbreytt vaxtastig hefur peningalegt aðhald aukist og raunstýrivextir standa nú í 3,25%, sé miðað við liðna verðbólgu.

Á marsfundi nefndarinnar var rætt að vaxtalækkunarferli þyrfti að hefjast á „trúverðugum tímapunkti“ og ekki fyrr en „skýrar vísbendingar“ væru komnar fram um að verðbólgan væri „augljóslega á niðurleið“. Tónninn var harðari en við höfðum búist við og í fundargerð nefndarinnar kom fram að fundarmenn teldu meiri áhættu fólgna í því að lækka vexti of snemma en að halda þeim háum of lengi. Í ljósi alls þessa teljum við að nefndin fari varlega í vaxtalækkanir og viðhaldi stífu aðhaldi þrátt fyrir að verðbólga hafi hjaðnað þó nokkuð frá því hún fór hæst í 10,2% í fyrra,“ segir í greininunni.

Lækkunarferli hefjist í haust

Greining Íslandsbanka er á svipuðum slóðum og segir í sinni greiningu að seigla á vinnu- og íbúðamarkaði ásamt þrálátum háum verðbólguvæntingum muni á fundi peningastefnunefndar væntanlega vega þyngra en hjaðnandi verðbólga og vísbendingar um kólnandi hagkerfi. 

Vaxtalækkunarferli gæti hafist á þriðja ársfjórðungi og komist á fullan skrið á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×