Innlent

Sýnist stefna í kapp­hlaup tveggja en úti­lokar þó ekki vendingar

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor var fenginn til að greina nýjustu könnun Prósents.
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor var fenginn til að greina nýjustu könnun Prósents. Vísir/Arnar Halldórsson

Stjórnmálafræðiprófessor segir að sú mynd sem nú teiknist upp í baráttunni um Bessastaði sé kapphlaup tveggja en þó sé alls ekki útilokað að fleiri geti blandað sér í það, enda ekki langt undan. Halla Tómasdóttir er hástökkvari í nýrri könnun Prósents.

Ný könnun Prósents sem Morgunblaðið birti í morgun sýnir að Halla Hrund Logadóttir hafi mest fylgi, eða 26%. Katrín Jakobsdóttir mælist með 19,2%, Baldur Þórhallsson með 17,9% og Jón Gnarr með 13,8%. Halla Tómasdóttir mælist með 12,5% og Arnar Þór Jónsson eykur við sig og mælist með 5,7%. Eiríkur Bergmann var í hádegisfréttum Bylgjunnar beðinn um að rýna í helstu tíðindi könnunarinnar.

„Kannanir Prósents hafa verið ögn frábrugðnar könnunum annarra fyrirtækja en það er þó allavega hægt að bera saman kannanir Prósents innbyrðis og þá sjáum við kannski þróun í svipaða átt og við höfum séð í öðrum könnunum. Þetta er að færast yfir í að verða kapphlaup á milli Höllu Hrundar og Katrínar Jakobsdóttur þrátt fyrir að aðrir séu nú kannski ekkert mjög langt undan og ekkert sé útilokað að aðrir geti ekki blandað sér í þessa baráttu. Baldur hefur alltaf verið mældur svolítið hærra í könnunum Prósents heldur en öðrum könnunum en hann dalar í þessari könnun þannig að þetta er þannig til samræmis.“

Hástökkvari í könnun Prósents er Halla Tómasdóttir sem fer úr rúmum fimm prósentum og upp í 12,5%.

En í ljósi þess að Halla Tómasdóttir er þekkt stærð og hefur áður háð þessa baráttu, hvað skýrir þessa aukningu að þínu viti?

„Nú hafa kjósendur fengið tækifæri til þess að máta frambjóðendurna í kappræðum og í fjölmiðlaviðtölum og svo framvegis og þrátt fyrir að hún hafi verið í baráttu fyrir átta árum þá hefur nú fennt yfir það frá þeim tíma, allavega allnokkuð en þetta er held ég bara nokkuð góð frammistaða hennar í þessum kappræðum sem veldur þessari breytingu og þá hugsanlega líka að einhverjir aðrir frambjóðendur hafi ekki staðið undir þeim væntingum sem þeir höfðu gert til þeirra fram að því. Þannig að þetta er svona sambland þarna á milli myndi ég halda. En hún er þrátt fyrir það svo langt undan og frá þeim sem eru í toppsætinu að það hann er nú risastór hjalli fyrir hana til að komast þangað.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×