Erlent

Ein blóðugasta kosninga­bar­átta í manna minnum

Kjartan Kjartansson skrifar
Þó að ofbeldisverkum sé fyrst og fremst beint að frambjóðendum á sveitarstjórnar- og ríkisstiginu í Mexíkó mátti Claudia Sheinbaum, forsetaframbjóðandi Morena-flokksins, þola að vera stöðvuð af grímuklæddum mönnum í Chiapas á dögunum.
Þó að ofbeldisverkum sé fyrst og fremst beint að frambjóðendum á sveitarstjórnar- og ríkisstiginu í Mexíkó mátti Claudia Sheinbaum, forsetaframbjóðandi Morena-flokksins, þola að vera stöðvuð af grímuklæddum mönnum í Chiapas á dögunum. AP/Fernando Llano

Á þriðja tug frambjóðenda til kosninga í Mexíkó í næsta mánuði hafa verið myrtir í einni blóðugustu kosningabaráttu í manna minnum. Hundruð annarra hafa helst úr lestinni vegna ofríkis ofbeldisfulltra glæpagengja sem halda samfélögum í heljargreipum.

Kosið verður til forseta, þings, ríkisþinga og fjölda sveitarstjórna í Mexíkó 2. júní. Glæpagengi hafa sérstakan áhuga á að tryggja vilhalla embættismenn á sveitarstjórnarstiginu, þar á meðal bæjarstjóra, lögreglustjóra og þá sem halda utan um opinberar framkvæmdir. Gengin maka ekki aðeins krókinn á fíkniefnum og mansali heldur einnig opinberum samningum sem fyrirtæki sem þau stýra ná við yfirvöld.

Frambjóðendur til ríkisstjóra einstakra ríkja og þings eru þó einnig í hættu, að sögn Washington Post. Glæpagengin séu sums staðar svo valdamikil að þau geti stýrt því hver kemst inn í bæi.

Frambjóðendur allra helstu flokka landsins hafa verið drepnir í aðdraganda kosninganna í ár. Þrír frambjóðendur til borgarstjóra í Maravatío, 80.000 manna bæjar í Michoacán-ríki, hafa verið ráðnir af dögum. Tveir þeirra komu úr flokki Andrés Manuel López Obrador, forseta, og einn úr stjórnarandstöðuflokknum PAN.

Forsetaframbjóðandi stöðvaður af grímuklæddum mönnum

Obrador hefur reynt að gera lítið úr ofbeldinu og sakað fjölmiðla um að gera úlfalda úr mýflugu. Claudia Sheinbaum, forsetaefni flokks hans, var engu að síður stöðvuð af grímuklæddum mönnum í Chiapas-ríki þar sem Sinaloa-gengið ræður ríkjum í síðasta mánuði. Sögðu þeir henni að „muna eftir fátæka fólkinu“.

Auk þeirra sem hafa verið myrtir eða hætt við framboð sín hafa um fjögur hundruð frambjóðendur beðið alríkisyfirvöld um öryggisgæslu.

Sheinbaum, fyrrverandi borgarstjóri Mexíkóborgar, er með þægilegt forskot í skoðanakönnunum fyrir forsetakosningarnar. Hún hefur reynt að sveipa sig dýrð Obrador fráfarandi forseta sem nýtur mun meiri vinsælda en hún. Helsti keppinautur Sheinbaum, Xóchitl Gálvez nýtur stuðnings PAN og PRI-flokksins. Sá síðarnefndi fór með völdin í Mexíkó í 71 ár samfleytt frá 1929 til 2000.


Tengdar fréttir

Næsti for­seti Mexí­kós að öllum líkindum kona

Allt útlit er fyrir að næsti forseti Mexíkós verði í fyrsta skipti kona eftir að tveir stærstu flokkar landsins tilnefndu konu sem frambjóðanda sinn. Misrétti og karlremba er þó enn almenn í mexíkósku samfélagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×