Innlent

Veikindi Blessing ekki nógu mikil til að fresta brott­vísun

Lovísa Arnardóttir skrifar
Lögmaðurinn Helgi Silva hefur gætt hagsmuna kvennanna.
Lögmaðurinn Helgi Silva hefur gætt hagsmuna kvennanna. Vísir/Ívar Fannar

Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður segir það mikil vonbrigði að Útlendingastofnun ætli ekki að verða við beiðni hans um að fresta brottvísun Blessing Uzoma Newton af heilsufarsástæðum. Hann á von á því að Blessing og konurnar hinar tvær sem eru í haldi verði fluttar úr landi í kvöld.

„Útlendingastofnun vill meina að flutningur sé ekki ómögulegur og það sé ekki nauðsynlegt að fresta framkvæmd af heilsufarsástæðum,“ segir Helgi og að stofnunin hafi neitað beiðni hans um frestun brottvísunar seinni partinn í dag. 

Blessing er ein þriggja sem setið hafa í varðhaldi frá því á föstudag og til stendur að flytja til Nígeríu. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn rennur út í kvöld. Konurnar þrjár hafa allar lýst því að þær séu þolendur mansals. Konurnar fengu allar endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd fyrir um ári síðan en vildu ekki fara af landi brott.

Fram kom í fréttum um helgina að Helgi hefði sent beiðni um frestun ásamt læknisvottorði. Í því kemur fram að Blessing sé með æxli í kviðarholi, sem hafi stækkað töluvert að undanförnu. Lífsnauðsynlegt sé að Blessing hafi greiðan aðgang að bráðaþjónustu sérhæfðra kvennadeilda á sjúkrahúsi. Hún þurfi þétt eftirlit, blóðprufur og blóðgjöf eða járngjafir í æð þegar þess þarf með.

„Ég var búin að óska eftir frestun framkvæmdar út frá læknisvottorði. Það var frekar sterkt til orða tekið í vottorðinu og talað um að það væri læknisfræðilega óforsvaranlegt og að lífi sjúklings væri teflt í hættu. Útlendingastofnun svaraði þessu núna á þá leið að þau féllust ekki á þetta mat.“

„Þessi niðurstaða er mikil vonbrigði og kom að einhverju leyti á óvart, miðað við það sem kom fram í læknisvottorðinu,“ segir Helgi og að hann eigi von á því að Blessing verði þá flutt úr landi í kvöld. Líklega með leiguflugi.

Á endastöð

Að mati Helga er þetta því líklega endastöð í máli Blessing, í það minnsta að því er kemur að tilraun til að fresta framkvæmd.

„Við vorum að tala við þær. Þær eru auðvitað miður sín. Við erum að skoða hvað er hægt að gera næst. Þær kæruleiðir sem mér dettur í hug hafa ekki þýðingu ef þær eru ekki á landinu. Það er hægt að sækja ýmsa vinkla á málinu áfram í fjarveru þeirra.“


Tengdar fréttir

„Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“

Lögmaður kvenna sem vísa á úr landi eftir helgi segir skjóta skökku við að íslensk stjórnvöld ætlist til þess að fórnarlömb mansals stigi fram og segi sögu sína, þegar viðbrögð ríkisins séu þau að handtaka fórnarlömbin og senda þau úr landi. Konurnar segjast allar hafa verið fórnarlömb mansals áður en þær komu hingað til lands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×