Innlent

Settur for­stjóri skipaður for­stjóri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Óskar Jósefsson er nýr forstjóri FSRE.
Óskar Jósefsson er nýr forstjóri FSRE.

Óskar Jósefsson hefur verið skipaður nýr forstjóri Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseignir, FSRE. Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, skipar Óskar en tuttugu manns sóttu um starfið.

Í tilkynningu á vef ráðuneytisins segir að Óskar hafi víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Hann var meðal annars framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála á árunum 2016-2021, tímabundið forstjóri Allrahanda og settur forstjóri FSRE frá því í maí 2023.

 Þá hefur hann gengt stöðu forstjóra Landssíma Íslands hf., og Ístaks hf. auk þess að vera framkvæmdastjóri upplýsinga- og tæknisviðs Kaupþings banka. Óskar stýrði einnig ráðgjafastarfsemi PwC um nokkura ára skeið auk þess að starfa sjálfstætt sem ráðgjafi.

Óskar er verkfræðingur með M.Sc. gráðu í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá Danmörku. Hann var valinn úr hópi 20 umsækjenda. Skipan í embættið hefur tekið gildi.

FSRE hefur umsjón með mótun og rekstri aðstöðu sem nýtist öllum íbúum landsins með einum eða öðrum hætti. Stofnunin annast fasteignir og jarðir ríkisins, öflum húsnæðis og stýrir framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar. Markmið FSRE er að þjónusta ríkisins sé veitt við bestu aðstæður.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×