Innlent

Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs

Jón Þór Stefánsson skrifar
Vatnsendaskóli í Kópavogi.
Vatnsendaskóli í Kópavogi. Vísir/Vilhelm

Foreldrar barna í Vatnsendaskóla í Kópavogi hafa verið beðnir um að senda flugnanet með börnunum sínum í skólann. Ástæðan er mikill flugnafaraldur sem nú geysar í Vatnsendahverfinu.

„Það er talsvert um flugu þessa dagana og það má reikna með að það verði þannig eitthvað áfram,“ segir í tölvupósti sem foreldrar fengu frá skólanum í morgun.

Þessi mynd af flugu á húsvegg var birt í íbúahópi á Vatnsenda í fyrradag. Snæbjörn Konráðsson

„Mörg börn kvarta undan flugunni og vilja ekki út úr húsi, en við hvetjum þau til að vera úti í þessu fallega vorveðri.“

Samkvæmt upplýsingum frá skólanum er þetta ekki í fyrsta skipti sem flugur gera vart við sig í kringum skólann, en undanfarna daga hefur verið óvenju mikið um þær. Þó virðist lítið um flugurnar daginn í dag.

Skólinn er staðsettur við Elliðavatn sem eðli málsins samkvæmt orsakar veru flugnanna. Skólinn á sjálfur einhver flugnanet, en ekki fyrir öll börn, og því voru foreldrar hvattir til að senda börnin sín með net. Líkt og kemur fram í póstinum er það gert til að hvetja börnin til þess að vera úti.

Í hverfishópum fyrir Vatnsendahverfi á Facebook hefur nokkuð verið fjallað um þennan flugufaraldur. Myndir og myndbönd sýna sum þar sem allt er krökkt af flugunni sem hefur verið óboðinn gestur í afmælum og íbúar í hverfinu til áratuga man ekki eftir öðru eins.


Áttu myndir eða myndbönd af flugunum í Vatnsendahverfi? Sendu okkur á ritstjorn@visir.is.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×