Viðskipti innlent

Endur­kjörinn for­maður og fimm koma ný inn í stjórn

Atli Ísleifsson skrifar
Eyjólfur Árni Rafnsson hefur verið formaður SA frá árinu 2017.
Eyjólfur Árni Rafnsson hefur verið formaður SA frá árinu 2017. Vísir/Vilhelm

Eyjólfur Árni Rafnsson var í dag endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins með 96,45 prósent greiddra atkvæða, í rafrænni kosningu sem fór fram í aðdraganda aðalfundar sem fram fór í dag.

Á vef SA segir að ný inn í stjórn samtakanna komi þau Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Eldingar hvalaskoðunar, Sigurjón Rúnar Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri KS, Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Viator ehf. og Árni Stefánsson, framkvæmdastjóri Húsasmiðjunnar.

Þau sem fór úr stjórn eru Arna Arnardóttir, Bjarnheiður Hallsdóttir, Egill Jóhannsson, Gunnar Egill Sigurðsson og Magnús Hilmar Helgason.

Ný stjórn SA er þá þannig skipuð:

  • Árni Sigurjónsson
  • Árni Stefánsson
  • Benedikt Gíslason
  • Bogi Nils Bogason
  • Edda Rut Björnsdóttir
  • Guðmundur Kristjánsson
  • Guðrún Aðalsteinsdóttir
  • Guðrún Jóhannesdóttir
  • Heiðrún Lind Marteinsdóttir
  • Hjörleifur Stefánsson
  • Jón Ólafur Halldórsson
  • Jónína Guðmundsdóttir
  • Lilja Björk Einarsdóttir
  • Ólafur Marteinsson
  • Páll Erland
  • Pétur Óskarsson
  • Rannveig Grétarsdóttir
  • Rannveig Rist
  • Sigurjón Rúnar Rafnsson
  • Þorsteinn Víglundsson

Eyjólfur Árni, formaður SA, sagði í ávarpi til fundargesta að þegar vextir lækki skapist betri skilyrði fyrir fyrirtækin til að ráðast í fjárfestingar, endurnýja tækjabúnað og efla vöruþróun, nýsköpun og markaðssókn. „Það er eina leiðin til að tryggja betri lífskjör hér á landi og til að halda í við nágrannaþjóðir okkar. Augljóst er að lægri vextir hafa jákvæð áhrif á heimilisbókhald fjölskyldna og að þessu leyti er fólkið í landinu og fyrirtækin í sama báti. Þessir sameiginlegu hagsmunir skiptu öllu máli við gerð Stöðugleikasamningsins,“ sagði Eyjólfur Árni.

Hann hefur gegnt embætti formanns SA frá árinu 2017.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×