Erlent

Þróun ES-30 flug­vélarinnar flutt frá Sví­þjóð til Kali­forníu

Kristján Már Unnarsson skrifar
ES-30 flugvélin teiknuð í litum Icelandair, sem skrifað hefur undir viljayfirlýsingu um kaup á fimm eintökum. Icelandair er aðili að fagráðsvettvangi um þróun flugvélarinnar.
ES-30 flugvélin teiknuð í litum Icelandair, sem skrifað hefur undir viljayfirlýsingu um kaup á fimm eintökum. Icelandair er aðili að fagráðsvettvangi um þróun flugvélarinnar. Heart Aerospace

Sænska flugvélafyrirtækið Heart Aerospace tilkynnti í dag að það hefði ákveðið að flytja hluta af þróunarstarfi vegna þrjátíu sæta tvinn-rafmagnsflugvélar frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Jafnframt hefur félagið hætt við verksmiðjubyggingu í Halmstad en í staðinn ákveðið að reisa rannsóknar- og þróunarmiðstöð í Los Angeles í Kaliforníu.

Í tilkynningu félagsins segir að þessi nýja stefnumörkun komi þegar fyrirtækið búi sig núna undir að hefja prófanir á vélbúnaði ES-30 flugvélarinnar. Rannsóknar- og þróunarmiðstöðin í Los Angeles muni einbeita sér að þróun á tvinnhreyflakerfi hennar og annarri lykiltækni. Þá muni fyrirtækið flytja prufueintak, sem búið er að gera af vélinni í fullri stærð, frá Svíþjóð til Bandaríkjanna.

Til að leiða miðstöðina hefur Heart Aerospace ráðið Benjamin Stabler, sem meðal annars hefur stýrt vélbúnaðar- og hugbúnaðarteymi hjá SpaceX. Hann hafði áður byggt upp fyrirtækið Parallel Systems, sem þróaði sjálfakandi rafdrifna vöruflutningavagna. Segist Heart Aerospace fá mikla reynslu með komu hans.

Flugdrægi ES-30 þykir sniðið að innanlandsleiðum á Norðurlöndunum. Stefnt er að því að hún verði tilbúin í farþegaflug árið 2028.Teikning/Heart Aerospace

Anders Forslund, stofnandi og forstjóri Heart Aerospace, segir Los Angeles augljósan kost fyrir rannsóknar- og þróunarmiðstöð fyrirtækisins í ljósi ríkar sögu borgarinnar og Kaliforníu í nýsköpun. Höfuðstöðvar Heart Aerospace verði áfram í Gautaborg. Haft er eftir Forslund að stefnt sé að fyrsta raffluginu á næsta ári og að sótt verði um tegundarvottun árið 2028.

ES-30 flugvélin er þróuð fyrir styttri flugleiðir. Gert er ráð fyrir að flugdrægi hennar á rafmagni verði 200 kílómetrar en tvinn-eiginleikar auki drægið upp í 400 kílómetra.

Heart Aerospace hefur þegar fengið 250 pantanir í flugvélina, með valréttum og kauprétti fyrir aðrar 120 flugvélar. Þá hefur félagið hefur einnig viljayfirlýsingar um 191 flugvél til viðbótar.

Icelandair er í hópi flugfélaga sem skrifað hafa undir viljayfirlýsingu um kaup á vélinni og miðar við að fá fimm slíkar í innanlandsflugið en félagið er aðili að fagráðsvettvangi um þróun hennar. Ráðamenn Icelandair hafa sagt að þeir telji raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar, eins og fram kom í þessari frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Magnað að sjá bara vatnsgufu úr hreyflinum en enga mengun

Stórri farþegaflugvél, sömu gerðar og Icelandair notar í innanlandsfluginu, hefur í fyrsta sinn í sögunni verið flogið á vetni. Fulltrúi Icelandair var viðstaddur þetta tímamótaflug vestanhafs en þetta er meðal þeirra lausna sem félagið skoðar til orkuskipta í fluginu á Íslandi.

Viljayfirlýsing Icelandair gerir ráð fyrir fimm rafknúnum flugvélum

Icelandair gerir ráð fyrir að fá fimm rafmagnsflugvélar í innanlandsflugið í viljayfirlýsingu, sem félagið skrifaði undir í síðustu viku. Ráðamenn Icelandair telja raunhæft að orkuskiptin í farþegafluginu hefjist fyrir lok þessa áratugar.

For­setinn fyrstur far­þega í raf­magns­flug­vél

Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 

Flugvél flýgur í fyrsta sinn í sögunni á íslenskri raforku

Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga hóf sig til flugs í fyrsta sinn á Íslandi nú síðdegis frá flugvellinum á Hellu á Rangárvöllum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem flugvél flaug á íslenskri orku en ekki innfluttu jarðefnaeldsneyti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×