Glódís þekkir tvær af helstu stjörnum Þjóðverja mjög vel.
Íslenski landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður þýska liðsins Bayern Munchen, mun í kvöld mæta nokkrum af liðsfélögum sínum þegar að Þýskaland og Ísland mætast í undankeppni EM 2025 í fótbolta í Aachen í Þýskalandi. Tvær af þeim, sóknarleikmennirnir Lea Schuller og Klara Buhl, búa yfir gæðum sem koma þeim á lista yfir bestu leikmenn í heimi að mati Glódísar.