Jón Pétur Zimsen í þriðja sæti Sjálfstæðismanna í Reykjavík suður Jón Pétur Zimsen mun skipa þriðja sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í alþingiskosningunum 30. nóvember næstkomandi. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra er í fyrsta sæti og Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður í öðru. Innlent 27. október 2024 13:48
Ekki beittur þrýstingi um að gefa eftir sæti Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík verða kynntir eftir hádegi í dag og tíðinda er einnig að vænta frá Sósíalistum og Miðflokki um skipun lista. Flestir framboðslistar þeirra flokka sem hyggjast bjóða fram til Alþingis hafa verið kynntir að hluta eða í heild, en enn á eftir að birta endanlega lista hjá nokkrum flokkum. Innlent 27. október 2024 13:40
Óheppilegt en ekki óvenjulegt Stjórnmálafræðingur segir það óheppilegt fyrir formann Samfylkingarinnar að einkaskilaboð hennar um Dag B. Eggertsson hafi verið birt opinberlega. Hins vegar sé ekki óvenjulegt að hvatt sé til þess að umdeildir frambjóðendur séu strikaðir út. Innlent 27. október 2024 13:17
Úthugsuð strategía eða alvarlegt reynsluleysi hjá Kristrúnu Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði segir að nýjasta útspil Kristrúnar Frostadóttur veki mikla athygli, en hann segir annað hvort um úthugsaða strategíu að ræða eða alvarlegt reynsluleysi. Í gær sagði Kristrún Dag B. Eggertsson vera aukaleikara í stóra verkefni Samfylkingarinnar, og hvatti mögulegan kjósanda sem er ósáttur við Dag að strika nafn hans út í kjörklefanum. Innlent 27. október 2024 12:27
Kílómetragjald: Gjöf fyrir marga, refsiskattur fyrir aðra Það var með ólíkindum að hlusta á umræður á Alþingi þann 24. október síðastliðinn um áform álagningar nýs kílómetragjalds og þau fjarstæðukenndu rök sem fyrrverandi innviðaráðherra og núverandi fjármálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson heldur fram í þeim efnum. Skoðun 27. október 2024 12:01
Bjarni Jónsson til liðs við Græningja Bjarni Jónsson alþingismaður hefur gengið til liðs við nýja stjórnmálahreyfingu Græningja. Innlent 27. október 2024 11:58
Róttækar og tafarlausar umbætur Guðrún Hafsteinsdóttir ritaði pistil sem birtur var á vefsíðu Viðskiptablaðsins 12. október síðastliðinn sem ber yfirskriftina Íslenskt atvinnulíf og Schengen-samstarfið. Í niðurlagi greinarinnar segir að Ísland hafi gríðarlega hagsmuni af áframhaldandi þátttöku í Schengen samstarfinu enda sé það veigamikill þáttur fyrir íslenskt atvinnulíf en einnig samfélagslegt öryggi. Skoðun 27. október 2024 11:31
Er verið að blekkja fólk? Það eru blikur á lofti í íslenskum stjórnmálum, allt getur farið á versta veg þrátt fyrir stórkostlegt afhroð sem Sjálfstæðisflokkurinn fær í skoðanakönnunum. Það eru nefnilega til flokkar sem eru tilbúnir til að halda uppi merkjum hans, Viðreisn og Miðflokkurinn sjá um nýfrjálshyggjuna og tekur við öfga hægrinu og Miðflokkurinn og Flokkur fólksins sjá um rasistana sem ber nú meira á en oft áður en hafa alltaf verið til staðar í Sjálfstæðisflokknum og reyndar víðar, til dæmis í Framsóknarflokknum. Skoðun 27. október 2024 10:32
Sigmundur og Þorgrímur leiða í Norðausturkjördæmi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður og formaður Miðflokksins og Þorgrímur Sigmundsson, verktaki skipa efstu sæti á lista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Næst á lista eru Ágústa Ágústsdóttir, verktaki og ferðaþjónustubóndi og Inga Dís Sigurðardóttir, kennari og meistaranemi í náms og starfsráðgjöf. Innlent 27. október 2024 09:21
Um blöndun menningarheima Við sem Íslendingar höfum þá sérstöðu að okkar menning, tungumál og hefðir hafa verið varðveittar mjög vel, enda erum við einangruð þjóð á lítilli eyju í miðju Atlantshafi. En það er ekki þar með sagt að ekkert hafi breyst á undanförnum áratugum eða árhundruðum í íslenskri menningu, enda hefur bara ótrúlega mikið breyst frá því að ég var barn á sveitabæ í Austur-Húnavatnssýslu á 10. áratugnum. Skoðun 27. október 2024 08:02
Erum við í ofbeldissambandi? Við verðum að horfast í augu við þá sársaukafullu hugmynd að við, Íslendingar, gætum verið föst í ofbeldissambandi. Ekki við einstaklinga í nánasta umhverfi okkar, heldur við sjálft kerfið sem átti að vernda okkur – stjórnvöld, bankakerfið og alla þá félagslegu strúktúra sem við treystum á. Skoðun 27. október 2024 06:31
Botnar ekkert í hegðun Kristrúnar „Ég er gáttuð á þessari hegðun Kristrúnar, eins ágæt og hún nú er gamla handboltavinkona mín. Mér finnst þetta afhjúpa ótrúlega takmarkaðan skilning á vægi Dags til lengri tíma við mótun borgarinnar, dýpt hans þekkingar á stjórnmálunum og málefnunum og getu til að halda utan um flókið samstarf.“ Innlent 26. október 2024 21:51
Ingibjörg kemur í stað Bergþórs Ingibjörg Davíðsdóttir, stjórnarformaður Íslenska fæðuklasans og sendiherra í leyfi, mun leiða lista Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi og kemur þar með í stað Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, sem skipaði fyrsta sæti í kjördæminu áður. Bergþór hefur þegar tilkynnt að hann ætli ser að bjóða sig fram í Suðvesturkjördæmi. Innlent 26. október 2024 21:02
Ræddi ekki við aðra flokka og segir skilið við Sjálfstæðisflokk „Ég hef verið flokksbundinn Sjálfstæðismaður frá því að ég var sextán ára og síðustu ár hefur hjartað mitt ekki alveg slegið í takt sem almennur flokksmaður. Á fimmtudaginn var haft samband við mig og mér var boðið þessa stöðu. Ég hef aðstoðað Ásmund Einar Daðason og Lilju Dögg í góðum málum og eftir snarpa ígrundun gaf ég kost á mér gagnvart þessari bón og mér var boðið þetta formlega í gærkvöldi.“ Innlent 26. október 2024 20:34
Segir Bjarna misskilja hrapallega hlutverk starfsstjórnar „Eftir að Jón Gunnarsson gerði sig líklegan til að feta slóð Sigríðar Andersen í oddvitasæti hjá Miðflokknum greip forysta flokksins til þess örþrifaráðs að kasta öllum stjórnskipulegum venjum og leikreglum fyrir róða í þágu flokkshagsmuna. Búið var til nýtt embætti eins konar kommissars yfir matvælaráðuneytinu. Bak við luktar dyr var svo gerður díll við Jón Gunnarsson um að hann fengi að valsa þar og gramsa eins og honum sýndist - gegn því að yfirgefa ekki flokkinn.“ Innlent 26. október 2024 19:38
Hvatti kjósanda til að strika yfir nafn Dags „Þetta eru skilaboð frá mér til stuðningsmanns, einkaskilaboð. Ég er oft í samskiptum við fólk sem er hrifið af Samfylkingunni og hefur alls konar skoðanir. Þarna var um að ræða einstakling sem hafði skoðanir á Degi B. Eggertssyni.“ Innlent 26. október 2024 18:39
Birgir Ármannsson gefur ekki kost á sér Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis, gefur ekki kost á sér á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi alþingiskosningar 30. nóvember. Hann hefur ákveðið að draga sig út úr framlínu stjórnmálanna. Vika er síðan Birgir tjáði Vísi að hann stefndi á áframhaldandi þingsetu. Innlent 26. október 2024 18:07
Listi Framsóknar í Suðurkjördæmi samþykktur Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri Orkustofnunar skipar fyrsta sæti lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Í öðru sæti er Sigurður Ingi Jóhannsson formaður flokksins og starfandi fjármála- og innviðaráðherra. Jóhann Friðrik Friðriksson alþingismaður er í þriðja sæti. Innlent 26. október 2024 16:00
Lilja Alfreðsdóttir og Einar Bárðarson leiða í Reykjavík suður Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Einar Þór Bárðarson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi vermir annað sætið og í þriðja sæti er Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi og formaður ungs framsóknarfólks í Reykjavík. Innlent 26. október 2024 15:37
Ásmundur Einar leiðir í Reykjavík norður Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, leiðir lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember næstkomandi. Í öðru sæti er Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður og í þriðja er Brynja M Dan Gunnarsdóttir fyrirtækjaeigandi. Innlent 26. október 2024 15:25
Staðfesta lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir leiðir lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi. Í öðru sæti er Sigmar Guðmundsson alþingismaður. Í þriðja sæti er Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri og fyrrverandi bæjarstjóri. Innlent 26. október 2024 15:09
Ingvar Þóroddsson leiðir Viðreisn í Norðausturkjördæmi Ingvar Þóroddsson, framhaldsskólakennari á Akureyri leiðir lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi. Í öðru sæti er Heiða Ingimarsdóttir, verkefnastjóri upplýsinga- og kynningamála á Egilsstöðum. Þriðja sætið skipar Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, kennari og þjálfari á Akureyri og í fjórða sæti er Gabríel Ingimarsson, rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar og forseti Uppreisnar. Innlent 26. október 2024 15:01
Einar Bárðarson í öðru sæti Framsóknar í Reykjavík suður Einar Bárðarson, landsfrægur lagahöfundur og umboðsmaður, sem nú er formaður stjórnar Tónlistarmiðstöðvar Íslands, verður í öðru sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í alþingiskosningunum 30. nóvember næstkomandi. Innlent 26. október 2024 14:44
Samfylkingin hafi fjarlægst gildin Rósa Björk Brynjólfsdóttir segir Samfylkinguna hafa fjarlægst þau gildi sem hún brennur fyrir en hún er aftur gengin til liðs við Vinstri græn. Hún segist enn brenna fyrir þau málefni sem kjarnist í stefnu flokksins og hún sé tilbúin að snúa til baka nú þegar stjórnarsamstarfinu hafi verið slitið. Innlent 26. október 2024 13:39
Séra Sindri Geir leiðir VG í Norðausturkjördæmi Sindri Geir Óskarsson sóknarprestur á Akureyri leiðir framboðslista Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember næstkomandi. Jóna Björg Hlöðversdóttir, bóndi í Þingeyjarsveit vermir annað sætið. Innlent 26. október 2024 13:13
Alma leiðir Samfylkinguna í Kraganum Alma Möller, landlæknir, mun leiða lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi er í öðru sæti og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður, í því þriðja. Innlent 26. október 2024 12:47
Hvað gerist svo? Nú get ég ekki orða bundist frekar en svo oft áður. Undir tímabundinni „starfsstjórn“ Bjarna Ben þar sem brýnt er að klára mikilvæg mál fyrir kosningar, á að skjóta inn beiðni fyrir hvalveiðum! Skoðun 26. október 2024 12:31
Listinn í Reykjavík norður: „Við ætlum að hrista upp í kerfinu“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, leiðir lista flokksins í Reykjavík norður, Dagur B. Eggertsson, læknir og fyrrverandi borgarstjóri, er í öðru sæti og Þórður Snær Júlíusson, blaðamaður, í því þriðja. Innlent 26. október 2024 12:23
Willum leiðir Framsókn í Suðvesturkjördæmi Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, mun leiða lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Kjördæmissamband Framsóknar í kjördæminu hefur samþykkt framboðslistann. Innlent 26. október 2024 12:01
Listi Samfylkingarinnar í Reykjavík suður staðfestur Framboðslistar Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember 2024 voru samþykktir á allsherjarfundi Samfylkingarfélaganna í Reykjavík í félagsheimili Þróttar í Laugardal í dag. Jóhann Páll leiðir í Reykjavíkurkjördæmi suður og Kristrún Frostadóttir í Reykjavíkurkjördæmi norður. Innlent 26. október 2024 11:47