Innlent

Lands­menn á­nægðir með frammi­stöðu Höllu Tómas­dóttur í kapp­ræðunum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sindri Sindrason les kvöldfréttir á Stöð 2 í kvöld.
Sindri Sindrason les kvöldfréttir á Stöð 2 í kvöld. Vilhelm

Utankjörfundarkosning til embættis forseta Íslands er hafin. Búist er við að allt að 55 þúsund manns muni kjósa utan kjörfundar. Í kvöldfréttunum á Stöð 2 heyrum við hljóðið í landsmönnum eftir forsetakappræður gærkvöldsins.

Hulunni hefur verið svipt af þremur tillögum arkítektastofa að uppbyggingu á bensínstöðvareitnum við Ægissíðu. Forsvarsmenn Festi vilja vinna með íbúum og kalla sérstaklega eftir þeirra sýn og skoðunum.

Í fréttatímanum kynnum við okkur nýtt verkefni sem lögreglan á Suðurlandi stendur fyrir í samstarfi við sveitarfélögin fjórtán og nokkrar stofnanir í landshlutanum. Tilgangurinn er að móta aðgerðaáætlun til að vinna gegn ofbeldi.

Og við kíkjum í afmælisveislu hjá Kalda bar í miðborginni, sem fagnar 10 ára afmæli í kvöld.

Þetta og margt fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 

Klippa: Kvöldfréttir 4. maí 2024


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×