Enski boltinn

Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Black­burn uppi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Wayne Rooney tók við Birmingham í 6. sæti ensku B-deildarinnar. Síðan þá hefur liðið aðeins náð í 32 stig úr 35 leikjum.
Wayne Rooney tók við Birmingham í 6. sæti ensku B-deildarinnar. Síðan þá hefur liðið aðeins náð í 32 stig úr 35 leikjum. @secondtierpod

Nýloknu tímabili Birmingham City í ensku B-deild karla í knattspyrnu var vægast sagt áhugavert. Á endanum féll félagið eftir tímabil sem átti upphaflega að vera upphaf nýrra tíma.

Snemma á tímabilinu var Birmingham mikill fréttamatur enda mættu bandarískir fjárfestar með fyrrum NFL-stjörnuna Tom Brady í broddi fylkingar sem nýir eigendur félagsins.

„Leiðin að árangri byrjar á því að leggja mikla vinnu á sig þegar heimurinn er ekki að horfa. Ég veit það líka að lið er ekkert án þess að hafa borgina sína að baki sér. Mikilvægast er að mér líkar það ágætlega að vera í litla liðinu. Vegurinn hefur verið langur fyrir Birmingham en stuðningsmennirnir hafa aldrei misst trúna. Sjáumst fljótlega á St Andrew vellinum. Núna er tími til að byrja vinnuna,“ sagði Brady eftir að kaupin voru opinberuð.

Það er þó ekki alltaf jákvætt að fá inn bandaríska fjárfesta. Þeirra fyrstu mistök voru án efa þau að láta John Eustace fara þann 9. október svo Wayne Rooney gæti tekið við tveimur dögum síðar. Þegar þau þjálfaraskipti áttu sér stað var Birmingham í 6. sæti deildarinnar en tímabilið þó tiltölulega nýhafið.

Það gekk engan veginn sem skildi með Rooney sem þjálfara en hann var fenginn inn til að breyta hugarfari félagsins og spila árangursríkan fótbolta. 

Eitthvað sem hann hafði ekki gert sem þjálfari Derby County eða D.C. United í Bandaríkjunum. Hann var því á endanum látinn fara í ársbyrjun 2024. 

Eftir að Steve Spooner hafði stýrt liðinu tímabundið var leitað til Tony Mowbray. Sá er öllum hnútum kunnugur í ensku B-deildinni enda þjálfað lið eins og West Bromwich Albion, Middlesbrough, Coventry City, Blackburn Rovers og Sunderland á ferli sínum.

Mowbray þurfti hins vegar að stíga til hliðar vegna veikinda strax í febrúar. Tók þá Mark Venus tímabundið við áður en Gary Rowett, sem hefur áður stýrt Birmingham, var fenginn inn um miðjan mars til að klára tímabilið.

Þrátt fyrir ágætis gengi undir lok leiktíðar – tveir sigrar og tvö jafntefli í síðustu fjórum – þá var holan orðin of djúp og Birmingham endaði í 22. sæti með 50 stig sem þýðir að liðið leikur í ensku C-deildinni á næstu leiktíð.

Til að strá salti í sárin þá tók John Eustace við Blackburn í febrúar og hjálpaði liðinu að halda sér uppi í B-deildinni. Sá hlær best sem síðast hlær og allt það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×