Innlent

Tekist á um sóttvarnaaðgerðir í Víglínunni

Heimir Már Pétursson skrifar
Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefði viljað nánast loka landamærunum strax í upphafi covid 19 faraldursins. Sigríður Á. Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir bólusetningar það langt komnar að hægt væri að slaka verulega á sóttvarnatakmörkunum.
Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefði viljað nánast loka landamærunum strax í upphafi covid 19 faraldursins. Sigríður Á. Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir bólusetningar það langt komnar að hægt væri að slaka verulega á sóttvarnatakmörkunum. Stöð 2/Einar

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fer yfir stöðuna í baráttunni gegn covid 19 veirunni hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni í Víglínunni í dag. Þá takast þær Sigríður Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Inga Sæland formaður Flokks fólksins á um ólík sjónarmið í baráttuni í þættinum.

Það urðu tímamót í aðgerðum stjórnvalda í baráttunni við covid 19 þegar Alþingi samþykkti lög snemma morguns á sumardaginn fyrsta. Heilbrigðisráðherra fer yfir aðdragandann að setningu laganna og horfurnar framundan næstu vikurnar. Þá mæta þær Inga Sæland formaður Flokks fólksins og Sigríður Á. Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokksins í þáttinn en þær eru konur öndverðra skoðna hvað aðgerðir gegn veirunni varðar.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra er bjartsýn á 75 prósent þjóðarinnar hafi að minnsta kosti fegnið fyrri bólusetningarsprautuna um miðjan júní. Þá verði hægt að slaka nánast á öllum sóttvarnaaðgerðum.Stöð 2/Einar

Ríkisstjórninn kynnti frumvarp á þriðjudag sem veitti heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra heimild til að herða mjög reglur á landamærunum að undangengnum tillögum frá sóttvarnalækni. Mörgum fannst tillögurnar ruglingslegar í byrjun og tóku þær nokkrum breytingum í meðförum þingsins.

Sótttvarnalæknir hefur síðan lagt fram tillögur til ráðherra sem munu taka gildi með reglugerðum heilbrigðis- og dómsmálaráðherra á þriðjudag. Samkvæmt þeim er fólk frá hááhættusvæðum skyldað til að fara í sóttkví í sóttvarnahúsi á milli skimana eftir komuna til landsins. Þá verða ónauðsynleg ferðalög frá þessum svæðum til Íslands bönnuð með nokkrum undanþágum sem þó lúta stífum reglum.

Sigríður Á. Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokksins var eini stjórnarþingmaðurinn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um heimildir til hertra aðgerða á landamærum.Stöð 2/Einar

Frumvarp ríkisstjórnarinnar fékk misjafnar undirtektir og settu nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins fyrirvara við það þegar það var afgreitt út úr þingflokki. Þótt frumvarpið hafi verið afgreitt með hraði eins og flest frumvörp af þessu tagi tóku umræður í nefnd ásamt annarri og þriðju umræðu um tólf klukkustundir og frumvarpið varð ekki að lögum fyrr en klukkan hálf fimm að morgni sumardagsins fyrsa, daginn sem lögin tóku jafnframt gildi.

Inga Sæland vill að allir sem koma til landsins lúti eftirliti í sóttkví hvort sem það er í sóttvarnahúsi eða á eigin kostnaði í heimahúsi.Stöð 2/Einar

Sigríður Á. Andersen var eini stjórnarþingmaðurinn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Hún telur hægt að fara vægar í sakirnar í ljósi þess að búið sé að verja viðkvæmustu hópana í samfélaginu með bólusetningum.

Inga Sæland hefur hins vegar talað fyrir því að loka landamærunum nánast alveg og skylda alla þá sem þó mættu koma til landsins til að fara í sóttkví undir eftirliti í sóttvarnahúsi.

Víglínan er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 17:40. Þátturinn fer á Stöð 2+ efnisveituna fljótlega eftir útsendingu.


Tengdar fréttir

Þrettán greindust innanlands og allir í sóttkví

Þrettán greindust með covid-19 innanlands í gær og þar af voru allir í sóttkví. Enginn greindist á landamærum. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×