Veður

Þurrt að mestu og hiti að tólf stigum

Atli Ísleifsson skrifar
Gera má ráð fyrir hita á bilinu fjögur til tólf stig að deginum í dag.
Gera má ráð fyrir hita á bilinu fjögur til tólf stig að deginum í dag. Vísir/Vilhelm

Útlit er fyrir hæglætisveður í dag þar sem verður þurrt að mestu og milt. Reikna má með heldur meira af skýjum en í gær, en það ætti að sjást víða til sólar.

Á vef Veðurstofunnar segir að gera megi ráð fyrir hita á bilinu fjögur til tólf stig að deginum.

„Snýst í norðlæga átt á morgun, 3-8 m/s. Skýjað og heldur svalara á norðanverðu landinu, en bjartara veður sunnan heiða með hita að 10 til 12 stigum þegar best lætur.

Það er skemmst frá að segja að á föstudag er spáð svipuðu veðri áfram,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti): Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað á Norður- og Austurlandi og hiti 1 til 6 stig, en bjart með köflum sunnan heiða með hita að 12 stigum yfir daginn.

Á föstudag: Norðan 5-10 m/s. Léttskýjað suðvestan- og vestanlands, annars skýjað en úrkomulítið. Hiti 0 til 12 stig, hlýjast suðvestantil, en víða næturfrost.

Á laugardag: Norðlæg átt og dálítil snjókoma eða él á Norðaustur- og Austurlandi, en bjartviðri suðvestanlands. Hiti 0 til 8 stig yfir daginn, mildast syðst.

Á sunnudag og mánudag: Norðaustlæg átt og stöku skúrir eða él, hiti breytist lítið.

Á þriðjudag: Útlit fyrir svipað veður áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×