Skoðun

Hreyfing og tengsl

Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir skrifar

Talið er að um helmingur mannkyns þurfi að takast á við andleg veikindi á einhverjum tímapunkti ævinnar, en félagslegur stuðningur er verndandi þáttur sem getur hæglega aukið lífsgæði, viðhaldið andlegri heilsu og almennt stuðlað að auknum árangri í lífi einstaklinga, jafnvel þó að þeir hafi gengið í gegnum mikla erfiðleika eða mótlæti. Einnig hafa rannsóknir sýnt að félagslegur stuðningur leiki lykilhlutverk í bataferli ýmissa veikinda. Góð tengsl, þar sem einstaklingi finnst hann tilheyra, geta nefnilega dregið úr einkennum á borð við þunglyndi, kvíða og einangrun. Því er hægt að álykta að samveru við annað fólk fylgi betri líðan og að félagsleg tengsl hafi gott forvarnargildi.

Andleg heilsa snýst ekki aðeins um hvort geðrænar áskoranir séu til staðar, heldur einnig og ekki síður um vellíðan fólks (skv. skilgreiningu World Health Organization). Í félagslegu verkefnum Rauða krossins taka sjálfboðaliðar að sér samveru og heimsækja þátttakendur vikulega í um það bil klukkustund í senn. Miða verkefnin að því að styrkja og efla félagslega þátttöku og útfærslurnar eru fjölbreyttar, en heimsóknir eru ávallt hannaðar í samráði við þátttakendur í verkefninu.

Nokkuð algengt er að samveran hverju sinni sé nýtt í einhvers konar hreyfingu. Líkamleg áreynsla sýnir nefnilega bein tengsl við betri andlega líðan. Þegar kemur að hreyfingu telur ávallt að allt er betra en ekkert og ættu öll að finna eitthvað við sitt hæfi. Hvort sem það er að taka stutt rölt í garðinum, lyfta lóðum, ryksuga hressilega, skella sér í sjósund eða hlaupa 10 kílómetra, öll hreyfing telur til hins betra.

Hreyfing í góðum félagsskap er þannig svo mikið meira en bara góð dægradvöl. Enda hefur það beinlínis jákvæð áhrif á heilsuna að finnast maður tilheyra. Samvera af þessu tagi getur bætt einstaklingsmiðaðan árangur, andlega sem líkamlega, og það án verulegs aukakostnaðar. Með betri líðan landsmanna fylgir jú betri heilsa, sem síðan hefur áhrif á allt daglegt líf og mun skila sér í meiri velsæld og ávinningi fyrir samfélagið í heild.

Evrópsk vitundarvika um geðheilsu stendur nú yfir til 19. maí og það er góður tími til að huga að því hvað við getum gert til að bæta geðheilsu okkar eða annarra í samfélaginu. Ef þú eða einhver sem þú þekkir hefur áhuga á þátttöku í félagslegu verkefnunum, hvort sem það er sem sjálfboðaliði sem fer í heimsókn eða þátttakandi sem fær heimsóknir, er um að gera að hika ekki við að senda inn umsókn í gegnum vefsíðu Rauða krossins, www.raudikrossinn.is. Einnig er frjálst að leita til Hjálparsíma og netspjalls Rauða krossins 1717 eða netspjallsins 1717.is fyrir sálrænan stuðning, hlustun og ráðgjöf í fullri nafnleynd og trúnaði, án endurgjalds.

Höfundur er verkefnafulltrúi hjá Rauða krossinum á Íslandi.




Skoðun

Sjá meira


×