Sport

„Ég táraðist smá“

Andri Már Eggertsson skrifar
Hafdís Renötudóttir, markmaður Vals, var í skýjunum eftir leik kvöldsins
Hafdís Renötudóttir, markmaður Vals, var í skýjunum eftir leik kvöldsins Vísir/Anton Brink

Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa unnið Hauka 28-25 og einvígið 3-0. Hafdís Renötudóttir, markmaður Vals, var valin besti leikmaður úrslitakeppninnar og sagðist næstum því hafa farið að gráta á verðlaunapallinum.

„Við settum í fimmta gír og mér fannst við vera í fjórða gír til að byrja með. Við þurftum að sýna góða frammistöðu í verki og gerðum það,“ sagði Hafdís í samtali við Vísi og hélt áfram.

„Ágúst [Jóhannsson] var rólegur inni í klefa í hálfleik og sagði að við myndum gera þetta af yfirvegun og við fengum góða vörn, markvörslu og flottan sóknarleik. Við erum með frábært lið.“

Haukar byrjuðu seinni hálfleik betur og komust 11-14 yfir en þá svaraði Valur með 10-2 áhlaupi og kláraði leikinn. Hafdís var nánast hissa hvað þetta var góður kafli hjá liðinu.

„Vó 10-2. Ég veit það ekki. Við stóðum góða vörn og ég varði eitthvað á þessum kafla. En þetta var sætur sigur og ég trúi því ekki að við höfum tekið úrslitakeppnina 6-0 sem er áhugavert.“

Hafdís var frábær allt tímabilið og var valin besti leikmaður úrslitakeppninnar og sagði það hafa mikla þýðingu fyrir sig að fá þau verðlaun.

„Ég táraðist smá. Mig langaði svo ógeðslega mikið að vinna og þetta var pínu spennufall ef ég á að segja alveg eins og er.“

Tímabilið hjá Val fer í sögubækurnar þar sem liðið vann alla titla sem í boði voru á Íslandi og tapaði aðeins einum leik af þrjátíu.

„Ef ég á að segja alveg eins og er þá hugsa ég ennþá um þetta tap þó ég eigi ekki að gera það. Ég er virkilega stolt af stelpunum og við stigum varla feilspor. Við vorum virkilega einbeittar, yfirvegaðar og gerðum þetta af fagmennsku,“ sagði Hafdís að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×