Lögfestum leikskólastigið Það er löngu tímabært að tryggja öllum börnum leikskóladvöl með því að lögfesta leikskólastigið. Sú breyting er lykilatriði í því að brúa bilið sem enn er á milli fæðingarorlofs og leikskóla og veldur fjölmörgum fjölskyldum miklum vandræðum. Í velferðarsamfélagi sem byggir á jöfnuði og jafnrétti er ótækt að fjölskyldur búi við kvíða og afkomuótta í kjölfar barneigna. Það er því réttlát krafa að brúa bilið – með hagsmuni barna og kvenfrelsi að leiðarljósi. Skoðun 29. október 2024 06:32
„Við biðjum öll fyrir framtíð þessa unga efnismanns“ „Fólk er að biðja mig að svara grein eftir Snorri Másson en jólavertíðin er hafin, fastur í viðtölum í dag og upplestur á Skaganum í kvöld, kemst bara ekki til þess. En mundi þá að ég var auðvitað þegar búinn að svara honum, hjá Gísla Marteini. Við biðjum öll fyrir framtíð þessa unga efnismanns.“ Innlent 28. október 2024 23:15
Vitað mál að allir flokkar berjist ekki fyrir almannahag „Það segjast allir flokkar vera berjast fyrir almannahag þó að allir vita að það sé ekki satt. Við erum almannahagsmuna flokkur og eigum við ekki bara lofa okkur að telja upp úr kössunum og sjá hverju við getum náð fram þegar við förum að ná okkar málum fram. Þetta snýst allt um málamiðlanir.“ Innlent 28. október 2024 22:31
Karl Gauti og Ólafur Ísleifsson snúa aftur Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum og fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, mun leiða lista flokksins í Suðurkjördæmi. Í kvöld samþykkti félagsfundur Miðflokksins tillögu uppstillingarnefndar um framboðslitann í kjördæminu Innlent 28. október 2024 21:53
„Mér brá svolítið þegar ég sá þetta“ „Ég skal viðurkenna að mér brá svolítið þegar ég sá þetta,“ sagði Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og frambjóðandi Samfylkingarinnar til Alþingis, um skilaboð sem formaður flokks hans sendi, þar sem hún virtist hvetja kjósanda til að strika nafn Dags út af lista í komandi kosningum. Innlent 28. október 2024 21:34
„Aldrei gott að toppa of snemma“ Halla Hrund Logadóttir fyrrverandi forsetaframbjóðandi og oddviti Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi segir að af eigin reynslu sé ekki gott að toppa of snemma í kosningabaráttu. Víðir Reynisson, oddviti Samfylkingar í sama kjördæmi segist ekki sjá merki um gremju í flokknum vegna ummæla formannsins um Dag B. Eggertsson. Þetta er meðal þess sem kom fram í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 28. október 2024 19:02
Fer í leyfi sem formaður VR Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, mun taka sér tímabundið leyfi frá störfum sem formaður fram að alþingiskosningum þann 30. nóvember en hann mun funda með stjórn VR á morgun til að tilkynna ákvörðun sína. Innlent 28. október 2024 18:20
Þau eru í framboði til Alþingis 2024 Alþingiskosningar fara fram þann 30. nóvember næstkomandi og rennur framboðsfrestur úr á hádegi 31. október. Innlent 28. október 2024 16:24
300 milljónir á dag Spjallið við eldhúsborðið ætti að vera um sumarfrí og framtíðaráform fremur en vexti og hallann á heimilisbókhaldinu. Eitt mikilvægt framlag ríkisins í baráttunni við verðbólguna er að hafa jafnvægi í ríkisfjármálum. Hvernig hefur það gengið hjá ríkisstjórn síðustu sjö ára? Skoðun 28. október 2024 14:32
Snorri sakar Hallgrím um ofureinfaldanir Snorri Másson, frambjóðandi Miðflokksins, hefur nú ritað grein þar sem hann fer í saumana á ræðu Hallgríms Helgasonar rithöfundar, sem hann flutti í sjónvarpsþætti Gísla Marteins Baldurssonar á Ríkisútvarpinu á föstudaginn. Snorri telur Hallgrím grípa til ofureinfaldana og í raun útúrsnúninga. Innlent 28. október 2024 14:31
Hallgrímur, málið snýst því miður ekki bara um kebab Ég fann fyrir hlýjum stuðningsstraumum þegar Hallgrímur Helgason bað fyrir mér í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu á föstudaginn. Skáldið hefur vissulega greint frá því að hann stefni (enn sem komið er!) á að kjósa Samfylkinguna en ekki okkur í Miðflokknum. Skoðun 28. október 2024 14:30
Samfylkingin er Evrópuflokkur Hver eftir annan hafa þeir sem mest tjá sig opinberlega um stjórnmál, allt frá kjörnum fulltrúum annarra flokka til blaðamanna og athyglissjúkra stjórnmálafræðinga, tönnlast á því, margir örugglega gegn betri vitund, að Samfylkingin hafi breytt um stefnu varðandi aðild að Evrópusambandinu. Að formaður flokksins hafi kastað því máli útbyrðis. Svo er ekki. Skoðun 28. október 2024 14:17
Virðist sem D hafi náð að hægja á blæðingunni til M Glæný könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka sýnir að Viðreisn rís umtalsvert. Á milli kannanna fer hún úr 13,8 prósentum upp í 16,2% og þar með er flokkurinn kominn upp fyrir Miðflokkinn og mælist næststærsti flokkur landsins. Könnunin er splunkuný og var tekin dagana 22. - 28 október. Innlent 28. október 2024 13:46
Ofboðslega frægur Orðið frægur er skilgreint sem mjög þekktur, víðkunnur í Íslenskri nútímamálsorðabók Árnastofnunar. Skoðun 28. október 2024 13:01
Inga Sæland ætlar með Flokk fólksins upp í fimmtán prósent Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er að vonum afar ánægð með niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu. Hún má vera það. Innlent 28. október 2024 12:17
Ný könnun: Viðreisn og Flokkur fólksins í hæstu hæðum Viðreisn og Flokkur fólksins eru í sókn samkvæmt nýjustu könnun Maskínu og Píratar virðast á fallanda fæti. Fylgi Viðreisnar hefur aldrei mælst hærra í Maskínukönnun og Flokkur fólksins hefur reist við fylgi sitt umfram það sem flokkurinn fékk í kosningunum 2021. Píratar tapa rúmum tveimur prósentum og mælast út af þingi. Innlent 28. október 2024 12:01
Grímur, Halla Hrund, Jens Garðar og Víðir mæta í Pallborðið Framboðslistar stjórnmálaflokkanna eru komnir fram hjá fimm stjórnmálaflokkum í öllum kjördæmum fyrir komandi alþingiskosningar. Tólf framboð eru að safna meðmælum fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember. Fjölmargir þjóðkunnir einstaklingar hafa þegar stigið fram og taka sæti á listum flokkanna. Þá eru kosningamaskínur flokkanna komnar í fullan gang. Innlent 28. október 2024 10:22
„Það var ekkert eftir nema dauðinn sem kom á ógnarhraða“ Anton Sveinn McKee segir dauða föður síns hafa gjörbreytt lífi sínu og sýn sinni á tilveruna. Anton, sem er gestur í nýjasta þætti podcasts Sölva Tryggvasonar, segist hafa þurft að kafa djúpt til að finna aftur vonarneistann, en hann er sannfærður um að það sé undir okkur sjálfum komið að finna fegurðina í tilverunnni, sama hvað bjátar á. Innlent 28. október 2024 09:53
Vaxandi stríðsátök, en með íslenskum vopnum? Í fyrrakvöld fengum við fregnir af því að Ísrael hafi svarað fyrir árás Írana með því að ráðast á Íran, Írak og Sýrland. Skoðun 28. október 2024 07:47
Ísland þarf ríkisstjórn um almannahagsmuni – ekki sérhagsmuni Sjö ára tilraunastarfsemi um samstarf VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er blessunarlega lokið og komið er að kosningum. Skoðun 28. október 2024 07:15
Óhæfur leiðtogi? Það er áhugavert að lesa einkaskilaboð Kristrúnar og umræðuna um tilvist Dags B. Eggertssonar á lista Samfylkingarinnar. Kristrún Frostadóttir lýsir þarna yfir vantrausti á meðlim á sínum eigin lista. Í raun lýsir hún því þar með yfir að fólkið sem gengur með henni í hennar baráttu og á að aðstoða hana við að vinna að „verkefninu“ sé óhæft til þess. Skoðun 28. október 2024 06:45
Loksins, Gunnar Bragi! Mörgum hefur eflaust þótt eitthvað um að sjá Gunnar Braga í framboði fyrir Miðflokkinn í Norðvesturkjördæmi. Hvers vegna? Jú m.a. af þeirri einföldu ástæðu að Gunnar Bragi var hluti af þeim þingmönnum sem sátu að sumbli á bar og samræður þeirra sem engir utanaðkomandi áttu að heyra voru teknar upp. Einkasamræður á milli fárra einstaklinga. Sem síðar voru birtar í fjölmiðlum, sjónvarpi og að auki fluttar óbreyttar í Borgarleikhúsinu, leikhúsi Reykvíkinga. Til hvers? Jú, til að meiða og kóróna það svo með sýningu í leikhúsi borgarbúa? Skoðun 28. október 2024 06:31
Skynsemi Sigmundar Davíðs rýnd – Er ESB aðild/Evra tóm tjara? Sigmundur Davíð og hans sívaxandi lið kenna sig og sína pólitík við skynsemi; reka pólitík skynseminnar og fá út á það mikið fylgi. Auðvitað mjög skynsamlegt það! En, spurningin var og er sú, hvers og hver skynsemin er. Skoðun 28. október 2024 06:01
Hvorki útlendingahatur né gestrisni Það er eitthvað mikið að þegar við getum ekki sett pening í að hlúa að ungmennum þessa lands, hjálpa þeim að eignast húsnæði og koma undir sig fótunum svo þau sjá enga framtíð hér á Íslandi, en getum veitt hundruðum milljarða í að leigja hús undir hælileitendur. Skoðun 28. október 2024 06:01
„Ef ég væri kóngur myndi ég heita Valtýr sautjándi“ „Ef ég væri kóngur myndi ég heita Valtýr sautjándi,“ segir Valtýr Þór Hreiðarsson rekstrarhagfræðingur í samtali við Vísi en hann hefur skipað sautjánda sæti á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi fyrir síðustu þrjár alþingiskosningar og eru alþingiskosningarnar þann 30. nóvember engin undantekning frá því. Innlent 27. október 2024 21:56
Reykvíkingur ársins leiðir listann ásamt Ragnari Marta Wieczorek, grunnskólakennari og Reykvíkingur ársins 2024, mun skipa annað sæti á lista Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Björn Þorláksson blaðamaður og rithöfundur skipar þriðja sæti listans fyrir þingkosningarnar 30. nóvember næstkomandi. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, leiðir listann. Innlent 27. október 2024 19:29
Skólarnir eigi að hjálpa nemendum að ná árangri og vera jöfnunartæki „Það er skylda okkar, sem fáum það traust að mennta æsku Íslands, að hjálpa nemendum ná sem allra mestum árangri eins og kostur er. Skólar eru jöfnunartæki, það ætti enginn að líða fyrir stétt eða stöðu sína því að allir nemendur skipta máli og allir nemendur ættu að hafa eins jöfn tækifæri eftir 10 ára skyldunám sem mögulegt er.“ Innlent 27. október 2024 16:34
Séra Davíð Þór leiðir Sósíalista í Suðvesturkjördæmi Séra Davíð Þór Jónsson mun leiða framboðslista Sósíalistaflokksins í Suðvesturkjördæmi alþingiskosningunum 30. nóvember næstkomandi. Innlent 27. október 2024 16:06
Er ekki einokun Háskóla Íslands óviðunandi? Af og til tekur frambjóðandi þessa umræðu við fólk, Íslendinga, sem koma að utan eftir nám. Það sem margir þeirra eiga sammerkt er að þeir fá menntun sína ekki metna hér á landi. Hér er um sálfræðinga að ræða, félagsráðgjafa og hjúkrunarfræðinga svo fáar stéttir séu nefndar. Skoðun 27. október 2024 14:00
Brynjar fær þriðja sætið í Reykjavíkurkjördæmi norður Guðlaugur Þór Þórðarsson, umhverfis- orku- og loftslagsmálaráðherra verður oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi kosningum. Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður verður í öðru sæti. Brynjar Níelsson vermir þriðja sætið. Innlent 27. október 2024 13:56