Margir í vandræðum í Kömbunum Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út í kvöld til að aðstoða fjölda ökumanna sem lentu í vandræðum í Kömbunum í kvöld. Þar hafði myndast talsverð hálka og snjór á veginum sem gerði að verkum að margir komust ekki sinnar leiðar. Innlent 8. október 2024 21:50
Snjóþekja á Hellisheiði Vetur konungur virðist kominn á suðvesturhornið og lét hann fyrst sjá sig á Hellisheiðinni í dag. Þá hefur snjóað í fjöll við höfuðborgarsvæðið undir kvöld. Innlent 8. október 2024 18:55
Snjókoma og hálka á höfuðborgarsvæðinu á fimmtudag Á fimmtudagsmorgun er líklegt að íbúar á Suður- og Vesturhluta landsins, þar með talið höfuðborgarbúar, muni vakna með nokkurra sentímetra snjó á götunum. Á Norður- og Norðausturlandi verða él þannig meira og minna allt landið verður hvítt að einhverju leyti. Það byrjar að snjóa aðfaranótt fimmtudags og verður líklega allt farið um kvöldið eða daginn eftir. Veður 8. október 2024 10:39
Dálítil rigning eða slydda suðvestantil Veðurstofan spáir breytilegri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu, en að smám saman snúist í norðaustanátt. Skýjað verður að mestu og dálítil él eða slydduél fyrir norðan og austan. Veður 8. október 2024 07:12
Úmbarassa-sa Jæja góðir landsmenn, þá er vetur konungur handan hornsins. Þá veður verða válynd. Sumir myndu nú kannski halda því fram að hann hafi aldrei almennilega vikið fyrir sumrinu síðastliðið vor, en látum það liggja milli hluta. Skoðun 7. október 2024 08:33
Víða bjart og fallegt sunnan- og vestantil Lægð suður í hafi og víðáttumikil hæð yfir Grænlandi beina nú norðaustlægum vindum yfir landið, sums staðar strekkingi, en annars yfirleitt mun hægari. Veður 7. október 2024 07:10
Búast við lítilsháttar éljum á Ströndum og fyrir norðaustan Víðáttumikil lægð vestur af Írlandi og hæð yfir Grænlandi beina til okkar norðaustlægri átt að mati Veðurstofunnar. Víða má búast við kalda eða strekkingi. Veður 6. október 2024 08:16
Víða kaldi og allhvasst suðaustantil Víðáttumikil lægð suður í hafi og hæð yfir Grænlandi stýra veðrinu næstu daga. Þetta kemur fram í textaspá Veðurstofunnar. Veður 5. október 2024 08:08
Stormur við suðausturströndina Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt í dag þar sem víða verður strekkingur en gengur í hvassviðri eða storm við suðausturströndina. Búið er að gefa út gula viðvörun fyrir Suðausturland. Veður 4. október 2024 07:16
Kaldasti september frá árinu 2005 Septembermánuður var óvenjukaldur á landinu. Meðalhitastig hefur raunar ekki verið jafn lágt frá septembermánuði árið 2005. Innlent 3. október 2024 17:46
Víða rigning eða slydda Lægð suðvestur af landinu stýrir veðrinu í dag og má víða reikna með norðaustankalda eða strekkingi og rigningu eða slyddu með köflum. Spáð er snjókomu til fjalla norðanlands. Veður 3. október 2024 07:11
Víða rigning með köflum Hægfara lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu í dag þar sem áttin verður suðvestlæg, yfirleitt gola eða kaldi og rigning með köflum. Þó má gera ráð fyrir að þurrt verði að mestu á Suðaustur- og Austurlandi fram undir kvöld. Veður 2. október 2024 07:15
Suðvestlæg átt og víða dálítil rigning Grunn lægð á Grænlandshafi og hæð fyrir sunnan land beina nú suðvestlægri átt til landsins og má gera ráð fyrir að verði víða kaldi eða strekkingur í dag, súld eða dálítil rigning. Þó verður þurrt að mestu um landið austanvert. Veður 1. október 2024 06:51
Hinn fallegasti dagur í vændum Lægðin sem olli úrkomu á mestöllu landinu um helgina fjarlægt nú hratt og örugglega en mun enn valda norðvestan strekkingi með stöku éljum á norðaustanverðu landinu. Þar mun þó lægja og létta til nærri hádegi. Veður 30. september 2024 07:17
Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægð nálgast landið úr suðri og kemur til með að stjórna veðrinu um helgina. Hún er þó grunn, sérílagi miðað við lægðir við Ísland á þessum árstíma. Veður 28. september 2024 07:56
Lægðardrag þokast suður Yfir landinu er nú dálítið lægðardrag sem þokast suður. Gera má ráð fyrir dátítilli rigningu suðaustantil fram eftir degi. Það mun hins vegar létta heldur til vestanlands og í kvöld má búast við stöku éljum á norðausturhorninu. Veður 27. september 2024 07:07
Rigning eða slydda norðan- og austanlands Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag þar sem yfirleitt má reikna með vindi þremur til tíu metrum á sekúndu. Veður 26. september 2024 07:13
Dregur úr vindi og ofankomu Í dag er búist við því að það dragi smám saman úr vindi og ofankomu. Víða verði norðan gola síðdegis og dálítil væta á norðaustanverðu landinu, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Veður 25. september 2024 08:58
Fjarðarheiði lokuð og bílar fastir Fjarðarheiði hefur verið lokað vegna umferðarteppu, en þar eru hálkublettir, éljagangur og nokkur vetrarfærð. Verkstjóri hjá Vegagerðinni segir þó að ekki ætti að taka langan tíma að opna heiðina aftur. Innlent 24. september 2024 11:32
Svalt í veðri og gengur í blástur Lægðardrag nálgast nú landið úr norðaustri og mun þá ganga í norðvestan blástur eða strekking með rigningu eða slyddu norðaustantil. Einnig má reikna með snjókomu til fjalla síðdegis. Veður 24. september 2024 07:12
Vetrarfærð á fjallvegum norðaustanlands Það mun ganga í strekkings norðlæga átt í nótt og fer að snjóa á fjallvegum um norðaustanvert landið eftir hádegi á morgun. Innlent 23. september 2024 14:26
Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Útlit er fyrir áframhaldandi rólegheit í veðrinu í dag þar sem spáð er hægviðri og léttskýjuðu víða um land. Þó má gera ráð fyrir skýjuðu veðri og að líkur séu á smá súld af og til við suðurströndina. Veður 23. september 2024 07:09
Milt veður en lægð nálgast Hægfara hæðarhryggur teygir sig nú yfir landið og heldur því lægðuðum fjarri, en milda loftinu kyrru, um sinn að minnsta kosti. Veður 20. september 2024 07:14
Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Hæðarhryggur er nú yfir landinu sem þokast norðaustur og má yfirleitt reikna með hægum suðvestanvindum, en kalda og sums staðar strekkingi á Vestfjörðum. Veður 19. september 2024 07:05
Allt að 17 stig á Austurlandi Nú er lægð á leið norðaustur yfir land með rigningu víða og mildu veðri, en þurru og hlýju á Austurlandi framan af degi. Hiti verður á bilinu sex til 17 stig og hlýjast austantil. Svo snýst í norðvestan golu eða kalda seinnipartinn, þá styttir upp sunnan- og vestanlands og kólnar í veðri. Veður 18. september 2024 07:18
Næsta lægð nálgast úr suðvestri Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, og er spáð björtu og fremur hlýju veðri á Norðaustur- og Austurlandi, en að verði skýjað og sums staðar smávæta í öðrum landshlutum. Veður 17. september 2024 07:10
Flóð í Evrópu og Mjanmar og gróðureldar í Portúgal Tala látinna í flóðunum í austanverðri Evrópu heldur áfram að hækka en í gær bættust fjögur dauðsföll á listann í Póllandi, þrjú í Tékklandi og eitt í Rúmeníu. Fjölda fólks er einnig saknað en staðfest tala látinna er nú komin upp í sextán manns. Erlent 17. september 2024 07:06
Gular viðvaranir í hvassviðris Það gengur í austlæga átt, átta til fimmtán metra en fimmtán til 23 metra á sekúndu sunnanlands í dag. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna vinds fyrir Suðurland og miðhálendið. Veður 16. september 2024 07:26
Íslendingur í Vín: „Ég hef aldrei kynnst svona vatnsveðri“ Minnst átta hafa látist í flóðum sem gengið hafa yfir Mið- og Austur-Evrópu eftir storminn Boris. Fjölmargra er saknað. Íslendingur í Vín segist aldrei hafa séð annað eins á þeim átta árum sem hann hefur búið á svæðinu. Innlent 15. september 2024 19:13
Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Gular veðurviðvaranir taka gildi á Suðurlandi og miðhálendi um og upp úr hádegi á morgun vegna hvassviðris. Á Suðurlandi er búist við austan og suðaustan 15 til 23 metrum á sekúndu, hvassast undir Eyjafjöllum og í Selvogi þar sem vindhviður geta nálgast allt að 40 metrum á sekúndu. Veður 15. september 2024 16:25