Kauphöllin Umframfé Arion banka gæti brátt numið yfir tuttugu milljörðum Þrátt fyrir talsverðar niðurfærslur á lánum þá var hagnaður Arion banka á þriðja fjórðungi, einkum vegna sögulega sterkrar afkomu af tryggingarekstrinum, vel umfram spár greinenda og ekki útséð með að bankinn geti náð arðsemismarkmiði sínu á árinu. Með innleiðingu á nýju bankaregluverki í upphafi nýs ár er áætlað að umfram eigið fé Arion, sem er núna talið vera allt að tuttugu milljarðar, aukist um liðlega fimm milljarða til viðbótar. Innherji 31.10.2024 13:02 Kílómetragjaldið fer inn í vísitöluna og krafa verðtryggðra ríkisbréfa lækkar Fyrirhuguð upptaka kílómetragjalds á öll ökutæki í staðinn fyrir olíugjald verður tekið með í útreikninga á vísitöluneysluverðs, staðfestir Hagstofan, en óvissa hefur verið meðal markaðsaðila hvernig stofnunin myndi meðhöndla útfærslu á þeirri breytingu. Ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa hefur lækkað skarpt í morgun þar sem nú er ljóst að mæld verðbólga verður hærri en ella í upphafi næsta árs vegna ákvörðunar Hagstofunnar. Innherji 30.10.2024 11:15 Telur æskilegt að lífeyrissjóðir beiti sér líkt og aðrir fjárfestar í skráðum félögum Seðlabankinn er þeirrar skoðunar að það sé „æskilegt“ að lífeyrissjóðir, sem eru langsamlega stærstu fjárfestarnir á innlendum verðbréfamarkaði, beiti áhrifum sínum sem hluthafar í skráðum félögum í Kauphöllinni líkt og aðrir fjárfestar. Bankinn brýnir hins vegar fyrir lífeyrissjóðunum mikilvægi þess að stjórnarmenn séu sjálfstæðir í störfum sínum og eigi að gæta að hagsmunum sjóðsfélaga við að „hámarka ávöxtun eigna.“ Innherji 27.10.2024 13:42 Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Gengi bréfa í Play féll um tæp þrettán prósent í dag og verð á bréfum í félaginu er nú 0,82 krónur á hlut. Sú var staðan þegar lokað var fyrir viðskipti með bréf í Kauphöllinni á fjórða tímanum í dag. Í gær birti félagið uppgjör þar sem kom fram að hagnaður á þriðja ársfjórðungi hefði dregist saman um þriðjung milli ára. Forstjóri félagsins kynnti grundvallarbreytingar á rekstrarmódeli félagsins á fundi í gær. Viðskipti innlent 25.10.2024 16:45 Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Flugfélagið Play hagnaðist um hálfan milljarð króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um 724 milljónir króna. Félagið skoðar nú að ráðast í hlutafjáraukningu og eftir atvikum sækja fjármögnun í tengslum við nýtt flugrekstrarleyfi. Viðskipti innlent 24.10.2024 16:32 Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Flugfélagið Play boðar til fundar í Sykursalnum í Vatnsmýrinni þar sem afkoma þriðja ársfjórðungs verður kynnt. Þá verður farið nánar yfir þegar tilkynntar grundvallarbreytingar sem til stendur að gera á rekstrarmódeli félagsins. Sýnt verður frá fundinum hér á Vísi. Viðskipti innlent 24.10.2024 15:34 Seðlabankinn vill skoða að heimila lífeyrissjóðum að lána verðbréf Hægt væri að auka skilvirkni og dýpt verðbréfamarkaða hér á landi með því að veita íslenskum lífeyrissjóðum, langsamlega stærstu fjárfestunum á markaði, frekari heimildir til afleiðuviðskipta og jafnframt leyfa þeim að lána hlutabréf eða skuldabréf sín, að sögn Seðlabankans. Vegna stærðar sinnar getur hegðun lífeyrissjóða heft „veruleg áhrif“ á verðmyndun á markaði og því sé jákvætt fyrir fjármálastöðuga að skoða leiðir sem gætu aukið þátttöku annarra fjárfesta. Innherji 24.10.2024 10:25 Afkoma Icelandair var vel undir spám greinenda og gengið lækkaði skarpt Minni eftirspurn á markaðnum til Íslands og lægri meðalfargjöld á flugi yfir Atlantshafið veldur því að rekstrarhagnaður Icelandair af farþegafluginu hefur skroppið saman um tæplega níutíu prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Uppgjör Icelandair fyrir þriðja fjórðung var nokkuð undir væntingum greinenda og fjárfesta en félagið sér fram á verulega bætta afkomu á næsta fjórðungi miðað við sama tíma í fyrra og horfurnar fyrir 2025 séu góðar samhliða því að sumir keppinautar eru að draga saman seglin. Innherji 23.10.2024 18:16 Búast við að klára samrunann við Marel í árslok nú þegar styttist í samþykki ESB Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú gefið til kynna að hún sé reiðubúin að taka á móti formlegi tilkynningu vegna samruna John Bean Technologies (JBT) og Marel en stjórnendur bandaríska félagsins telja að yfirlýst áform um að klára viðskiptin undir árslok eigi að ganga eftir. Hlutabréfaverð JBT hefur rokið upp eftir að afkoman á þriðja ársfjórðungi var yfir væntingum greinenda en félagið skilaði mettekjum og framlegðin batnaði sömuleiðis verulega. Innherji 23.10.2024 13:40 Hluturinn í Controlant er „stærsta óvissan“ í eignasafni Sjóvá Ef Sjóvá hefði vitað um þau viðbótarréttindi sem fjárfestar fengu við útboð Controlant í árslok 2023, sem ver þá fyrir umtalsverðri gengislækkun í yfirstandandi hlutafjáraukningu, þá hefði tryggingafélagið ekki bókfært virði hlutarins hjá sér miðað við gengið 105 krónur á hlut, segir forstöðumaður fjárfestinga. Stjórnendur Sjóvá merkja aukna samkeppni í tryggingarstarfseminni eftir að einn af keppinautum félagsins, VÍS, sameinaðist Fossum fjárfestingabanka. Innherji 22.10.2024 14:03 Hagar færa út kvíarnar og kaupa færeyskt verslunarfélag fyrir um níu milljarða Smásölurisinn Hagar hefur náð samkomulagi við eigendur verslunarfélagsins P/F SMS í Færeyjum, sem rekur meðal annara átta Bónusverslanir, fyrir jafnvirði meira en níu milljarða króna í því skyni að auka umsvif félagsins í dagvöruverslun. Hinir færeysku eigendur SMS fá að hluta greitt með bréfum í Högum en fjárfestar taka vel í tíðindin og hlutabréfaverðið hækkað skarpt í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni. Innherji 22.10.2024 10:15 Oculis rauk upp eftir tilkynningu Gengi hlutabréfa augnlyfjafyrirtækisins Oculis rauk upp um tæplega tíu prósent í dag. Í morgun tilkynnti félagið að innritunum þátttakenda í rannsóknum á lyfinu OCS-01 hefði verið flýtt verulega. Viðskipti innlent 21.10.2024 16:00 Endurtekin tilboðsskylda – brýn minnihlutavernd eða óþarfa hömlur? Reglur um yfirtökur á hlutabréfamörkuðum hafa það hlutverk að meginstefnu til að vernda hagsmuni minnihlutahluthafa við þær aðstæður þegar fjárfestir, einn eða í samstarfi við aðra, öðlast ráðandi hlut í félagi. Reglurnar gefa slíkum hluthöfum kost á því að losa sig út úr félagi á fyrir fram ákveðnu og sanngjörnu verði kjósi þeir svo. Allur gangur er hins vegar á því með hvaða hætti ríki útfæra þessar reglur og hve strangar þær eru. Umræðan 21.10.2024 12:56 Telur ókosti kauprétta hvað þeir geta verið „ófyrirsjáanlegir“ í niðurstöðum Lífeyrissjóðurinn Gildi lagðist gegn kaupréttaráætlun sem var samþykkt á hluthafafundi Reita, rétt eins og sjóðurinn hefur gert í tilfelli annarra félaga að undanförnu, og vill að skoðaðar séu aðrar leiðir en kaupréttir þegar komið er á langtímahvatakerfi fyrir lykilstjórnendur. Gildi er langsamlega stærsti hluthafinn í Reitum, með um nítján prósenta hlut, en sá næst stærsti – Lífeyrissjóður verslunarmanna – studdi hins vegar tillögu stjórnar fasteignafélagsins um kaupréttarkerfið. Innherji 20.10.2024 13:32 „Hraustleg lækkun“ á vanmati félaga eftir að markaðurinn tók loksins við sér Eftir dræman árangur í samanburði við flesta erlenda hlutabréfamarkaði um nokkurt skeið hefur íslenski markaðurinn, einkum núna þegar vaxtalækkunarferlið er farið af stað, loksins tekið við sér og það er margt sem vinnur með honum um þessar mundir, að mati hlutabréfagreinenda. Hækkandi hlutabréfaverð kemur hins vegar á sama tíma og það er að draga úr samkeppnishæfni Íslands eftir miklar launahækkanir og gengisstyrkingu á undanförnum árum. Innherji 19.10.2024 13:13 Play í frjálsu falli Hlutabréfaverð flugfélagsins Play er í frjálsu falli eftir tilkynningu um breytingu á rekstrarformi félagsins í vikunni. Einn af fjórum stærstu hluthöfum félagsins seldi 71 milljón hluta í morgun á genginu ein króna á hlut. Dagslokagengið á miðvikudag var 1,92 krónur. Viðskipti innlent 18.10.2024 11:49 Tiltrú fjárfesta mun aukast þegar það fæst betri innsýn í sölutekjur Alvotech Fjárfestar bíða eftir að fá betri innsýn í tekjurnar vegna sölu á hliðstæðulyfi Alvotech við Humira í Bandaríkjunum, að mati fjárfestingabankans Barclays, en það hefur ráðið hvað mestu um að hlutabréfaverð félagsins er enn talsvert undir hæstu gildum fyrr á árinu. Greinendur bankans, sem segjast „sannfærðir“ um að Alvotech verði einn af þremur risunum á heimsvísu á sviði líftæknilyfja, álíta að uppgjör næstu mánaða muni auka tiltrú og traust markaðarins á tekjuáætlunum þess og nefna eins að með sérhæfðri lyfjaverksmiðju sé félagið með samkeppnisforskot á suma af helstu keppinautum sínum. Innherji 17.10.2024 14:55 Sækja um leyfi á Möltu Flugfélagið Play hefur sótt um flugrekstrarleyfi á Möltu og ætlar að draga verulega úr umsvifum tengiflugs á milli Norður-Ameríku og Evrópu. Meiri fókus verði settur á sólarlandaáfangastaði frá Íslandi. Eftir breytingarnar verða um sex til sjö vélar staðsettar á Íslandi á íslenska flugrekstrarleyfinu og þrjár til fjórar erlendis. Viðskipti innlent 16.10.2024 16:57 Stjórnarslit og frestun á bankasölu muni hafa lítil áhrif á skuldabréfamarkaðinn Stjórnarslitin munu hafa lítil áhrif á þróunina á skuldabréfamarkaði á næstu misserum, að sögn sjóðstjóra, sem bendir á að slík niðurstaða sé búin að vera í kortunum í talsverðan tíma og hafi því ekki átt að koma fjárfestum á óvart. Verðbólguálagið lækkaði nokkuð á markaði í dag sem kann að vera vísbending um að skuldabréfafjárfestar vænti þess að áformað frumvarp um olíu- og kílómetragjald muni verða að veruleika. Innherji 14.10.2024 17:11 Krónan styrkist þegar ríkisbréfin komust á radarinn hjá erlendum sjóðum Eftir að hafa styrkst um meira en þrjú prósent á örfáum vikum er gengi krónunnar núna nálægt sínu hæsta gildi á móti evrunni á þessu ári. Krónan veiktist nokkuð skarpt í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, en nú hefur sú þróun snúist við samhliða því að erlendir sjóðir hafa verið að sýna íslenskum ríkisbréfum aukinn áhuga, að sögn sérfræðinga á markaði. Innherji 9.10.2024 10:07 Telur „töluverða“ orðsporsáhættu fyrir Eik að fara í útleigu á íbúðarhúsnæði Stjórn Eikar telur að gengið í yfirtökutilboði Langasjávar í allt hlutafé fyrirtækisins sé of lágt, meðal annars á grundvelli greininga frá óháðum aðilum sem verðmeta það á tugprósenta hærra verði, enda þótt það sé „nokkur samhljómur“ í áformum fjárfestingafélagsins og Eikar. Stjórnin leggst gegn hugmyndum um að Eik fari í útleigu húsnæðis til almennings en arðsemi ef slíkri starfsemi sé „mun lægri“ og henni fylgi orðsporsáhætta sem gæti dregið úr áhuga sumra fjárfesta á félaginu. Innherji 8.10.2024 12:36 Augljós tækifæri Oculis Takmörkuð þekking er meðal markaðsaðila hér á landi á sérhæfðum líftæknifyrirtækjum eins og Oculis. Það hefur því verið krefjandi verkefni fyrir stjórnendur fyrirtækisins að miðla skýrri fjárfestasögu hér á landi. Það eru líklega fáir sem átta sig á því að markaðsvirði Oculis er um þrisvar sinnum hærra en Símans, ríflega þriðjungi meira en Eimskips og sambærilegt virði Kviku banka. Umræðan 8.10.2024 07:02 Oculis á mikilli siglingu og Kauphöllin iðagræn Hlutabréfaverð augnlyfjafyrirtækisins Oculis heldur áfram að hækka og tók stökk upp á 8,72 prósent í dag. Gengi Play hækkaði þó enn meira en það í örviðskiptum upp á fimm milljónir króna. Viðskipti innlent 7.10.2024 17:02 Mikill fjöldi bílastæða í eigu Heima gæti verið „ósnert auðlind“ Reksturinn hefur gengið „smurt fyrir sig“ hjá Heimum að undanförnu, að sögn hlutabréfagreinenda, en verðmatsgengi fyrirtækisins hefur verið hækkað lítillega og er núna talsvert umfram markaðsgengi. Markaðsvirði Heima, rétt eins og annarra skráðra fasteignafélaga, er samt enn mjög lágt í samanburði við bókfært virði eigna en hlutabréfaverðið hefur núna rokið upp um liðlega fjórðung á skömmum tíma. Innherji 4.10.2024 16:09 Tekist að hefja vaxtalækkunarferlið án þess að búa til of miklar væntingar Markaðir brugðust við með afgerandi hætti eftir nokkuð óvænta vaxtalækkun Seðlabankans í morgun en hlutabréfaverð flestra félaga hækkaði skarpt og ávöxtunarkrafa stuttra ríkisbréfa lækkaði talsvert. Flestir markaðsaðilar vænta þess að peningastefnunefndin muni fylgja lækkuninni eftir með stærra skrefi í næsta mánuði – 50 punkta lækkun eða meira – en með ákvörðuninni í morgun sýndi Seðlabankinn framsýni með því að senda merki um að hann sé ekki fastur að horfa í „baksýnisspegilinn,“ að mati fjárfestis á skuldabréfamarkaði. Innherji 2.10.2024 16:37 Gengið frá sölu á hluta Endor Sýn hf. og Hexatronic hafa undirritað kaupsamning um hluta af starfsemi Endor ehf. en áður hafði verið tilkynnt um viljayfirlýsingu um kaup Hexatronic á erlendri starfsemi Endor. Viðskipti innlent 1.10.2024 16:23 Kvartar til FDA og telur að Samsung eigi ekki að fá útskiptileika við Stelara Alvotech hefur sent inn kvörtun til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna vegna hliðstæðu keppinautarins Samsung Bioepis við Stelara, eitt mesta selda lyf í heimi, sem íslenska líftæknilyfjafélagið telur að uppfylli ekki kröfur til að fá heimild fyrir útskiptileika. Samsung er eitt af fjórum fyrirtækjum sem hefur sett stefnuna á hliðstæðumarkað með Stelara í upphafi næsta árs en fái félagið ekki útskiptileika er sennilegt að það muni koma verulega niður á möguleikum þess að keppa um hlutdeild við sölu á lyfinu. Innherji 1.10.2024 11:14 Virði hlutabréfa á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði ekki hærra síðan í febrúar Talsverð hækkun var í september á hlutfalli virðis á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði Úrvalsvísitölunnar. Hefur hlutfallið ekki verið hærra síðan í febrúar en hækkunin gerist á sama tíma og ávöxtunarkrafa óverðtryggðra ríkisbréfa hefur farið ört lækkandi. Umræðan 1.10.2024 07:54 Lækkar verðmat sitt á Eik en er samt talsvert yfir tilboðsverði Langasjávar Dekkri rekstraráætlun og lakari sjóðstaða þýðir að verðmatsgengi á Eik hefur verið lækkað nokkuð frá fyrra mati, samkvæmt nýrri hlutabréfagreiningu, en þrátt fyrir það er fasteignafélagið metið á tugprósenta hærra verði borið saman við gildandi yfirtökutilboð Langasjávar í alla útistandandi hluti. Hlutabréfaverð Eikar hækkaði skarpt í Kauphöllinni í dag og er núna um tíu prósentum yfir tilboðsverði fjárfestingafélagsins. Innherji 30.9.2024 17:20 Markaðir rjúka upp eftir að verðbólgan lækkaði meira en væntingar voru um Hlutabréfaverð flestra félaga hefur rokið upp í Kauphöllinni og verðbóluálagið á skuldabréfamarkaði lækkað skarpt vegna væntinga fjárfesta um að það sé að styttast í vaxtalækkunarferli Seðlabankans eftir nýjar verðbólgutölur sem birtust í morgun. Tólf mánaða verðbólgan hjaðnaði niður í 5,4 prósent í september, mun meira en spár gerðu ráð fyrir, en peningastefnunefnd mun birta næstu vaxtaákvörðun sína eftir fimm daga. Innherji 27.9.2024 10:35 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 79 ›
Umframfé Arion banka gæti brátt numið yfir tuttugu milljörðum Þrátt fyrir talsverðar niðurfærslur á lánum þá var hagnaður Arion banka á þriðja fjórðungi, einkum vegna sögulega sterkrar afkomu af tryggingarekstrinum, vel umfram spár greinenda og ekki útséð með að bankinn geti náð arðsemismarkmiði sínu á árinu. Með innleiðingu á nýju bankaregluverki í upphafi nýs ár er áætlað að umfram eigið fé Arion, sem er núna talið vera allt að tuttugu milljarðar, aukist um liðlega fimm milljarða til viðbótar. Innherji 31.10.2024 13:02
Kílómetragjaldið fer inn í vísitöluna og krafa verðtryggðra ríkisbréfa lækkar Fyrirhuguð upptaka kílómetragjalds á öll ökutæki í staðinn fyrir olíugjald verður tekið með í útreikninga á vísitöluneysluverðs, staðfestir Hagstofan, en óvissa hefur verið meðal markaðsaðila hvernig stofnunin myndi meðhöndla útfærslu á þeirri breytingu. Ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa hefur lækkað skarpt í morgun þar sem nú er ljóst að mæld verðbólga verður hærri en ella í upphafi næsta árs vegna ákvörðunar Hagstofunnar. Innherji 30.10.2024 11:15
Telur æskilegt að lífeyrissjóðir beiti sér líkt og aðrir fjárfestar í skráðum félögum Seðlabankinn er þeirrar skoðunar að það sé „æskilegt“ að lífeyrissjóðir, sem eru langsamlega stærstu fjárfestarnir á innlendum verðbréfamarkaði, beiti áhrifum sínum sem hluthafar í skráðum félögum í Kauphöllinni líkt og aðrir fjárfestar. Bankinn brýnir hins vegar fyrir lífeyrissjóðunum mikilvægi þess að stjórnarmenn séu sjálfstæðir í störfum sínum og eigi að gæta að hagsmunum sjóðsfélaga við að „hámarka ávöxtun eigna.“ Innherji 27.10.2024 13:42
Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Gengi bréfa í Play féll um tæp þrettán prósent í dag og verð á bréfum í félaginu er nú 0,82 krónur á hlut. Sú var staðan þegar lokað var fyrir viðskipti með bréf í Kauphöllinni á fjórða tímanum í dag. Í gær birti félagið uppgjör þar sem kom fram að hagnaður á þriðja ársfjórðungi hefði dregist saman um þriðjung milli ára. Forstjóri félagsins kynnti grundvallarbreytingar á rekstrarmódeli félagsins á fundi í gær. Viðskipti innlent 25.10.2024 16:45
Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Flugfélagið Play hagnaðist um hálfan milljarð króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um 724 milljónir króna. Félagið skoðar nú að ráðast í hlutafjáraukningu og eftir atvikum sækja fjármögnun í tengslum við nýtt flugrekstrarleyfi. Viðskipti innlent 24.10.2024 16:32
Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Flugfélagið Play boðar til fundar í Sykursalnum í Vatnsmýrinni þar sem afkoma þriðja ársfjórðungs verður kynnt. Þá verður farið nánar yfir þegar tilkynntar grundvallarbreytingar sem til stendur að gera á rekstrarmódeli félagsins. Sýnt verður frá fundinum hér á Vísi. Viðskipti innlent 24.10.2024 15:34
Seðlabankinn vill skoða að heimila lífeyrissjóðum að lána verðbréf Hægt væri að auka skilvirkni og dýpt verðbréfamarkaða hér á landi með því að veita íslenskum lífeyrissjóðum, langsamlega stærstu fjárfestunum á markaði, frekari heimildir til afleiðuviðskipta og jafnframt leyfa þeim að lána hlutabréf eða skuldabréf sín, að sögn Seðlabankans. Vegna stærðar sinnar getur hegðun lífeyrissjóða heft „veruleg áhrif“ á verðmyndun á markaði og því sé jákvætt fyrir fjármálastöðuga að skoða leiðir sem gætu aukið þátttöku annarra fjárfesta. Innherji 24.10.2024 10:25
Afkoma Icelandair var vel undir spám greinenda og gengið lækkaði skarpt Minni eftirspurn á markaðnum til Íslands og lægri meðalfargjöld á flugi yfir Atlantshafið veldur því að rekstrarhagnaður Icelandair af farþegafluginu hefur skroppið saman um tæplega níutíu prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Uppgjör Icelandair fyrir þriðja fjórðung var nokkuð undir væntingum greinenda og fjárfesta en félagið sér fram á verulega bætta afkomu á næsta fjórðungi miðað við sama tíma í fyrra og horfurnar fyrir 2025 séu góðar samhliða því að sumir keppinautar eru að draga saman seglin. Innherji 23.10.2024 18:16
Búast við að klára samrunann við Marel í árslok nú þegar styttist í samþykki ESB Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú gefið til kynna að hún sé reiðubúin að taka á móti formlegi tilkynningu vegna samruna John Bean Technologies (JBT) og Marel en stjórnendur bandaríska félagsins telja að yfirlýst áform um að klára viðskiptin undir árslok eigi að ganga eftir. Hlutabréfaverð JBT hefur rokið upp eftir að afkoman á þriðja ársfjórðungi var yfir væntingum greinenda en félagið skilaði mettekjum og framlegðin batnaði sömuleiðis verulega. Innherji 23.10.2024 13:40
Hluturinn í Controlant er „stærsta óvissan“ í eignasafni Sjóvá Ef Sjóvá hefði vitað um þau viðbótarréttindi sem fjárfestar fengu við útboð Controlant í árslok 2023, sem ver þá fyrir umtalsverðri gengislækkun í yfirstandandi hlutafjáraukningu, þá hefði tryggingafélagið ekki bókfært virði hlutarins hjá sér miðað við gengið 105 krónur á hlut, segir forstöðumaður fjárfestinga. Stjórnendur Sjóvá merkja aukna samkeppni í tryggingarstarfseminni eftir að einn af keppinautum félagsins, VÍS, sameinaðist Fossum fjárfestingabanka. Innherji 22.10.2024 14:03
Hagar færa út kvíarnar og kaupa færeyskt verslunarfélag fyrir um níu milljarða Smásölurisinn Hagar hefur náð samkomulagi við eigendur verslunarfélagsins P/F SMS í Færeyjum, sem rekur meðal annara átta Bónusverslanir, fyrir jafnvirði meira en níu milljarða króna í því skyni að auka umsvif félagsins í dagvöruverslun. Hinir færeysku eigendur SMS fá að hluta greitt með bréfum í Högum en fjárfestar taka vel í tíðindin og hlutabréfaverðið hækkað skarpt í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni. Innherji 22.10.2024 10:15
Oculis rauk upp eftir tilkynningu Gengi hlutabréfa augnlyfjafyrirtækisins Oculis rauk upp um tæplega tíu prósent í dag. Í morgun tilkynnti félagið að innritunum þátttakenda í rannsóknum á lyfinu OCS-01 hefði verið flýtt verulega. Viðskipti innlent 21.10.2024 16:00
Endurtekin tilboðsskylda – brýn minnihlutavernd eða óþarfa hömlur? Reglur um yfirtökur á hlutabréfamörkuðum hafa það hlutverk að meginstefnu til að vernda hagsmuni minnihlutahluthafa við þær aðstæður þegar fjárfestir, einn eða í samstarfi við aðra, öðlast ráðandi hlut í félagi. Reglurnar gefa slíkum hluthöfum kost á því að losa sig út úr félagi á fyrir fram ákveðnu og sanngjörnu verði kjósi þeir svo. Allur gangur er hins vegar á því með hvaða hætti ríki útfæra þessar reglur og hve strangar þær eru. Umræðan 21.10.2024 12:56
Telur ókosti kauprétta hvað þeir geta verið „ófyrirsjáanlegir“ í niðurstöðum Lífeyrissjóðurinn Gildi lagðist gegn kaupréttaráætlun sem var samþykkt á hluthafafundi Reita, rétt eins og sjóðurinn hefur gert í tilfelli annarra félaga að undanförnu, og vill að skoðaðar séu aðrar leiðir en kaupréttir þegar komið er á langtímahvatakerfi fyrir lykilstjórnendur. Gildi er langsamlega stærsti hluthafinn í Reitum, með um nítján prósenta hlut, en sá næst stærsti – Lífeyrissjóður verslunarmanna – studdi hins vegar tillögu stjórnar fasteignafélagsins um kaupréttarkerfið. Innherji 20.10.2024 13:32
„Hraustleg lækkun“ á vanmati félaga eftir að markaðurinn tók loksins við sér Eftir dræman árangur í samanburði við flesta erlenda hlutabréfamarkaði um nokkurt skeið hefur íslenski markaðurinn, einkum núna þegar vaxtalækkunarferlið er farið af stað, loksins tekið við sér og það er margt sem vinnur með honum um þessar mundir, að mati hlutabréfagreinenda. Hækkandi hlutabréfaverð kemur hins vegar á sama tíma og það er að draga úr samkeppnishæfni Íslands eftir miklar launahækkanir og gengisstyrkingu á undanförnum árum. Innherji 19.10.2024 13:13
Play í frjálsu falli Hlutabréfaverð flugfélagsins Play er í frjálsu falli eftir tilkynningu um breytingu á rekstrarformi félagsins í vikunni. Einn af fjórum stærstu hluthöfum félagsins seldi 71 milljón hluta í morgun á genginu ein króna á hlut. Dagslokagengið á miðvikudag var 1,92 krónur. Viðskipti innlent 18.10.2024 11:49
Tiltrú fjárfesta mun aukast þegar það fæst betri innsýn í sölutekjur Alvotech Fjárfestar bíða eftir að fá betri innsýn í tekjurnar vegna sölu á hliðstæðulyfi Alvotech við Humira í Bandaríkjunum, að mati fjárfestingabankans Barclays, en það hefur ráðið hvað mestu um að hlutabréfaverð félagsins er enn talsvert undir hæstu gildum fyrr á árinu. Greinendur bankans, sem segjast „sannfærðir“ um að Alvotech verði einn af þremur risunum á heimsvísu á sviði líftæknilyfja, álíta að uppgjör næstu mánaða muni auka tiltrú og traust markaðarins á tekjuáætlunum þess og nefna eins að með sérhæfðri lyfjaverksmiðju sé félagið með samkeppnisforskot á suma af helstu keppinautum sínum. Innherji 17.10.2024 14:55
Sækja um leyfi á Möltu Flugfélagið Play hefur sótt um flugrekstrarleyfi á Möltu og ætlar að draga verulega úr umsvifum tengiflugs á milli Norður-Ameríku og Evrópu. Meiri fókus verði settur á sólarlandaáfangastaði frá Íslandi. Eftir breytingarnar verða um sex til sjö vélar staðsettar á Íslandi á íslenska flugrekstrarleyfinu og þrjár til fjórar erlendis. Viðskipti innlent 16.10.2024 16:57
Stjórnarslit og frestun á bankasölu muni hafa lítil áhrif á skuldabréfamarkaðinn Stjórnarslitin munu hafa lítil áhrif á þróunina á skuldabréfamarkaði á næstu misserum, að sögn sjóðstjóra, sem bendir á að slík niðurstaða sé búin að vera í kortunum í talsverðan tíma og hafi því ekki átt að koma fjárfestum á óvart. Verðbólguálagið lækkaði nokkuð á markaði í dag sem kann að vera vísbending um að skuldabréfafjárfestar vænti þess að áformað frumvarp um olíu- og kílómetragjald muni verða að veruleika. Innherji 14.10.2024 17:11
Krónan styrkist þegar ríkisbréfin komust á radarinn hjá erlendum sjóðum Eftir að hafa styrkst um meira en þrjú prósent á örfáum vikum er gengi krónunnar núna nálægt sínu hæsta gildi á móti evrunni á þessu ári. Krónan veiktist nokkuð skarpt í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, en nú hefur sú þróun snúist við samhliða því að erlendir sjóðir hafa verið að sýna íslenskum ríkisbréfum aukinn áhuga, að sögn sérfræðinga á markaði. Innherji 9.10.2024 10:07
Telur „töluverða“ orðsporsáhættu fyrir Eik að fara í útleigu á íbúðarhúsnæði Stjórn Eikar telur að gengið í yfirtökutilboði Langasjávar í allt hlutafé fyrirtækisins sé of lágt, meðal annars á grundvelli greininga frá óháðum aðilum sem verðmeta það á tugprósenta hærra verði, enda þótt það sé „nokkur samhljómur“ í áformum fjárfestingafélagsins og Eikar. Stjórnin leggst gegn hugmyndum um að Eik fari í útleigu húsnæðis til almennings en arðsemi ef slíkri starfsemi sé „mun lægri“ og henni fylgi orðsporsáhætta sem gæti dregið úr áhuga sumra fjárfesta á félaginu. Innherji 8.10.2024 12:36
Augljós tækifæri Oculis Takmörkuð þekking er meðal markaðsaðila hér á landi á sérhæfðum líftæknifyrirtækjum eins og Oculis. Það hefur því verið krefjandi verkefni fyrir stjórnendur fyrirtækisins að miðla skýrri fjárfestasögu hér á landi. Það eru líklega fáir sem átta sig á því að markaðsvirði Oculis er um þrisvar sinnum hærra en Símans, ríflega þriðjungi meira en Eimskips og sambærilegt virði Kviku banka. Umræðan 8.10.2024 07:02
Oculis á mikilli siglingu og Kauphöllin iðagræn Hlutabréfaverð augnlyfjafyrirtækisins Oculis heldur áfram að hækka og tók stökk upp á 8,72 prósent í dag. Gengi Play hækkaði þó enn meira en það í örviðskiptum upp á fimm milljónir króna. Viðskipti innlent 7.10.2024 17:02
Mikill fjöldi bílastæða í eigu Heima gæti verið „ósnert auðlind“ Reksturinn hefur gengið „smurt fyrir sig“ hjá Heimum að undanförnu, að sögn hlutabréfagreinenda, en verðmatsgengi fyrirtækisins hefur verið hækkað lítillega og er núna talsvert umfram markaðsgengi. Markaðsvirði Heima, rétt eins og annarra skráðra fasteignafélaga, er samt enn mjög lágt í samanburði við bókfært virði eigna en hlutabréfaverðið hefur núna rokið upp um liðlega fjórðung á skömmum tíma. Innherji 4.10.2024 16:09
Tekist að hefja vaxtalækkunarferlið án þess að búa til of miklar væntingar Markaðir brugðust við með afgerandi hætti eftir nokkuð óvænta vaxtalækkun Seðlabankans í morgun en hlutabréfaverð flestra félaga hækkaði skarpt og ávöxtunarkrafa stuttra ríkisbréfa lækkaði talsvert. Flestir markaðsaðilar vænta þess að peningastefnunefndin muni fylgja lækkuninni eftir með stærra skrefi í næsta mánuði – 50 punkta lækkun eða meira – en með ákvörðuninni í morgun sýndi Seðlabankinn framsýni með því að senda merki um að hann sé ekki fastur að horfa í „baksýnisspegilinn,“ að mati fjárfestis á skuldabréfamarkaði. Innherji 2.10.2024 16:37
Gengið frá sölu á hluta Endor Sýn hf. og Hexatronic hafa undirritað kaupsamning um hluta af starfsemi Endor ehf. en áður hafði verið tilkynnt um viljayfirlýsingu um kaup Hexatronic á erlendri starfsemi Endor. Viðskipti innlent 1.10.2024 16:23
Kvartar til FDA og telur að Samsung eigi ekki að fá útskiptileika við Stelara Alvotech hefur sent inn kvörtun til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna vegna hliðstæðu keppinautarins Samsung Bioepis við Stelara, eitt mesta selda lyf í heimi, sem íslenska líftæknilyfjafélagið telur að uppfylli ekki kröfur til að fá heimild fyrir útskiptileika. Samsung er eitt af fjórum fyrirtækjum sem hefur sett stefnuna á hliðstæðumarkað með Stelara í upphafi næsta árs en fái félagið ekki útskiptileika er sennilegt að það muni koma verulega niður á möguleikum þess að keppa um hlutdeild við sölu á lyfinu. Innherji 1.10.2024 11:14
Virði hlutabréfa á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði ekki hærra síðan í febrúar Talsverð hækkun var í september á hlutfalli virðis á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði Úrvalsvísitölunnar. Hefur hlutfallið ekki verið hærra síðan í febrúar en hækkunin gerist á sama tíma og ávöxtunarkrafa óverðtryggðra ríkisbréfa hefur farið ört lækkandi. Umræðan 1.10.2024 07:54
Lækkar verðmat sitt á Eik en er samt talsvert yfir tilboðsverði Langasjávar Dekkri rekstraráætlun og lakari sjóðstaða þýðir að verðmatsgengi á Eik hefur verið lækkað nokkuð frá fyrra mati, samkvæmt nýrri hlutabréfagreiningu, en þrátt fyrir það er fasteignafélagið metið á tugprósenta hærra verði borið saman við gildandi yfirtökutilboð Langasjávar í alla útistandandi hluti. Hlutabréfaverð Eikar hækkaði skarpt í Kauphöllinni í dag og er núna um tíu prósentum yfir tilboðsverði fjárfestingafélagsins. Innherji 30.9.2024 17:20
Markaðir rjúka upp eftir að verðbólgan lækkaði meira en væntingar voru um Hlutabréfaverð flestra félaga hefur rokið upp í Kauphöllinni og verðbóluálagið á skuldabréfamarkaði lækkað skarpt vegna væntinga fjárfesta um að það sé að styttast í vaxtalækkunarferli Seðlabankans eftir nýjar verðbólgutölur sem birtust í morgun. Tólf mánaða verðbólgan hjaðnaði niður í 5,4 prósent í september, mun meira en spár gerðu ráð fyrir, en peningastefnunefnd mun birta næstu vaxtaákvörðun sína eftir fimm daga. Innherji 27.9.2024 10:35