Lyf Viðræðum slitið um samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar Viðræðum Samkaupa og Skeljar fasteignarfélags um samruna Samkaupa og dótturfélaga Skeljar, Heimkaupa og Orkunnar, hefur verið slitið. Áhyggjur af yfirstandandi rannsókn ESA á Skel hafi haft áhrif á slitin. Viðskipti innlent 30.10.2024 18:24 Oculis rauk upp eftir tilkynningu Gengi hlutabréfa augnlyfjafyrirtækisins Oculis rauk upp um tæplega tíu prósent í dag. Í morgun tilkynnti félagið að innritunum þátttakenda í rannsóknum á lyfinu OCS-01 hefði verið flýtt verulega. Viðskipti innlent 21.10.2024 16:00 Samþykktu hlutafjárhækkun til að verja tiltekna fjárfesta fyrir gengislækkun Mikill meirihluti hluthafa samþykkti tillögu stjórnar Controlant um að fara meðal annars í hlutafjárhækkun í því skyni að gefa út uppbótarhluti til að verja þá fjárfesta, einkum lífeyrissjóði, sem höfðu komið inn í síðasta útboði fyrir þeirri miklu gengislækkun sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Útlit er fyrir að sömu lífeyrissjóðir muni leggja til um þriðjunginn af þeirri fjárhæð sem Controlant hyggst sækja sér í nýtt hlutafé á næstu vikum. Innherji 18.10.2024 13:23 „Nauðsynlegt að bregðast við“ en aðgerðum fækkar Fjármagn streymir úr landi í tengslum við efnaskiptaaðgerðir. Á sama tíma og heilbrigðisyfirvöld segja nauðsynlegt að takast á við offituvandann eru slíkar aðgerðir á íslenskri einkastofu ekki niðurgreiddar. Innlent 17.10.2024 23:00 Lyfjaávísanir um 20 lækna til rannsóknar hjá landlæknisembættinu Lyfjaávísanir um það bil 20 lækna eru til rannsóknar hjá landlæknisembættinu og hafa viðkomandi annað hvort fengið sent bréf frá embættinu eða eiga von á bréfi, þar sem þeim gefst kostur á andsvörum. Innlent 17.10.2024 07:37 Fordæmalaus húsleit þegar ESA beitti sjálfstæðum valdheimildum sínum Fyrirvaralaus athugun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) hjá fjárfestingafélaginu Skel í tengslum við meinta markaðsskiptingu á smásölumarkaði með lyf, fyrsta slíka aðgerðin sem ráðist hefur verið í hér á landi, kemur um einu ári eftir að málinu lauk með úrskurði áfrýjunarnefndar Samkeppnismála. Húsleit ESA, framkvæmd í gær og fjöldi manns kom að, er gerð í samræmi við ákvæði samkeppnislaga um sjálfstæða heimild stofnunarinnar til að framfylgja samkeppnisreglum EES-samningsins á Íslandi – og þarf hún ekki til þess úrskurð dómstóla. Innherji 15.10.2024 14:20 Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Forstjóri hjá Skel fjárfestingafélagi hafnar því að Lyfjaval hafi brotið samkeppnisreglur, með því að einbeita sér í auknum mæli að rekstri bílaapóteka. Ráðist var í athugun hjá félaginu í gær, vegna gruns um markaðsskiptingu. Viðskipti innlent 15.10.2024 12:06 Vonast til að fleiri fái niðurgreiðslu á sprautunni Kona sem sprautar sig með þyngdarstjórnunarlyfinu Wegovy vill að lyfið verði niðurgreitt í meira mæli. Hún fær enga niðurgreiðslu og sér fram á að borga rúmlega 300 þúsund á ári fyrir lyfið. Innlent 11.10.2024 22:04 Að meðhöndla eðlilegar tilfinningar með lyfjum Í umfjöllun undanfarna daga hefur komið fram að um 15-20% lyfjanotkunar hér á landi sé óþörf. Óljóst er hversu stór hluti þessara lyfja eru geð- eða róandi lyf en ljóst að það hlutfall er líklega töluvert. Skoðun 11.10.2024 15:32 Útlit fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um nærri sextíu prósent Mun meiri samdráttur en áður var áætlað í verkefnum tengdum dreifingu á bóluefnum gegn Covid-19, ásamt því að hægar hefur gengið að klára samninga við nýja viðskiptavini, veldur því að útlit er fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um hátt sextíu prósent á þessu ári. Samkvæmt tekjuspám sem félagið hefur kynnt fjárfestum í aðdraganda mögulegrar hlutafjáraukningar mun taka um tvö til þrjú ár þangað til umsvifin verða á svipuðum slóðum og á tímum farsóttarinnar. Innherji 11.10.2024 12:41 Heimilislæknar upplifi stundum pressu á að skrifa lyfin út Dæmi eru um að heimilislæknar upplifi mikinn þrýsting frá skjólstæðingum um að fá þyngdarstjórnunarlyf uppáskrifuð. Þetta segir formaður Félags heimilislækna sem segir ásókn í lyfin gríðarlega og í samræmi við ákveðna hjarðhegðun Íslendinga. Innlent 9.10.2024 22:03 Lyfin hjálpi fólki í vandræðum en leysi ekki vandann Hátt í hundrað börn eru á þyngdarstjórnunarlyfjum. Barnalæknir sem hefur sérhæft sig í offitu segir þyngdarstjórnunarlyf ekki leysa offituvandann en þau hjálpi til. Innlent 9.10.2024 07:02 Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Læknir segir skynsamlegt að setja vinnureglur um hvenær skuli ávísa þyngdarstjórnunarlyfjum og hvenær ekki. Það muni taka nokkur ár í viðbót áður en góður skilningur fáist á langtímaávinningi og mögulegum aukaverkunum af lyfjunum. Innlent 8.10.2024 15:02 Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Sprenging hefur orðið í notkun þyngdarstjórnarlyfja á borð við Ozempic og Wegovy. Ætla má að þúsundir Íslendinga sprauti sig í von um að léttast. Lyfin eru sögð öflugt tól í baráttunni við offitu en aðgengi að þeim virðist stjórnlaust og læknir óttast misnotkun. Í Kompás skoðum við notkun þessara lyfja á Íslandi. Innlent 8.10.2024 07:02 Vilja klára stóra fjármögnun í aðdraganda mögulegra samninga við Novo Nordisk Controlant áformar að klára á næstu vikum allt að sjö milljarða króna fjármögnun, meðal annars með sölu á nýju hlutafé til núverandi og nýrra fjárfesta, í aðdraganda þess að tæknifyrirtækið vonast til að landa stórum samningi við danska lyfjarisann Novo Nordisk. Talsverður kurr er hjá sumum hluthöfum með að þeir fjárfestar sem komu inn í síðasta hlutafjárútboði Controlant, einkum lífeyrissjóðir, hafi fengið samþykkt sérstakt ákvæði sem ver þá gegn þeirri verulegu lækkun á hlutabréfaverði sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Innherji 7.10.2024 14:37 Læknir ávísaði lyfjum í nafni konu sem lést níu árum áður Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Landlæknis um að svipta lækni starfsleyfi. Læknirinn gaf út ávana- og fíknilyf í nafni látinnar konu í tæpan áratug. Innlent 1.10.2024 16:09 Ragnheiður Theodórs ein af fimm til PLAIO Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið PLAIO hefur ráðið til sín fimm starfsmenn, þvert á allar deildir fyrirtækisins. Markmiðið með ráðningunum er að styðja betur við innleiðingu nýrra viðskiptavina PLAIO, en þeim hefur fjölgað um 200% á undanförnum tólf mánuðum. Viðskipti innlent 1.10.2024 09:41 Af hverju vilja lyfjafyrirtæki ekki að lyfjahampur verði lögleiddur? Lyfjahampur, sem inniheldur kannabisefni eins og THC og CBD, hefur vaxið í vinsældum sem náttúruleg meðferð við mörgum sjúkdómum, þar á meðal langvinnum verkjum, gigt og flogaveiki. Hins vegar hafa mörg stór lyfjafyrirtæki sýnt minni áhuga á því að styðja lögleiðingu lyfjahamps, sem vekur upp spurningar um hver ástæðan sé á bak við þessa tregðu. Skoðun 23.9.2024 06:32 „Eins og eitt stórt þvagpróf af Reykjavík“ Fyrstu niðurstöður mælinga á ópíóíðum í fráveituvatni á Íslandi sýna að neysla þeirra er nokkuð jöfn alla daga vikunnar. Meiri sveiflur er að finna í neyslu á hefðbundnari vímuefnum eins og MDMA, kókaíni, amfetamíni og kannabis. Innlent 9.9.2024 09:01 Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ Ertu meðvirkur en nennir ekki sjálfsvinnu og löngu bataferli? Codapent er ný lyfjameðferð við meðvirkni. Á morgun verður borðið upp á heimakynningu á Codapent á Hamraborg Festival þar sem meðvirkir geta prófað meðferðina á eigin skinni. Menning 4.9.2024 08:02 Í lífshættu sextán ára en hefur öðlast nýtt líf með þyngdarstjórnunarlyfjum Sveinn Rúnar Sveinsson er með sjaldgæfan efnaskiptasjúkdóm. Sextán ára gamall var hann orðinn 140 kíló og fékk að heyra að ef hann héldi áfram á sömu braut myndi hann ekki lifa fram á fullorðinsár. Stuttu seinna byrjaði hann á þyngdarstjórnunarlyfinu Saxenda. Innlent 3.9.2024 08:59 Kvíðir vetrinum vegna alvarlegs lyfjaskorts Læknir hefur þungar áhyggjur af skorti á astmalyfjum fyrir ung börn, sem reiknað er með að verði viðvarandi næstu átta mánuði hið minnsta. Skorturinn gæti haft alvarlegar afleiðingar í vetur. Innlent 30.8.2024 20:02 Hundrað og fimmtíu missa vinnuna hjá Controlant Íslenska hátæknifyrirtækið Controlant hefur sagt upp 150 starfsmönnum, um þriðjungi starfsmanna, í hagræðingaraðgerðum. Nú starfa 290 manns hjá fyrirtækinu sem óx á ógnarhraða í heimsfaraldri með lykilhlutverk í dreifingu bóluefna. Viðskipti innlent 28.8.2024 09:34 Óttast aukna útbreiðslu sýklalyfjaónæmra lekandabaktería Heilbrigðisyfirvöld í Englandi hafa áhyggjur af fjölgun tilvika sýklalyfjaónæmra lekandasýkinga. Nokkrir hafa þurft að leggjast inn þar sem hefðbundin sýklalyf virkuðu ekki gegn sýkingunni. Erlent 15.8.2024 08:46 Tryggja sér 650 milljóna króna fjármögnun Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið PLAIO hefur tryggt sér fjármögnun upp á 4,3 milljóna evra, eða um 650 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 14.8.2024 11:02 Vonir bundnar við „heilagan kaleik“ við sykursýki týpu 1 Vísindamenn hafa þróað nýja tegund insúlíns sem bregst við breytingum á blóðsykursmagni líkamans í rauntíma. Vonir eru bundar við að einstaklingar með sykursýki muni í framtíðinni aðeins þurfa að taka insúlín einu sinni í viku. Erlent 12.8.2024 08:37 Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hafa staðfest aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi sem unnin var af þverfaglegum starfshópi heilbrigðisráðherra undir forystu Þórólfs Guðnasonar fyrrverandi sóttvarnalækni. Áætlunin felur í sér skilgreindar aðgerðir og verkefni sem ráðast þarf í, forgangsröðun þeirra og kostnaðarmat. Innlent 9.8.2024 13:27 Festi festi kaup á Lyfju Í dag fór fram uppgjör á greiðslu kaupverðs á öllu hlutafé Lyfju hf. til seljanda og er félagið þar með orðinn hluti af samstæðu Festi. Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi, segir þetta mikilvæg tímamót í vegferð Festis. Kaupverð nam 7.116 milljónum króna. Viðskipti innlent 10.7.2024 16:06 Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Stýrihópur Lyfjastofnunar Evrópu um lyfjaskort hefur gefið út tilmæli til að takast á við skort sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyfja í flokki GLP-1 viðtakaörva. Meðal slíkra lyfja er lyfið Ozempic. Skorturinn leiði til ólöglegrar starfsemi. Erlent 6.7.2024 16:30 Hefja innflutning á Ozempic til að bregðast við skorti Lyfjaver flytur inn Ozempic til að bregðast við skorti á lyfinu hér á landi undanfarið. Lyfjaver hefur haft markaðsleyfi fyrir Ozempic í rúm tvö ár en markaðsaðstæður hafi ekki þótt hagstæðar til innflutnings þar til nú. Innlent 27.6.2024 16:10 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 23 ›
Viðræðum slitið um samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar Viðræðum Samkaupa og Skeljar fasteignarfélags um samruna Samkaupa og dótturfélaga Skeljar, Heimkaupa og Orkunnar, hefur verið slitið. Áhyggjur af yfirstandandi rannsókn ESA á Skel hafi haft áhrif á slitin. Viðskipti innlent 30.10.2024 18:24
Oculis rauk upp eftir tilkynningu Gengi hlutabréfa augnlyfjafyrirtækisins Oculis rauk upp um tæplega tíu prósent í dag. Í morgun tilkynnti félagið að innritunum þátttakenda í rannsóknum á lyfinu OCS-01 hefði verið flýtt verulega. Viðskipti innlent 21.10.2024 16:00
Samþykktu hlutafjárhækkun til að verja tiltekna fjárfesta fyrir gengislækkun Mikill meirihluti hluthafa samþykkti tillögu stjórnar Controlant um að fara meðal annars í hlutafjárhækkun í því skyni að gefa út uppbótarhluti til að verja þá fjárfesta, einkum lífeyrissjóði, sem höfðu komið inn í síðasta útboði fyrir þeirri miklu gengislækkun sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Útlit er fyrir að sömu lífeyrissjóðir muni leggja til um þriðjunginn af þeirri fjárhæð sem Controlant hyggst sækja sér í nýtt hlutafé á næstu vikum. Innherji 18.10.2024 13:23
„Nauðsynlegt að bregðast við“ en aðgerðum fækkar Fjármagn streymir úr landi í tengslum við efnaskiptaaðgerðir. Á sama tíma og heilbrigðisyfirvöld segja nauðsynlegt að takast á við offituvandann eru slíkar aðgerðir á íslenskri einkastofu ekki niðurgreiddar. Innlent 17.10.2024 23:00
Lyfjaávísanir um 20 lækna til rannsóknar hjá landlæknisembættinu Lyfjaávísanir um það bil 20 lækna eru til rannsóknar hjá landlæknisembættinu og hafa viðkomandi annað hvort fengið sent bréf frá embættinu eða eiga von á bréfi, þar sem þeim gefst kostur á andsvörum. Innlent 17.10.2024 07:37
Fordæmalaus húsleit þegar ESA beitti sjálfstæðum valdheimildum sínum Fyrirvaralaus athugun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) hjá fjárfestingafélaginu Skel í tengslum við meinta markaðsskiptingu á smásölumarkaði með lyf, fyrsta slíka aðgerðin sem ráðist hefur verið í hér á landi, kemur um einu ári eftir að málinu lauk með úrskurði áfrýjunarnefndar Samkeppnismála. Húsleit ESA, framkvæmd í gær og fjöldi manns kom að, er gerð í samræmi við ákvæði samkeppnislaga um sjálfstæða heimild stofnunarinnar til að framfylgja samkeppnisreglum EES-samningsins á Íslandi – og þarf hún ekki til þess úrskurð dómstóla. Innherji 15.10.2024 14:20
Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Forstjóri hjá Skel fjárfestingafélagi hafnar því að Lyfjaval hafi brotið samkeppnisreglur, með því að einbeita sér í auknum mæli að rekstri bílaapóteka. Ráðist var í athugun hjá félaginu í gær, vegna gruns um markaðsskiptingu. Viðskipti innlent 15.10.2024 12:06
Vonast til að fleiri fái niðurgreiðslu á sprautunni Kona sem sprautar sig með þyngdarstjórnunarlyfinu Wegovy vill að lyfið verði niðurgreitt í meira mæli. Hún fær enga niðurgreiðslu og sér fram á að borga rúmlega 300 þúsund á ári fyrir lyfið. Innlent 11.10.2024 22:04
Að meðhöndla eðlilegar tilfinningar með lyfjum Í umfjöllun undanfarna daga hefur komið fram að um 15-20% lyfjanotkunar hér á landi sé óþörf. Óljóst er hversu stór hluti þessara lyfja eru geð- eða róandi lyf en ljóst að það hlutfall er líklega töluvert. Skoðun 11.10.2024 15:32
Útlit fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um nærri sextíu prósent Mun meiri samdráttur en áður var áætlað í verkefnum tengdum dreifingu á bóluefnum gegn Covid-19, ásamt því að hægar hefur gengið að klára samninga við nýja viðskiptavini, veldur því að útlit er fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um hátt sextíu prósent á þessu ári. Samkvæmt tekjuspám sem félagið hefur kynnt fjárfestum í aðdraganda mögulegrar hlutafjáraukningar mun taka um tvö til þrjú ár þangað til umsvifin verða á svipuðum slóðum og á tímum farsóttarinnar. Innherji 11.10.2024 12:41
Heimilislæknar upplifi stundum pressu á að skrifa lyfin út Dæmi eru um að heimilislæknar upplifi mikinn þrýsting frá skjólstæðingum um að fá þyngdarstjórnunarlyf uppáskrifuð. Þetta segir formaður Félags heimilislækna sem segir ásókn í lyfin gríðarlega og í samræmi við ákveðna hjarðhegðun Íslendinga. Innlent 9.10.2024 22:03
Lyfin hjálpi fólki í vandræðum en leysi ekki vandann Hátt í hundrað börn eru á þyngdarstjórnunarlyfjum. Barnalæknir sem hefur sérhæft sig í offitu segir þyngdarstjórnunarlyf ekki leysa offituvandann en þau hjálpi til. Innlent 9.10.2024 07:02
Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Læknir segir skynsamlegt að setja vinnureglur um hvenær skuli ávísa þyngdarstjórnunarlyfjum og hvenær ekki. Það muni taka nokkur ár í viðbót áður en góður skilningur fáist á langtímaávinningi og mögulegum aukaverkunum af lyfjunum. Innlent 8.10.2024 15:02
Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Sprenging hefur orðið í notkun þyngdarstjórnarlyfja á borð við Ozempic og Wegovy. Ætla má að þúsundir Íslendinga sprauti sig í von um að léttast. Lyfin eru sögð öflugt tól í baráttunni við offitu en aðgengi að þeim virðist stjórnlaust og læknir óttast misnotkun. Í Kompás skoðum við notkun þessara lyfja á Íslandi. Innlent 8.10.2024 07:02
Vilja klára stóra fjármögnun í aðdraganda mögulegra samninga við Novo Nordisk Controlant áformar að klára á næstu vikum allt að sjö milljarða króna fjármögnun, meðal annars með sölu á nýju hlutafé til núverandi og nýrra fjárfesta, í aðdraganda þess að tæknifyrirtækið vonast til að landa stórum samningi við danska lyfjarisann Novo Nordisk. Talsverður kurr er hjá sumum hluthöfum með að þeir fjárfestar sem komu inn í síðasta hlutafjárútboði Controlant, einkum lífeyrissjóðir, hafi fengið samþykkt sérstakt ákvæði sem ver þá gegn þeirri verulegu lækkun á hlutabréfaverði sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Innherji 7.10.2024 14:37
Læknir ávísaði lyfjum í nafni konu sem lést níu árum áður Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Landlæknis um að svipta lækni starfsleyfi. Læknirinn gaf út ávana- og fíknilyf í nafni látinnar konu í tæpan áratug. Innlent 1.10.2024 16:09
Ragnheiður Theodórs ein af fimm til PLAIO Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið PLAIO hefur ráðið til sín fimm starfsmenn, þvert á allar deildir fyrirtækisins. Markmiðið með ráðningunum er að styðja betur við innleiðingu nýrra viðskiptavina PLAIO, en þeim hefur fjölgað um 200% á undanförnum tólf mánuðum. Viðskipti innlent 1.10.2024 09:41
Af hverju vilja lyfjafyrirtæki ekki að lyfjahampur verði lögleiddur? Lyfjahampur, sem inniheldur kannabisefni eins og THC og CBD, hefur vaxið í vinsældum sem náttúruleg meðferð við mörgum sjúkdómum, þar á meðal langvinnum verkjum, gigt og flogaveiki. Hins vegar hafa mörg stór lyfjafyrirtæki sýnt minni áhuga á því að styðja lögleiðingu lyfjahamps, sem vekur upp spurningar um hver ástæðan sé á bak við þessa tregðu. Skoðun 23.9.2024 06:32
„Eins og eitt stórt þvagpróf af Reykjavík“ Fyrstu niðurstöður mælinga á ópíóíðum í fráveituvatni á Íslandi sýna að neysla þeirra er nokkuð jöfn alla daga vikunnar. Meiri sveiflur er að finna í neyslu á hefðbundnari vímuefnum eins og MDMA, kókaíni, amfetamíni og kannabis. Innlent 9.9.2024 09:01
Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ Ertu meðvirkur en nennir ekki sjálfsvinnu og löngu bataferli? Codapent er ný lyfjameðferð við meðvirkni. Á morgun verður borðið upp á heimakynningu á Codapent á Hamraborg Festival þar sem meðvirkir geta prófað meðferðina á eigin skinni. Menning 4.9.2024 08:02
Í lífshættu sextán ára en hefur öðlast nýtt líf með þyngdarstjórnunarlyfjum Sveinn Rúnar Sveinsson er með sjaldgæfan efnaskiptasjúkdóm. Sextán ára gamall var hann orðinn 140 kíló og fékk að heyra að ef hann héldi áfram á sömu braut myndi hann ekki lifa fram á fullorðinsár. Stuttu seinna byrjaði hann á þyngdarstjórnunarlyfinu Saxenda. Innlent 3.9.2024 08:59
Kvíðir vetrinum vegna alvarlegs lyfjaskorts Læknir hefur þungar áhyggjur af skorti á astmalyfjum fyrir ung börn, sem reiknað er með að verði viðvarandi næstu átta mánuði hið minnsta. Skorturinn gæti haft alvarlegar afleiðingar í vetur. Innlent 30.8.2024 20:02
Hundrað og fimmtíu missa vinnuna hjá Controlant Íslenska hátæknifyrirtækið Controlant hefur sagt upp 150 starfsmönnum, um þriðjungi starfsmanna, í hagræðingaraðgerðum. Nú starfa 290 manns hjá fyrirtækinu sem óx á ógnarhraða í heimsfaraldri með lykilhlutverk í dreifingu bóluefna. Viðskipti innlent 28.8.2024 09:34
Óttast aukna útbreiðslu sýklalyfjaónæmra lekandabaktería Heilbrigðisyfirvöld í Englandi hafa áhyggjur af fjölgun tilvika sýklalyfjaónæmra lekandasýkinga. Nokkrir hafa þurft að leggjast inn þar sem hefðbundin sýklalyf virkuðu ekki gegn sýkingunni. Erlent 15.8.2024 08:46
Tryggja sér 650 milljóna króna fjármögnun Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið PLAIO hefur tryggt sér fjármögnun upp á 4,3 milljóna evra, eða um 650 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 14.8.2024 11:02
Vonir bundnar við „heilagan kaleik“ við sykursýki týpu 1 Vísindamenn hafa þróað nýja tegund insúlíns sem bregst við breytingum á blóðsykursmagni líkamans í rauntíma. Vonir eru bundar við að einstaklingar með sykursýki muni í framtíðinni aðeins þurfa að taka insúlín einu sinni í viku. Erlent 12.8.2024 08:37
Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hafa staðfest aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi sem unnin var af þverfaglegum starfshópi heilbrigðisráðherra undir forystu Þórólfs Guðnasonar fyrrverandi sóttvarnalækni. Áætlunin felur í sér skilgreindar aðgerðir og verkefni sem ráðast þarf í, forgangsröðun þeirra og kostnaðarmat. Innlent 9.8.2024 13:27
Festi festi kaup á Lyfju Í dag fór fram uppgjör á greiðslu kaupverðs á öllu hlutafé Lyfju hf. til seljanda og er félagið þar með orðinn hluti af samstæðu Festi. Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi, segir þetta mikilvæg tímamót í vegferð Festis. Kaupverð nam 7.116 milljónum króna. Viðskipti innlent 10.7.2024 16:06
Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Stýrihópur Lyfjastofnunar Evrópu um lyfjaskort hefur gefið út tilmæli til að takast á við skort sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyfja í flokki GLP-1 viðtakaörva. Meðal slíkra lyfja er lyfið Ozempic. Skorturinn leiði til ólöglegrar starfsemi. Erlent 6.7.2024 16:30
Hefja innflutning á Ozempic til að bregðast við skorti Lyfjaver flytur inn Ozempic til að bregðast við skorti á lyfinu hér á landi undanfarið. Lyfjaver hefur haft markaðsleyfi fyrir Ozempic í rúm tvö ár en markaðsaðstæður hafi ekki þótt hagstæðar til innflutnings þar til nú. Innlent 27.6.2024 16:10