Innlent

Lokabaráttan fyrir kosningar í haust í Víglínunni

Heimir Már Pétursson skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra leggur fram frumvarp til breytinga á stjórnarskránni í vikunni. Þar er meðal annars lagt til að kjkörtímabil forseta Íslands verði lengt í sex ár og hver og einn geti aðeins setið á forsetastóli í tvö kjörtímabil.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra leggur fram frumvarp til breytinga á stjórnarskránni í vikunni. Þar er meðal annars lagt til að kjkörtímabil forseta Íslands verði lengt í sex ár og hver og einn geti aðeins setið á forsetastóli í tvö kjörtímabil. Stöð 2/Einar

Síðasta vorþing yfirstandandi kjörtímabils hefst á morgun og í vikunni mun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra leggja fram þingmannafrumvarp um breytingar á stjórnarskránni í fjórum aðalatriðum. Ólíktlegt er að það frumvarp nái fram að ganga í heild sinni en þetta var niðurstaða Katrínar eftir fjölda funda með formönnum annarra flokka á kjörtímabilinu í tilraun til að ná breiðri sátt um stjórnarskrárbreytingar.

Forsætisráðherra verður gestur Heimis Más Péturssonar fréttamanns í síðustu Víglínunni sem verður í opinni dagskrá klukkan 17:40 en á morgun verður Stöð 2 alfarið áskriftarstöð. Það eru mörg stór mál sem bíða afgreiðslu á komandi þingi.

Forsætisráðherra vonar að búið verði að bólusetja bróðurpart þjóðarinnar um mitt þetta ár.Stöð 2/Einar

Fyrir utan stjórnarskrárbreytingar verður frumvarp umhverfisráðherra um hálendisþjóðgarð að teljast með þeim umdeildustu en það eru fleiri mál undir. Þá verður rætt við forsætisráðherra um viðbrögð stjórnvalda við kórónuveirufaraldrinum á landamærunum en mörgum finnst að þar hefði mátt gera betur.

Í seinni hluta Víglínunnar mætast þeir Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar til að ræða meðal annars framboðsmál fyrir komandi alþingiskosningar í september.

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra og Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar ræða framboðsmál og aðgerðir ríkisstjórnarinnar.Stöð 2/Einar

Ásmundur Einar hefur ákveðið að flytja sig úr norðvesturkjördæmi og ætlar að bjóða sig fram í Reykjavík norður. En Framsóknarflokkurinn hefur átt erfitt uppdráttar í höfuborginni í undanförnum kosningum og littlu mátti muna að Lilja Alfreðsdóttir næði ekki á þing í Reykjavík suður í síðustu kosningum.

Þá hefur Samfylkingin farið óvenjulega leið til að velja frambjóðendur í Reykjavík. Flokksmenn þar gátu tilnefnt frambjóðendur sem síðan verður stillt upp á lista án þess að fylgi við hvern og einn þeirra verði opinberað.

Við ræðum þessi mál við þá Loga og Ásmund Einar en einnig frammistöðu ríkisstjórnarinnar á undanförnum árum. Ekki hvað síst í viðbrögðum við kórónuveirufaraldrinum.

Víglínan er í opinni dagskrá í dag á Stöð 2 og Vísi klukkan 17:40.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×