Viðskipti innlent

Hefja út­hlutun lóða í Vatnsendahvarfi

Árni Sæberg skrifar
Gert er ráð fyrir 500 íbúðum í hverfinu.
Gert er ráð fyrir 500 íbúðum í hverfinu. Nordic Office of Architecture

Opnað hefur verið fyrir tilboð í lóðir í fyrsta áfanga úthlutunar í Vatnsendahvarfi, sem er nýjasta hverfið í Kópavogi.

Í tilkynningu á vef Kópavogs segir að í þessum fyrsta áfanga verði sex lóðum fyrir fjölbýlishús úthlutað. Í hverfinu er gert ráð fyrir 500 íbúðum í fjölbýli, par- og raðhúsum og einbýli. Stefnt sé að því að úthluta öllum lóðum á árinu en í nokkrum áföngum.

„Það er gríðarlega spennandi að fá nýtt hverfi í Kópavoginn og við finnum að það er mikill áhugi, enda góð staðsetning á frábærum útsýnisstað í nálægð við mikla náttúrufegurð. Áhersla er lögð á fallega og umhverfisvæna byggð í Vatnsendahvarfi með góðum samgöngutengingum fyrir alla ferðamáta. Þá munu íbúar njóta góðs af þeirri þjónustu sem fyrir er í nærumhverfinu auk þess sem reistur verður leikskóli og grunnskóli fyrir 1. til 4. bekk í þessu nýja hverfi.“ er haft eftir Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs.

Byggð í Vatnsendahvarfi muni falla vel að nærliggjandi svæðum og gróður og náttúra fléttist inn í opin svæði hverfisins. Áhersla verði lögð á góðar samgöngutengingar fyrir gangandi, hjólandi og akandi vegfarendur.

Hverfið standi á Vatnsendahæð og afmarkist af Álfkonuhvarfi, Turnahvarfi, Kleifakór og Arnarnesvegi.

Opið sé fyrir tilboð í lóðir í fyrsta áfanga til 21.maí.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×