Lífið

„Euro­vision mamman“ með gleði og kær­leika að vopni

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hera Björk er einkar glæsileg í nýja samfestingnum.
Hera Björk er einkar glæsileg í nýja samfestingnum. Sarah Louise Bennett/EBU

Hera Björk Þórhallsdóttir fulltrúi Íslands í Eurovision í ár segist vel stemmd fyrir því að stíga á svið í Malmö í annað sinn í dag þegar önnur æfing íslenska atriðisins fer fram. Reynsla hennar í Eurovision vekur mikla athygli og er hún kölluð „Eurovision mamman“ af sumum úti. Hún segist ætla að einbeita sér að gleðinni en ekki neikvæðni.

„Það var rosalega gott að komast loksins á sviðið og máta það sem við erum búin að vera að spá og spegúlera og eiga samskipti um við Svíana í margar vikur,“ segir Hera Björk í samtali við Vísi um fyrstu æfingu hópsins sem fór fram á dögunum. Hera segir bætingar frekar en breytingar hafa orðið á atriðinu frá því í Söngvakeppninni í mars.

„Við erum að bæta inn nokkrum fídusum sem okkur stóðu bara ekki til boða á Íslandi og svona ljósavinnu og allskonar sem var ekkert í boði. Þannig við nýtum okkur það sem Svíarnir bjóða upp á og höfum bara gaman. Það eru náttúrulega töluvert fleiri takkar sem er hægt að ýta á þarna og fikta í,“ segir Hera hlæjandi.

Eins og að ganga með sandpoka í fanginu

Hera Björk klæðist gylltum samfestingi í atriðinu með perlukögum. Samfestingurinn er hannaður af Sylvíu Lovetank en hún hannaði líka kjólinn sem Hera var í í Söngvakeppninni. Efnið fann hún í London en um er að ræða gyllt perluefni.

„Þannig þetta er alveg svakalega sparklí á sviðinu og býr til þetta mikla endurkast. Þetta er líka mjög þungt, þetta er dálítið eins og að ganga með sandpoka í fanginu og míkrafón í hinni en þetta er svo gordjöss,“ segir Hera hlæjandi.

Hera glitrar svo sannarlega á sviðinu. Sarah Louise Bennett/EBU

Perlukögrið á samfestingnum vekur sömuleiðis mikla athygli. Hera segir það þyngra en ef það væri úr öðru efni og sveiflast því hægar um, líður í raun bara fram og til baka. Hún segist hlæjandi ekki alveg vera tilbúin til að fallast á að þetta sé nú eilítið kúrekalegt.

„Ég veit ekki hvort þetta sé kúrekalegt, ég myndi segja að þetta væri frekar gripið frá Egyptalandi og meira úr austri heldur en vestri. Við erum meira að fara í þessa átt sem drottningarnar voru í hérna í den, þá var voða mikið um svona perlukögur, þannig þetta er ekki kúrekakögur, þetta er meiri glam týpa,“ segir Hera létt í bragði.

Eurovision í fimmta sinn svo athygli vekur

Mikla athygli vekur erlendis að þetta er í fimmta sinn sem Hera tekur þátt í Eurovision. Hún keppti sjálf árið 2010 með framlaginu Ne ne sais quoi í Noregi og hefur fjórum sinnum verið í bakröddum. Ganga ýmsir svo langt að segja að Hera sé í raun hluti af hópi sem í er að finna þau sem eru „Eurovision konungborin.“

„Það er bara yndislegt. Sumir kalla mig mamma, Eurovision mamma og það er bara ennþá dásamlegra. Auðvitað bý ég að því að hafa verið viðloðin keppnina svona oft og þekkja fyriromulagið. Ég er bara frekar slök, ég bíð bara þar til mér er sagt að gera eitthvað og þá bara hlýði ég. Þetta er þétt dagskrá og maður verður bara að treysta fólkinu sínu sem maður er með, treysta ferlinu eins og maður segir.“

Gleði og ást frekar en ofbeldi og hatur

Rúnar Freyr Gíslason fararstjóri íslenska hópsins hefur áður sagt íslenska hópinn finna vel fyrir andstöðu frá Íslandi vegna þátttöku í keppninni í ár og vegna þátttöku Ísraels. Hera segist einbeita sér að því að sýna heiminum að betra sé að vera í sátt og samlyndi, í ást og gleði frekar en í ofbeldi, hatri og rifrildi.

„Við einbeitum okkur ekkert að því, það er enginn tími í það, enda erum við ekki komin hingað til þess. Við erum í rauninni komin til þess að gera hið andstæða, að reyna að halda gleðinni og kærleikanum á lofti og sýna þannig heiminum að það er betra að vera í sátt og samlyndi og gleði og ást heldur en í ofbeldi og hatri og rifrildi.“

Það sé ekki síst nauðsynlegt á tímum sem þessum. Þá segir Hera að Malmö sé yndisleg borg. Falleg og kósý en hún segist hafa heyrt frá mörgum íbúum sem séu sár yfir umtali um borgina, sem oft hefur verið neikvætt.

Í nítjánda sæti síðast og enn að

Veðbankar spá Heru og félögum ekki ýkja góðu gengi. Ísland situr raunar á botni undanriðilsins sem fram fer þriðjudaginn 7. maí og talið ólíklegasta landið af fimmtán til þess að komast í topp tíu og þar með á úrslitakvöldið. Hera segist ekkert velta sér upp úr því.

„Ég bíð bara eftir því að hinn almenni borgari í Evrópu setjist niður og fái sér popp og kók og Prins póló og kveiki á keppninni og svo kjósa þau bara með hjartanu. Við eigum öll jafnan möguleika en ég er vön þessari umræðu, þetta var líka svona þegar ég mætti síðast með Je ne sais quoi. Svo bara eiga allir sínar þrjár mínútur og við sjáum bara hvað gerist,“ segir Hera.

„Svo erum við líka bara komin hingað til þess að hittast og tala saman og mynda tengsl. Það er það sem Eurovision snýst fyrst og síðsat um, ekkert endilega um það í hvaða sæti maður lendir. Ég veit það manna best, ég var í nítjánda sæti síðast og ég er enn að.“


Tengdar fréttir

Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision

Hópur tónlistarmanna kemur fram á samstöðutónleikum með Gasa í Háskólabíó þann 7. maí klukkan 19.30. Á sama tíma keppir Ísland í fyrri undankeppni Eurovision í Malmö í Svíþjóð. Söngkonan Elísabet Eyþórsdóttir, Beta, er ein þeirra sem kemur að skipulagningu tónleikanna.

Gísli Marteinn lýsir ekki Eurovision í ár

Gísli Marteinn Baldursson mun ekki lýsa Eurovision söngvakeppninni í ár. Ástæðan er framganga Ísraels á Gasa og viðbrögð forsvarsmanna keppninnar við henni og skortur þar á.

Þórdís Lóa um Júró-umfjöllun: „Hvers vegna þessi þögn?“

Systir Heru Bjarkar furðar sig á því hve litla umfjöllun Eurovision-fararnir hafi fengið í ár. Áður hafi stórskemmtilegt myndefni af ferðalöngunum prýtt vef Ríkisútvarpsins. Athygli vakti í gær þegar framlag Ísraels hlaut eitt stig frá öllum dómurum Alla leið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×