Lífið

Gleði­tár hjá hundrað konum á Geysi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Elísabet og Sara Snædís skipulögðu sannkallaða dekurferð fyrir konur á Hótel Geysi liðna helgi.
Elísabet og Sara Snædís skipulögðu sannkallaða dekurferð fyrir konur á Hótel Geysi liðna helgi. Arna Petra

Sara Snædís Ólafsdóttir heilsuþjálfari og eigandi Withsara og Elísabet Gunnarsdóttir athafnakona sameinuðu krafta sína með skipulagningu á sólarhrings heilsuferð fyrir konur (e. Wellness Retreat) á Hótel Geysi síðastliðna helgi. Þær segjast hrærðar yfir viðbrögðunum sem fóru fram úr þeirra björtustu vonum.

Tæplega hundrað konur lögðu leið sína í Haukadal þar sem hreyfing, slökun og góður matur tók á móti þeim. Sara Snædís og Elísabet unnu hörðum höndum að því að gera upplifun kvennanna sem eftirminnilegasta.

Sara Snædís og Elísabet Gunnars eru sannakallað ofurteymi.Arna Petra

„Við Elísabet héldum í þetta ferðalag saman með ákveðna sýn og vorum frekar stórhuga. En að sjá verkefnið verða að veruleika og ná markmiðum okkar var draumi líkast. Við erum svo þakklátar og meirar yfir viðtökunum. Það var svo mikil gleði sem einkenndi þennan hóp og þakklæti. Að skilja við konurnar endurnærðar, fullar orku og glaðar með nánast tár í augunum. Þessi mikla gleði var í raun það besta sem við gátum hugsað okkur,“ segir Sara Snædís í samtali við Vísi. 

Dekur í sólarhring

Sara Snædís segir markmið ferðarinnar hafi verið að gera sem best við hverja og eina konu. Dagskráin var þétt skipuð með útiveru, styrktaræfingum, hugleiðslu, slökun, heilsusamlegum mat, fræðandi erindi og góðum félagsskap.

„Okkur langaði að þessi sólarhringsdvöl væri ein stór upplifun. Við lögðum upp úr því að það væri alltaf eitthvað nýtt að gerast inn á milli hvort sem það var í formi gjafa til kvennanna, hressingar eða æfingu hjá mér,“ segir Sara Snædís.

Arna Petra ljósmyndari var á svæðinu og myndaði herlegheitin.

Dvölin á hótel Geysi hófst á klukkutíma göngu um Haukadal.Arna Petra
Nöfnurnar Sara Regins og Sara Snædís.Arna Petra
Vinkonurnar Íris Dögg, Tinna, Andrea, Gerða og Aldís.Arna Petra
Göngutúr í fallegri náttúru.Arna Petra
Veglegir gjafapokar frá With Sara tók á móti konunum þar sem boðið var upp á heljarinnar dekur.Arna Petra
Arna Petra
Tímarnir fóru fram í stærðarinnar sal á hótel Geysi. Útsýnið úr rýminu var stórkostlegt, að Geysi og Haukadalsskógi.Arna Petra
Vinkonurnar Hrefna, Sara Snædís og Auður.Arna Petra
Arna Petra
Arna Petra
Arna Petra
Sara að gera það sem hún gerir best.Arna Petra
Arna Petra
Arna Petra
Sara Snædís, Elísabet og Elín Svafa, eigandi hótel Geysis á leið í þriggja rétt kvöldverð á veitingastað hótelsins.Arna Petra

Tengdar fréttir

„Oft sést ekki nógu vel út á við það sem gerist á bakvið tjöldin“

„Ég veit ekki hversu oft ég hef stigið út fyrir þægindarammann, gert hluti sem ég hefði aldrei þorað áður fyrr en lært að standa með mínu, hafa óbilandi trú á mínum boðskap og halda áfram sama hvað,“ segir Sara Snædís Ólafsdóttir, heilsuþjálfari og stofnandi Withsara.

Morgunrútína Söru Snædísar sem eykur afkastagetu og orku

Sara Snædís Ólafsdóttir, heilsuþjálfari og stofnandi Withsara, segist hafa tileinkað sér góða morgunrútínu til að viðhalda góðum venjum dag frá degi. Hún hafi í kjölfarið orðið afkastameiri, fundið fyrir jafnari orku og liðið almennt betur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×