Hlín í byrjunarliðinu er Piteå varð fyrsta liðið til að vinna Rosengård Hlín Eiríksdóttir var í byrjunarliði Piteå er liðið tók á móti Guðrúnu Arnardóttur og stöllum hennar í Rosengård í dag. Heimakonur unnu 2-1 sigur, en þetta var fyrsta tap Rosengård á tímabilinu. Fótbolti 19. ágúst 2022 18:16
Dagný í tíuna líkt og uppáhaldsleikmaður hennar þegar hún var yngri Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir hefur spilað í treyju númer 32 síðan hún gekk í raðir enska úrvalsdeildarliðsins West Ham United. Hún hefur ákveðið að breyta til og mun spila í tíunni í vetur en hennar uppáhaldsleikmaður er hún var yngri lék alltaf í treyju númer 10. Enski boltinn 19. ágúst 2022 16:31
Alexandra sögð á leið í ítalska félagið Fiorentina Íslenska landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir er búin að finna sér nýtt lið og það lið í Seríu A á Ítalíu. Fótbolti 19. ágúst 2022 15:24
Fylgist með þessum í vetur: Fáir leikmenn í heiminum sem eru betri að færa framherjum matinn sinn Serie A, ítalska úrvalsdeildin í fótbolta, er farin á fleygiferð. Hér að neðan má finna þrjá leikmenn sem hlaðvarpið Punktur og basta telur að allt áhugafólk um ítalskan fótbolta ætti að fylgjast sérstaklega vel með í vetur. Fótbolti 19. ágúst 2022 14:01
Karólína í raun verið meidd í heilt ár Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta varð fyrir miklu áfalli í aðdraganda leikjanna mikilvægu við Hvíta-Rússland og Holland þegar ljóst varð að Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, einn besti leikmaður liðsins á EM, yrði ekki með vegna meiðsla. Fótbolti 19. ágúst 2022 13:45
Hlín og Arna Sif valdar í landsliðið en Karólína Lea verður ekki með Íslenska landsliðið verður án eins síns besta leikmanns í leikjunum mikilvægu í undankeppni HM því Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er meidd og verður ekki með að þessu sinni. Fótbolti 19. ágúst 2022 13:08
Svona var fundurinn þegar Þorsteinn kynnti hópinn sem á að koma Íslandi á HM í fyrsta sinn Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, kynnti í dag leikmannahóp sinn fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni HM. Fótbolti 19. ágúst 2022 12:46
Stal rándýru úri Lewandowski úr farþegasætinu Pólski framherjinn Robert Lewandowski hefur nú flutt sig yfir til Barcelona frá München en hann lenti í leiðinlegu atviki þegar hann var fyrir utan æfingasvæði spænska félagsins á miðvikudaginn. Fótbolti 19. ágúst 2022 12:31
Réttarhöldin yfir Ryan Giggs: Átti erfitt með að svara spurningum saksóknara Níundi dagur réttarhaldanna yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, fór fram í gær. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi þau þrjú ár sem þau voru saman. Þá er hann sakaður um að hafa gefið Emmu Greville, systur Kate, olnbogaskot. Fótbolti 19. ágúst 2022 12:00
Besti þátturinn: Tókst ekki að ná hinum fullkomna skoti eftir glæsilegt splitt Þriðji þátturinn af Besta þættinum er kominn út en í þættinum eru leikmenn og stuðningsmenn liða í Bestu deildinni paraðir saman í keppni á móti öðru pari annars liðs. Íslenski boltinn 19. ágúst 2022 11:31
Auglýst í starf Arnars mjög fljótlega: „Fengið mjög mikla og góða hjálp“ Arnar Þór Viðarsson segir það „að sjálfsögðu ekki ákjósanlegt“ að hann skuli í svo langan tíma hafa gegnt tveimur stórum störfum hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Það hafi gengið með góðri aðstoð. Fótbolti 19. ágúst 2022 11:00
„Ef horft er til framtíðar þá er hún björt og margar sem eiga enn eftir að springa út“ Það styttist í næsta landsliðsverkefni hjá íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta en þær spila síðustu leikina í undankeppni HM í upphafi næsta mánaðar. Liðið er í góðri stöðu og ljóst að sigrar í báðum leikjunum tryggja liðinu sæti á HM í fyrsta skipti. Vísir fór á stúfana og ræddi við nokkra sérfræðinga um þeirra skoðun á Evrópumótinu sem fram fór í Englandi svona þegar rykið hefur sest og stöðu mála hjá landsliðinu fyrir komandi verkefni. Fótbolti 19. ágúst 2022 10:01
Sjáðu mörkin úr hasarnum í Víkinni Íslands- og bikarmeistarar Víkings eiga enn möguleika á að verja báða titla sína eftir magnaðan 5-3 sigur á KR í stórbrotnum leik í Víkinni í gærkvöld. Hér að neðan má sjá mörkin úr leik gærkvöldsins. Íslenski boltinn 19. ágúst 2022 09:30
Tvær íslenskar frumraunir í opnunarumferð þar sem Maradona Kákasusfjallanna stal senunni Ítalska A deildin fór af stað um síðastliðna helgi og voru úrslit þar nokkuð eftir bókinni. Ekki er þar með sagt að dramatíkina hafi skort, því boltinn var víða að skila sér í markið í uppbótatíma. Hinar svokölluðu systurnar sjö – toppliðin AC Milan, Internazionale, Juventus, Napoli, Roma, Lazio og Fiorentina unnu öll sigra og hálfsystirin Atalanta sömuleiðis. Fótbolti 19. ágúst 2022 09:01
Ólíklegt að Man. Utd nái að klára Casemiro fyrir Liverpool leikinn Það virðist fátt ætla að koma í veg fyrr það að brasilíski miðjumaðurinn Casemiro taki tilboði enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United og að Real Madrid sé tilbúið að selja hann. Enski boltinn 19. ágúst 2022 08:46
Samningur Arnars lengri en KSÍ tilkynnti: „Þetta eru einhver mistök“ Miðað við einu tilkynningu Knattspyrnusambands Íslands, um samning Arnars Þórs Viðarssonar sem þjálfari A-landsliðs karla, væru framundan í haust síðustu leikir samningstímans. Svo er þó aldeilis ekki og samningurinn gæti gilt vel fram á sumarið 2024. Fótbolti 19. ágúst 2022 08:01
Leicester neitar að selja sína bestu menn þrátt fyrir gylliboð Chelsea og Newcastle Tveir af betri leikmönnum enska úrvalsdeildarliðsins Leicester City hafa verið orðaðir við Chelsea annars vegar og Newcastle United hins vegar. Leicester neitar hins vegar að selja þó félögin séu tilbúin að greiða morðfjár fyrir leikmennina. Enski boltinn 19. ágúst 2022 07:32
Real Madrid opnar á möguleikann að Casemiro fari til United Spænska stórveldið Real Madrid virðist vera opið fyrir því að leyfa brasilíska miðjumanninum Casemiro að fara til Manchester United ef félagið er tilbúið að greiða yfir 60 milljónir punda fyrir leikmanninn. Enski boltinn 18. ágúst 2022 23:31
Arnar Gunnlaugsson: Helgi er náttúrulega orðinn Víkings-legend Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var að vonum kampakátur eftir sigur liðsins á KR í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins nú fyrr í kvöld. En Víkingur vann leikinn 5-3 og er liðið komið í undanúrslit. Fótbolti 18. ágúst 2022 23:02
Umfjöllun og viðtöl: Víkingur-KR 5-3 | Hádramatískt í Víkinni Ríkjandi bikarmeistarar Víkings eru á leið í undanúrslit Mjólkurbikars karla eftir dramatískan sigur gegn KR í kvöld. Lokatölur 5-3, en tvær vítaspyrnur voru dæmdar á seinustu mínútum leiksins. Íslenski boltinn 18. ágúst 2022 21:54
Fylkir á toppinn eftir sigur í sjö marka leik Fimm leikir fóru fram í Lengjudeild karla í kvöld og var nóg af mörkum sem litu dagsins ljós. Fylkir lyfti sér á topp deildarinnar með 4-3 sigri gegn Selfyssingum og þá vann Fjölnir einnig 4-3 sigur gegn Grindavík. Fótbolti 18. ágúst 2022 21:18
Markalaust í toppslag Lengjudeildarinnar FH og HK, liðin í efstu tveim sætum Lengjudeildar kvenna, gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í toppslag deildarinnar í kvöld. Fótbolti 18. ágúst 2022 20:58
Sara kom inn á í stórsigri Juventus Landsliðskonan Sara Björk Gunnarsdóttir lék seinasta hálftíma leiksins fyrir Juventus er liðið vann afar öruggan 4-0 sigur gegn Racing Luxemborg í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 18. ágúst 2022 20:33
Íslendingalið Viking nálgast Sambandsdeildina Patrik Sigurður Gunnarsson, Samúel Kári Friðjónsson og félagar þeirra í norska liðinu Viking unnu mikilvægan 1-2 útisigur er liðið heimsótti FCSB til Rúmeníu í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 18. ágúst 2022 20:26
Stefán og félagar þurfa að snúa taflinu við á heimavelli Stefán Teitur Þórðarson og félagar hans í danska liðinu Silkeborg máttu þola 1-0 tap er liðið heimsótti HJK til Finnlands í lokaumferð forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Fótbolti 18. ágúst 2022 18:19
Breiðablik úr leik eftir tap gegn Rosenborg Breiðablik er úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu kvenna eftir 4-2 tap gegn norska liðinu Rosenborg í dag. Fótbolti 18. ágúst 2022 17:56
Íslendingalið Brann áfram í forkeppni Meistaradeildarinnar Íslendingalið Brann með þær Svövu Rós Guðmundsdóttur og Berglindi Björg Þorvaldsdóttur innanborðs vann 1-0 sigur er liðið mætti tyrkneska liðinu ALG Spor í dag. Fótbolti 18. ágúst 2022 17:11
Arsenal fær sænska landsliðskonu frá Juventus Lina Hurtig verður ekki samherji Söru Bjarkar Gunnarsdóttur hjá Juventus í vetur þar sem hún hefur ákveðið að söðla um og semja við Arsenal. Enski boltinn 18. ágúst 2022 15:30
Elísabet og Kristianstad úr leik í Meistaradeildinni Kristianstad, lið Elísabetar Gunnarsdóttur, er úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðið mátti þola 3-1 tap gegn Ajax er liðin mættust í Hjörring í Danmörku. Amanda Andradóttir og Emelía Óskarsdóttir byrjuðu leikinn á bekknum hjá Kristianstad. Fótbolti 18. ágúst 2022 14:15
„Sem betur fer erum við með karakter í liðinu“ „Það er búið að vera bras á liðinu en sem betur fer erum við með karakter í liðinu og það hafa aðrar stigið upp sem áttu ekki endilega að fá hlutverk í liðinu,“ sagði Alexander Aron Davorsson, þjálfari Aftureldingar í Bestu deild kvenna í fótbolta, í ítarlegu viðtali við Bestu mörkin. Íslenski boltinn 18. ágúst 2022 12:30
Uppgjör: Austurríki - Ísland 1-1 | Fyrirliðinn bjargaði stigi með marki af vítapunktinum Fótbolti