Innlent

Horfa á bíó­myndir og senda tölvu­pósta á meðan þeir keyra

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Ívar

Notkun samfélagsmiðla við akstur er sívaxandi vandamál að mati lögreglu. Vel er fylgst með símanotkun ökumanna þessa dagana auk þess sem fjölmargir hafa að undanförnu fengið himinháa sekt vegna nagladekkja.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnun telur að símanotkun sé einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum. Þeir sem noti síma við akstur séu allt að fjórum sinnum líklegra til að lenda í slysi. Samgöngustofa og Sjóvá hrundu af stað herferð á dögunum með yfirskriftinni: Ekki taka skjáhættuna. Lögreglan, sem kannast vel við þetta vandamál, ákvað að taka þátt í átakinu.

„Þetta er náttúrulega bara lögbrot. Það er skýrt í umferðarlögum að notkun farsíma án handfrjáls búnaðar er bannaður. Þannig við ákváðum að hoppa á vagninn með Samgöngustofu og erum að horfa mikið á þetta þessa dagana,“ segir Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ökumenn séu of mikið í því að tala í símann en auk þess sé vaxandi notkun samfélagsmiðla áhyggjuefni. Fólk sé að senda tölvupósta eða jafnvel horfa á kvikmyndir á meðan það er að keyra sem Árni segir algjörlega glórulaust. 

Fjörutíu þúsund króna sekt

Stundum virðist sá misskilningur ríkja að það sé í lagi að nota símann undir ákveðnum kringumstæðum, til dæmis sem vegvísi. Árni segir það af og frá.

„Ef þú notar þetta sem vegvísi áttu að stilla símann áður en þú ferð af stað. Þú getur haft símann opinn en þú mátt ekki nota hann.”

Það sem við sjáum líka talsvert er að fólk heldur á símanum og talar í hann í gegnum hátalarakerfið. Það er bara notkun án handfrjáls búnaðar og við kærum hiklaust fyrir það.

Sektin fyrir að nota símann undir stýri er fjörutíu þúsund krónur. 

En farsímanotkun er ekki það eina sem lögregla hugar að þessa dagana. Nú er tími nagladekkja liðinn og grannt er fylgst með.  

„Síðan 13. maí höfum við verið að fylgjast vel með þessum málum og höfum sektað og kært tuttugu og níu ökumenn. Sektin er töluverð, tuttugu þúsund krónur á dekk. Flest ökutæki eru með fjögur dekk svo þetta er heilmikil upphæð,” segir Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri. 


Tengdar fréttir

Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést

Meginorsök banaslyss á Þrengslavegi í júlí í fyrra var skert athygli við akstur. Við rannsókn slyssins kom í ljós að ökumaður, átján ára karlmaður, notaði farsíma talsvert skömmu fyrir slys til þess að taka upp myndband, taka ljósmyndir og senda skilaboð á meðan hann ók bifreiðinni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×