Handbolti

Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon fór á kostum fyrir Magdeburg í dag.
Ómar Ingi Magnússon fór á kostum fyrir Magdeburg í dag. Gregor Fischer/picture alliance via Getty Images

Ómar Ingi Magnússon og Viggó Kristjánsson áttu báðir stórleiki er lið þeirra, Magdeburg og Leipzig, unnu örugga sigra í þýska handboltanum í dag.

Ómar Ingi skoraði fjórtán mörk fyrir Magdeburg er liðið vann fimm marka sigur gegn Erlangen, 27-32.

Janus Daði Smárason bætti tveimur mörkum við og Gísli Þorgeir Kristjánsson einu, en Magdeburg trónir á toppi þýsku deildarinnar með 54 stig, tveimur stigum meira en Füchse Berlin sem situr í öðru sæti, þegar Magdeburg á aðeins fjóra leiki eftir á tímabilinu.

Þá skoraði Viggó Kristjánsson átta mörk fyrir Leipzig er liðið vann tólf marka sigur gegn Hamburg fyrr í dag, 39-27. Andri Már Rúnarsson skoraði þrjú mörk fyrir liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×