Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins mætir fyrstur manna í Samtalið hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni í dag. Þátturinn verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 og sýndur á Stöð 2 í kvöld klukkan 19:10. 19.9.2024 10:21
Stjórnarandstaðan notuð til uppfyllingar á Alþingi Þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram þingsályktun með stuðningi þingmanna Pírata og Samfylkingar um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir alþjóðlegum viðskiptaþvingunum gagnvart Ísrael. Engin stjórnarmál voru á dagskrá Alþingis í dag. 17.9.2024 20:25
Óráðlegt að undirbúa flutning barns sem dvelur á sjúkrahúsi Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Framsóknarflokksins segir mál Yazans ekki þrengja líf ríkisstjórnarinnar. Það sé samt auðvitað þannig að hver flokkur innan hennar hafi ólíka afstöðu til málaflokksins og bakland þeirra líka. Það sé mikilvægt að fylgja lögum en líka að tekið sé tillit til þess að þarna hafi verið sérstakt tilvik sem varði dreng í viðkvæmri stöðu. 17.9.2024 12:11
Segir lögin skipta máli en líka mannúð Svandís Svavarsdóttir þingkona Vinstri grænna segir mikla spennu innan ríkisstjórnarinnar um mál Yazans en að ríkisstjórnin hafi ekki verið í hættu vegna brottvísunarinnar. Málið hafi verið rætt frá hinum ýmsu hliðum en að enda sé það ekki hlutverk ríkisstjórnar að taka ákvörðum um það hvort hann verði áfram eða ekki. 17.9.2024 11:49
„Þó að það hafi verið mér þvert um geð“ Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir að hún hafi ákveðið að verða við beiðni félags- og vinnumarkaðsráðherra um frestun brottflutnings Yazans Tamimi og fjölskyldu, þótt það hefði verið henni þvert um geð. 17.9.2024 11:40
Bjarni segir brottvísunina standa Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir brottvísun Yazans Tamimi standa. Ríkisstjórnin muni ekki taka ákvörðun um brottvísun, það verði að fara að lögum. Yazan er ellefu ára drengur frá Palestínu sem glímir við hrörnunarsjúkdóm. Beiðni hans og fjölskyldu um vernd hér á landi var synjað á árinu. 17.9.2024 11:22
Þingmaður Miðflokksins rak augun í undarlega grein Þingmanni Miðflokksins finnst undarlegt að gert sé ráð fyrir aukinni aðkomu stjórnvalda að rekstri borgarlínu, umfram það sem gert væri ráð fyrir í nýundirrituðu samkomu lagi ríkis og sveitarfélaga. Samgöngumálin voru rædd í tengslum við fjárlög næsta árs á Alþingi í dag. 13.9.2024 21:28
Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna á fundum í Reykjavík Utanríkisráðherra og aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna funduðu í dag í Reykjavík um tvíhliða samskipti þjóðanna, stöðu átakanna í Úkraínu og á Gaza. Bandaríski ráðherrann segir stöðuna á Indo-Kyrrhafssvæðinu snerta Evrópubúa þar sem Kína og Norður Kórea styðji stríðsrekstur Rússa í Úkraínu með beinum hætti. 13.9.2024 19:22
Áhersla á stuðning við jaðarsetta hópa í menntakerfinu Mennta- og barnamálaráðherra segir fjármagn verða sett í þjóðarleikvanga á næsta ári og 250 milljónir verði settar aukalega til afreksíþrótta. Brugðist verði við aukinni aðsókn í verknám nám fyrir jaðarsetta hópa í samfélaginu eflt. 13.9.2024 12:01
Gagnrýna afnám greiðslu séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán Stjórnarandstaðan telur fátt í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar stuðla að hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Þá gagnrýna margir að afnema eigi heimild til að nýta séreignarsparnað til að greiða niður húsnæðislán. 12.9.2024 20:52