Frjósemi „Þú munt aldrei eignast barn!“ PCOS (e. Polycystic ovary syndrome) er efnaskiptasjúkdómur eða heilkenni sem hefur áhrif á margt í líkamanum, veldur hormónaóreglu og getur haft hvimleiða fylgikvilla. PCOS er til dæmis ein algengasta orsök ófrjósemi hjá konum þar sem sjúkdómurinn veldur truflunum á egglosi og gerist það oft að PCOS komi ekki í ljós fyrr en hugað er að barneignum og ekkert gengur. Þar sem PCOS er ein helsta orsök ófrjósemi er heilkennið oft tengt við frjósemisvanda en það eru aðrir algengir fylgikvillar. PCOS er nefnilega fúlasta alvara. Skoðun 16.9.2024 07:02 Kýrin Mugga bar þremur myndarlegum kvígum Kýrin Mugga á bænum Steindyrum í Svarfaðardal er engin venjuleg kýr því hún bar þremur kálfum, allt hraustar kvígur. Innlent 18.8.2024 20:04 Átta ára barátta endaði með kraftaverki „Það er svo stór og sjálfsagður partur af lífinu að eignast börn. Ég held að fæstir hugsi eitthvað sérstaklega út í að eiga kannski ekki möguleika á því, ekki fyrr en virkilega á reynir,“ segir Helga Jóhanna Oddsdóttir. Árið 2004 fékk hún langþráða ósk uppfyllta þegar tvíburasynir hennar Oddur Fannar og Tómas Ingi komu í heiminn - eftir átta ára langt frjósemisferli. Lífið 4.8.2024 08:01 Frjósemi á Íslandi aldrei verið minni en í fyrra Frjósemi á Íslandi hefur aldrei verið minni en í fyrra frá því mælingar hófust fyrir um 170 árum síðan. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu á vef Hagstofu Íslands, en þar segir að fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi í fyrra hafi verið 4.315 sem er fækkun frá 2022 þegar fædd börn voru 4.382. Meðalaldur mæðra hefur einnig hækkað jafnt og þétt undanfarna áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn að jafnaði síðar á ævinni en áður. Innlent 17.7.2024 10:31 Vilja fá að verða ófrjóar og höfða mál á hendur stjórnvöldum Fimm konur hafa höfðað mál á hendur stjórnvöldum í Japan vegna löggjafar sem gerir konum afar erfitt fyrir sem vilja gangast undir ófrjósemisaðgerð. Erlent 21.6.2024 10:46 „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Það er svo skrýtin samblanda að vera glöð og hamingjusöm með börnin sín en á sama tíma vera ótrúlega þungur í sálinni,“ segir tónlistarkonan Salka Sól. Salka Sól skaust upp á stjörnuhimininn árið 2014 og fagnar nú áratugi í tónlistinni. Tónlist 1.6.2024 07:02 Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sífellt fjölgar í hópi þeirra kvenna sem kjósa að fæða börn án aðkomu heilbrigðiskerfisins. Ljósmóðir hjá Björkinni hefur orðið vör við slíka þróun og segist skilja konur sem taki ákvörðun um að haga fæðingunni á þennan hátt. Innlent 13.5.2024 23:02 Fá allir sama orlof? Frjósemisvandi er eitthvað sem 1 af hverjum 6 pörum glímir við og fer sú tala hækkandi. Fyrir aðra er erfitt að setja sig í stöðu þeirra sem standa í þessum bardaga. Þessi vandi reynir mikið á andlega fyrir fólk en ferlið felur í sér óvissu, streitu og kvíða svo eitthvað sé nefnt. Skoðun 10.5.2024 11:31 Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus Unnur Arndísardóttir býr á Spáni með manni sínum Jóni Tryggva Unnarssyni og hundinum þeirra Álfi litla. Þar heldur hún námskeið, stundar hugleiðslu og vinnur sem jógakennari og heilari. Unnur og Jón Tryggvi eru barnlaus en reyndu í mörg ár að eignast barn. Lífið 9.5.2024 08:05 Konur sem eiga ekki að eignast börn Jöfn staða fólks eftir kyni er tryggð í stjórnarskrá Íslands. Jafn réttur og jöfn staða fólks er jafnframt tíunduð í lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Þar er m.a. sérstakt ákvæði um skyldur atvinnurekenda til að auðvelda starfsfólki að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof. Skoðun 16.4.2024 08:30 Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Oji Holdings, fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu ýmissa pappírsvara, hefur tilkynnt að það hyggist hætta að framleiða bleyjur fyrir ungabörn og auka þess í stað framleiðslu sína á bleyjum fyrir fullorðna. Erlent 27.3.2024 07:14 Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Á haustmánuðum verður opnuð ný frjósemismiðstöð á Íslandi. Miðstöðin hefur fengið nafnið Sunna – frjósemismiðstöð og verður rekin af hjónunum Þóri Harðarsyni, sérfræðingi í frjósemi og kennara við lífeðlisfræðideild Háskóla Íslands, og Ingunni Jónsdóttur, fæðingar- og kvensjúkdómalækni. Viðskipti innlent 22.3.2024 09:00 Þverpólitísk samstaða í Alabama um ný lög um notkun fósturvísa Þingmenn í Alabama í Bandaríkjunum hafa samþykkt lög til að vernda heilbrigðisstofnanir og heilbrigðisstarfsmenn frá mögulegum sak- og lögsóknum, eftir að hæstiréttur ríkisins úrskurðaði að fósturvísar væru manneskjur og nytu sömu réttinda og börn. Erlent 7.3.2024 06:58 „Vildu frekar nýta þetta til bætingar heldur en að vera reið við mig“ Í ágúst í fyrra kom fram viðtal við íþróttafréttakonuna Svövu Kristínu Gretarsdóttur sem ætlaði eins síns liðs að eignast barn með hjálp Livio. Lífið 5.3.2024 10:30 Frjósemi nær sögulegum lægðum í Japan og Suður-Kóreu Frjósemi í Japan og Suður-Kóreu náði metlægðum í fyrra. Í Japan fækkaði fæðingum áttunda árið í röð, um 5,1 prósent frá árinu 2022. Um er að ræða minnsta fjölda fæðinga frá því að Japan hóf að safna gögnum árið 1899. Erlent 28.2.2024 08:33 Til allra stéttarfélaga og atvinnurekenda Vissuð þið að 1 af hverjum 6 pörum glímir við frjósemisvanda? Vissuð þið að sú tala fer hækkandi? Vissuð þið að frjósemisvandi margra er svo flókin að ekki fæst lausn mála á Íslandi svo fólk leitar út fyrir landsteinana? Skoðun 25.2.2024 16:01 „Ég á ekkert DNA í syni mínum“ Aðalbjörgu Evu Sigurðardóttur dreymdi um að verða móðir alla tíð. Hún stóð á fertugu, einhleyp og barnlaus, og hún vissi að ef hún ætlaði að láta drauminn um barn verða að veruleika þá gæti hún ekki beðið. Ferlið sem leiddi til þess að sonur hennar, Sigurður Hrafn, kom í heiminn reyndist hins vegar langt, sársaukafullt og kostnaðarsamt. Lífið 24.2.2024 09:01 Hæstiréttur Alabama skilgreinir frosna fósturvísa sem manneskjur Hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu á föstudag að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá. Erlent 20.2.2024 09:03 Skrifaði bók fyrir börn sem getin eru með aðstoð tækninnar „Öll börn eiga rétt á því að vita hvernig þau urðu til og fá tækifæri til að fá upplýsingar um uppruna sinn,“ segir Andrea Björt en hún og eiginkona hennar eignuðust son sinn með aðstoð sæðisgjafa. Andrea rak sig á það á sínum tíma að það var lítið sem ekkert efni til á íslensku sem ætlað var börnum sem getin eru með aðstoð sæðis- eða eggjagjafa. Lífið 17.2.2024 08:01 Þarf ekki í faðernispróf eftir að hafa blandað sæði sínu og föður síns Maður sem blandaði saman sæði sínu og föður síns til þess að gera þáverandi kærustu sína ólétta þarf ekki að fara í faðernispróf, jafnvel þó að óljóst sé hver sé blóðfaðir barns konunnar. Erlent 16.2.2024 22:08 Kraftaverk að eiga von á barni eftir allar lyfjameðferðirnar Birna Almarsdóttir var 27 ára þegar hún greindist með fjórða stigs eitirfrumukrabbamein sem hafði dreift sér í lungun. Áfallið var mikið, óvissan um frekari barneignir algjör en það var einmitt dóttir Birnu sem hjálpaði henni langmest í gegnum erfiðu tímana. Lífið 7.2.2024 13:00 Hæstiréttur tekur eggjastokkamál fyrir Hæstiréttur hefur veitt Sjúkratryggingum Íslands áfrýjunarleyfi í máli sem snýr að læknamistökum þegar eggjastokkur konu var fjarlægður án hennar vitneskju. Sjúkratryggingar voru dæmdar til að greiða konunni 1,5 milljónir króna í miskabætur í Landsrétti. Innlent 6.2.2024 16:13 Fundu erfðabreytileika sem eykur líkur á fósturláti Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólk þeirra á Íslandi og í Danmörku og Bandaríkjunum fundu erfðabreytileika sem hefur áhrif á endurröðun erfðaefnis og eykur líkur á fósturláti, líklega með því að auka líkur á litningagöllum. Innlent 29.1.2024 11:51 „Skyndilega varð allt þess virði“ Svava Kristín Grétarsdóttir íþróttafréttakona eignaðist stúlku 14. janúar síðastliðinn. Fæðingin var löng og erfið og var ákveðið að koma stúlkunni í heiminn með bráðakeisara. Lífið 18.1.2024 10:34 Rússíbanareið sem fylgir því að eignast þríbura Árið 2023 var ár þríbura hér á landi, þá fæddust þrennir þríburar á Landspítalanum á einni viku. Nokkurs konar heimsmet hjá smáþjóð að mati sérfræðinga. Þríburafæðingar á Íslandi eru sjaldgæfar en samkvæmt tölum frá Hagstofunni hafa 57 þríburafæðingar átt sér stað síðustu 33 ár af 143 þúsund fæðingum alls. Lífið 1.1.2024 07:00 Stórkostlegt gáleysi að fjarlægja eggjastokk án leyfis Landsréttur hefur dæmt Sjúkratryggingar Íslands til þess að greiða konu 1,5 milljónir króna í miskabætur vegna stórkostlegs gáleysis læknis. Sá fjarlægði vinstri eggjastokk konunnar án þess að hún veitti samþykki fyrir. Innlent 1.12.2023 16:02 Þvingaðar ófrjósemisaðgerðir íslenskra kvenna í brennidepli NY Times Þrátt fyrir að þvingaðar ófrjósemisaðgerðir á fötluðu fólki teljist til mannréttindabrota, eru enn dæmi um þær í Evrópu og á Íslandi. Innlent 25.11.2023 20:55 Ófrjósemi; vegferð von og vonbrigða Foreldrar. Gildishlaðið orð og að mínu mati hlaðið fallegum gildum. Ég var samt aldrei sérstaklega viss um hvort ég vildi verða foreldri sjálf. Satt að segja hélt ég hreinlega alltaf að ég þyrfti ekkert endilega að ákveða það heldur væri það eitt af hlutverkum eða jafnvel skyldum mínum í lífinu. Skoðun 6.11.2023 08:00 Leggur til 1400 prósenta hærri niðurgreiðslu vegna tæknifrjóvgunar Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, mælir síðdegis á Alþingi fyrir frumvarpi sínu um breytingar á lögum um tæknifrjóvgun. Málið snýst um að auka endurgreiðslur vegna tæknifrjóvgana til muna. Til að fjármagna þann kostnað leggur Hildur til að fella niður niðurgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands á valkvæðum frjósemisaðgerðum. Innlent 16.10.2023 15:03 Færsla Livio harðlega gagnrýnd: „Það gleðst enginn yfir sársaukafullum eggheimtum“ Færsla Livio þar sem því var fagnað að 5000 eggheimtur hefðu verið framkvæmdar, hefur verið harðlega gagnrýnd og vakið hörð viðbrögð. Kona sem lýsir slæmri reynslu sinni af fyrirtækinu spyr hvers vegna í ósköpunum þetta sé fagnaðarefni. Færslunni hefur nú verið eytt. Innlent 29.9.2023 13:10 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 7 ›
„Þú munt aldrei eignast barn!“ PCOS (e. Polycystic ovary syndrome) er efnaskiptasjúkdómur eða heilkenni sem hefur áhrif á margt í líkamanum, veldur hormónaóreglu og getur haft hvimleiða fylgikvilla. PCOS er til dæmis ein algengasta orsök ófrjósemi hjá konum þar sem sjúkdómurinn veldur truflunum á egglosi og gerist það oft að PCOS komi ekki í ljós fyrr en hugað er að barneignum og ekkert gengur. Þar sem PCOS er ein helsta orsök ófrjósemi er heilkennið oft tengt við frjósemisvanda en það eru aðrir algengir fylgikvillar. PCOS er nefnilega fúlasta alvara. Skoðun 16.9.2024 07:02
Kýrin Mugga bar þremur myndarlegum kvígum Kýrin Mugga á bænum Steindyrum í Svarfaðardal er engin venjuleg kýr því hún bar þremur kálfum, allt hraustar kvígur. Innlent 18.8.2024 20:04
Átta ára barátta endaði með kraftaverki „Það er svo stór og sjálfsagður partur af lífinu að eignast börn. Ég held að fæstir hugsi eitthvað sérstaklega út í að eiga kannski ekki möguleika á því, ekki fyrr en virkilega á reynir,“ segir Helga Jóhanna Oddsdóttir. Árið 2004 fékk hún langþráða ósk uppfyllta þegar tvíburasynir hennar Oddur Fannar og Tómas Ingi komu í heiminn - eftir átta ára langt frjósemisferli. Lífið 4.8.2024 08:01
Frjósemi á Íslandi aldrei verið minni en í fyrra Frjósemi á Íslandi hefur aldrei verið minni en í fyrra frá því mælingar hófust fyrir um 170 árum síðan. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu á vef Hagstofu Íslands, en þar segir að fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi í fyrra hafi verið 4.315 sem er fækkun frá 2022 þegar fædd börn voru 4.382. Meðalaldur mæðra hefur einnig hækkað jafnt og þétt undanfarna áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn að jafnaði síðar á ævinni en áður. Innlent 17.7.2024 10:31
Vilja fá að verða ófrjóar og höfða mál á hendur stjórnvöldum Fimm konur hafa höfðað mál á hendur stjórnvöldum í Japan vegna löggjafar sem gerir konum afar erfitt fyrir sem vilja gangast undir ófrjósemisaðgerð. Erlent 21.6.2024 10:46
„Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ „Það er svo skrýtin samblanda að vera glöð og hamingjusöm með börnin sín en á sama tíma vera ótrúlega þungur í sálinni,“ segir tónlistarkonan Salka Sól. Salka Sól skaust upp á stjörnuhimininn árið 2014 og fagnar nú áratugi í tónlistinni. Tónlist 1.6.2024 07:02
Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sífellt fjölgar í hópi þeirra kvenna sem kjósa að fæða börn án aðkomu heilbrigðiskerfisins. Ljósmóðir hjá Björkinni hefur orðið vör við slíka þróun og segist skilja konur sem taki ákvörðun um að haga fæðingunni á þennan hátt. Innlent 13.5.2024 23:02
Fá allir sama orlof? Frjósemisvandi er eitthvað sem 1 af hverjum 6 pörum glímir við og fer sú tala hækkandi. Fyrir aðra er erfitt að setja sig í stöðu þeirra sem standa í þessum bardaga. Þessi vandi reynir mikið á andlega fyrir fólk en ferlið felur í sér óvissu, streitu og kvíða svo eitthvað sé nefnt. Skoðun 10.5.2024 11:31
Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus Unnur Arndísardóttir býr á Spáni með manni sínum Jóni Tryggva Unnarssyni og hundinum þeirra Álfi litla. Þar heldur hún námskeið, stundar hugleiðslu og vinnur sem jógakennari og heilari. Unnur og Jón Tryggvi eru barnlaus en reyndu í mörg ár að eignast barn. Lífið 9.5.2024 08:05
Konur sem eiga ekki að eignast börn Jöfn staða fólks eftir kyni er tryggð í stjórnarskrá Íslands. Jafn réttur og jöfn staða fólks er jafnframt tíunduð í lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Þar er m.a. sérstakt ákvæði um skyldur atvinnurekenda til að auðvelda starfsfólki að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof. Skoðun 16.4.2024 08:30
Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Oji Holdings, fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu ýmissa pappírsvara, hefur tilkynnt að það hyggist hætta að framleiða bleyjur fyrir ungabörn og auka þess í stað framleiðslu sína á bleyjum fyrir fullorðna. Erlent 27.3.2024 07:14
Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Á haustmánuðum verður opnuð ný frjósemismiðstöð á Íslandi. Miðstöðin hefur fengið nafnið Sunna – frjósemismiðstöð og verður rekin af hjónunum Þóri Harðarsyni, sérfræðingi í frjósemi og kennara við lífeðlisfræðideild Háskóla Íslands, og Ingunni Jónsdóttur, fæðingar- og kvensjúkdómalækni. Viðskipti innlent 22.3.2024 09:00
Þverpólitísk samstaða í Alabama um ný lög um notkun fósturvísa Þingmenn í Alabama í Bandaríkjunum hafa samþykkt lög til að vernda heilbrigðisstofnanir og heilbrigðisstarfsmenn frá mögulegum sak- og lögsóknum, eftir að hæstiréttur ríkisins úrskurðaði að fósturvísar væru manneskjur og nytu sömu réttinda og börn. Erlent 7.3.2024 06:58
„Vildu frekar nýta þetta til bætingar heldur en að vera reið við mig“ Í ágúst í fyrra kom fram viðtal við íþróttafréttakonuna Svövu Kristínu Gretarsdóttur sem ætlaði eins síns liðs að eignast barn með hjálp Livio. Lífið 5.3.2024 10:30
Frjósemi nær sögulegum lægðum í Japan og Suður-Kóreu Frjósemi í Japan og Suður-Kóreu náði metlægðum í fyrra. Í Japan fækkaði fæðingum áttunda árið í röð, um 5,1 prósent frá árinu 2022. Um er að ræða minnsta fjölda fæðinga frá því að Japan hóf að safna gögnum árið 1899. Erlent 28.2.2024 08:33
Til allra stéttarfélaga og atvinnurekenda Vissuð þið að 1 af hverjum 6 pörum glímir við frjósemisvanda? Vissuð þið að sú tala fer hækkandi? Vissuð þið að frjósemisvandi margra er svo flókin að ekki fæst lausn mála á Íslandi svo fólk leitar út fyrir landsteinana? Skoðun 25.2.2024 16:01
„Ég á ekkert DNA í syni mínum“ Aðalbjörgu Evu Sigurðardóttur dreymdi um að verða móðir alla tíð. Hún stóð á fertugu, einhleyp og barnlaus, og hún vissi að ef hún ætlaði að láta drauminn um barn verða að veruleika þá gæti hún ekki beðið. Ferlið sem leiddi til þess að sonur hennar, Sigurður Hrafn, kom í heiminn reyndist hins vegar langt, sársaukafullt og kostnaðarsamt. Lífið 24.2.2024 09:01
Hæstiréttur Alabama skilgreinir frosna fósturvísa sem manneskjur Hæstiréttur Alabama í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu á föstudag að frosnir fósturvísar væru börn og að sækja mætti fólk til saka fyrir að eyðileggja þá. Erlent 20.2.2024 09:03
Skrifaði bók fyrir börn sem getin eru með aðstoð tækninnar „Öll börn eiga rétt á því að vita hvernig þau urðu til og fá tækifæri til að fá upplýsingar um uppruna sinn,“ segir Andrea Björt en hún og eiginkona hennar eignuðust son sinn með aðstoð sæðisgjafa. Andrea rak sig á það á sínum tíma að það var lítið sem ekkert efni til á íslensku sem ætlað var börnum sem getin eru með aðstoð sæðis- eða eggjagjafa. Lífið 17.2.2024 08:01
Þarf ekki í faðernispróf eftir að hafa blandað sæði sínu og föður síns Maður sem blandaði saman sæði sínu og föður síns til þess að gera þáverandi kærustu sína ólétta þarf ekki að fara í faðernispróf, jafnvel þó að óljóst sé hver sé blóðfaðir barns konunnar. Erlent 16.2.2024 22:08
Kraftaverk að eiga von á barni eftir allar lyfjameðferðirnar Birna Almarsdóttir var 27 ára þegar hún greindist með fjórða stigs eitirfrumukrabbamein sem hafði dreift sér í lungun. Áfallið var mikið, óvissan um frekari barneignir algjör en það var einmitt dóttir Birnu sem hjálpaði henni langmest í gegnum erfiðu tímana. Lífið 7.2.2024 13:00
Hæstiréttur tekur eggjastokkamál fyrir Hæstiréttur hefur veitt Sjúkratryggingum Íslands áfrýjunarleyfi í máli sem snýr að læknamistökum þegar eggjastokkur konu var fjarlægður án hennar vitneskju. Sjúkratryggingar voru dæmdar til að greiða konunni 1,5 milljónir króna í miskabætur í Landsrétti. Innlent 6.2.2024 16:13
Fundu erfðabreytileika sem eykur líkur á fósturláti Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólk þeirra á Íslandi og í Danmörku og Bandaríkjunum fundu erfðabreytileika sem hefur áhrif á endurröðun erfðaefnis og eykur líkur á fósturláti, líklega með því að auka líkur á litningagöllum. Innlent 29.1.2024 11:51
„Skyndilega varð allt þess virði“ Svava Kristín Grétarsdóttir íþróttafréttakona eignaðist stúlku 14. janúar síðastliðinn. Fæðingin var löng og erfið og var ákveðið að koma stúlkunni í heiminn með bráðakeisara. Lífið 18.1.2024 10:34
Rússíbanareið sem fylgir því að eignast þríbura Árið 2023 var ár þríbura hér á landi, þá fæddust þrennir þríburar á Landspítalanum á einni viku. Nokkurs konar heimsmet hjá smáþjóð að mati sérfræðinga. Þríburafæðingar á Íslandi eru sjaldgæfar en samkvæmt tölum frá Hagstofunni hafa 57 þríburafæðingar átt sér stað síðustu 33 ár af 143 þúsund fæðingum alls. Lífið 1.1.2024 07:00
Stórkostlegt gáleysi að fjarlægja eggjastokk án leyfis Landsréttur hefur dæmt Sjúkratryggingar Íslands til þess að greiða konu 1,5 milljónir króna í miskabætur vegna stórkostlegs gáleysis læknis. Sá fjarlægði vinstri eggjastokk konunnar án þess að hún veitti samþykki fyrir. Innlent 1.12.2023 16:02
Þvingaðar ófrjósemisaðgerðir íslenskra kvenna í brennidepli NY Times Þrátt fyrir að þvingaðar ófrjósemisaðgerðir á fötluðu fólki teljist til mannréttindabrota, eru enn dæmi um þær í Evrópu og á Íslandi. Innlent 25.11.2023 20:55
Ófrjósemi; vegferð von og vonbrigða Foreldrar. Gildishlaðið orð og að mínu mati hlaðið fallegum gildum. Ég var samt aldrei sérstaklega viss um hvort ég vildi verða foreldri sjálf. Satt að segja hélt ég hreinlega alltaf að ég þyrfti ekkert endilega að ákveða það heldur væri það eitt af hlutverkum eða jafnvel skyldum mínum í lífinu. Skoðun 6.11.2023 08:00
Leggur til 1400 prósenta hærri niðurgreiðslu vegna tæknifrjóvgunar Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, mælir síðdegis á Alþingi fyrir frumvarpi sínu um breytingar á lögum um tæknifrjóvgun. Málið snýst um að auka endurgreiðslur vegna tæknifrjóvgana til muna. Til að fjármagna þann kostnað leggur Hildur til að fella niður niðurgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands á valkvæðum frjósemisaðgerðum. Innlent 16.10.2023 15:03
Færsla Livio harðlega gagnrýnd: „Það gleðst enginn yfir sársaukafullum eggheimtum“ Færsla Livio þar sem því var fagnað að 5000 eggheimtur hefðu verið framkvæmdar, hefur verið harðlega gagnrýnd og vakið hörð viðbrögð. Kona sem lýsir slæmri reynslu sinni af fyrirtækinu spyr hvers vegna í ósköpunum þetta sé fagnaðarefni. Færslunni hefur nú verið eytt. Innlent 29.9.2023 13:10