Erlent

Reiðir yfir um­mælum Macrons og halda æfingar með kjarn­orku­vopn

Samúel Karl Ólason skrifar
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur skipað hernum að æfa notkun taktískra kjarnorkuvopna. Þetta er í fyrsta sinn sem Rússar tilkynna slíkar æfingar opinberlega.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur skipað hernum að æfa notkun taktískra kjarnorkuvopna. Þetta er í fyrsta sinn sem Rússar tilkynna slíkar æfingar opinberlega. AP/Sergei Guneyev

Varnarmálaráðuneyti Rússlands tilkynnti í morgun að halda ætti heræfingar með svokölluð taktísk kjarnorkuvopn ríkisins. Æfingar þessar eiga að vera viðbrögð við ummælum vestrænna leiðtoga um innrás Rússa í Úkraínu og þá sérstaklega orð Emmanuels Macron, forseta Frakklands, um að ekki ætti að útiloka það að senda hermenn til Úkraínu.

Ráðuneytið segir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hafa gefið út þá skipun að halda ætti umræddar æfingar. Þær eiga að hefjast á næstunni og koma herinn, flugherinn og sjóherinn að þeim.

Rússar halda reglulega æfingar með hefðbundin kjarnorkuvopn sín, eins og önnur ríki sem eiga slík vopn gera, en þetta ku vera í fyrsta sinn sem Rússar tilkynna með þessum hætti æfingar með taktísk kjarnorkuvopn.

Það eru smærri kjarnorkuvopn sem hönnuð voru á tímum Kalda stríðsins. Þar sem hefðbundnum kjarnorkuvopnum er ætlað að granda borgum, iðnaðarsvæðum og öðrum sambærilegum skotmörkum, var taktískum vopnum ætlað að brjóta leiðir í gegnum varnarlínur Atlantshafsbandalagsins.

Hægt er að varpa þeim úr lofti, skjóta með eldflaugum eða með stórskotaliðsvopnum.

Dmitrí Peskóv, talsmaður Pútíns, ítrekaði í morgun að æfingarnar ætti að halda vegna áðurnefndra ummæla, sem hann kallaði hættuleg og sagði marka mikla stigmögnun.

Eins og bent er á í frétt AP fréttaveitunnar er þetta ekki í fyrsta sinn sem Rússar ýja að notkun þessara vopna vegna aðkomu Vesturlanda að vörnum Úkraínumanna gegn innrás Rússa.

Það gerðu ráðamenn í Rússlandi til að mynda í mars í fyrra, þegar yfirvöld Í Bretlandi ákváðu að senda Úkraínumönnum skriðdrekaskotfæri gerð úr rýrðu úrani.

Frá því Rússar réðust inn í Úkraínu í fyrra hafa ráðamenn þar ítrekað hótað notkun kjarnorkuvopna. Það hefur sömuleiðis ítrekað verið gert í ríkisreknum sjónvarpsstöðvum Rússlands og dagblaða. Hótunum þessum hefur að miklu leyti verið ætlað að draga úr vilja Vesturlanda til að standa við bakið á Úkraínumönnum.


Tengdar fréttir

Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna

Leyniþjónusta úkraínska hersins (GUR) birti í morgun myndband sem sýna á vel heppnaða drónaárás á hraðbát rússneska hersins undan ströndum Krímskaga í nótt. Sveit sem kallast „Group 13“ notaði Magura V5 dróna til að sökkva bátnum á Úskaflóa.

Hafa engin varnarvirki til að hörfa í

Úkraínskir hermenn hafa neyðst til að hörfa undan framsókn betur vopnaðra og fleiri rússneskra hermanna í austurhluta Úkraínu á undanförnum vikum. Rússar hafa varpað þúsundum stærðarinnar sprengja á víglínuna en úkraínska hermenn skortir varnarvirki sem verja þá.

Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu

Eldflaug sem lenti á borginni Karkív í norðausturhluta Úkraínu þann 2. janúar var af gerðinni Hwasong-11 og kemur frá Norður-Kóreu. Kaup Rússa á skotflaugunum frá Norður-Kóreu eru í trássi við samþykktir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um bann við vopnakaupum frá einræðisríkinu.

Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi

Lögregluþjónar í Bæjarlandi í Þýskalandi hafa handtekið tvo menn sem grunaðir eru um njósnir fyrir yfirvöld í Rússlandi. Þeir eru meðal annars sakaðir um að skipuleggja skemmdarverk og fyrir að ætla að framleiða sprengiefni, með því markmiði að skaða hernaðaraðstoð Þjóðverja til Úkraínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×