Lífið

Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrr­verandi í tvo heimana

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Mari Järsk hlaupagarpur mætti í fyrsta langhlaupið nánast í bikiníi, eins og hún lýsir því.
Mari Järsk hlaupagarpur mætti í fyrsta langhlaupið nánast í bikiníi, eins og hún lýsir því. Vísir/Einar

Ofurhlaupakonan Mari Järsk tók þátt í sínu fyrsta langhlaupi eftir að fyrrverandi kærastinn hennar tjáði henni að hann ætlaði að taka þátt í Esju Ultra hlaupinu. Hún skráði sig til leiks án þess að hafa nokkra reynslu og endaði í þriðja sæti.

Frá þessu greinir Mari í heimildamynd um hana sem var frumsýnd á Stöð 2 í síðustu viku. Í myndinni spyr Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, sem fylgdist með henni þegar hún tók þátt í bakgarðshlaupi í Þýskalandi, hvenær hún hafi áttað sig á því að hún væri betri í íþróttum en aðrir. 

„Ég hef nú aldrei hugsað þannig. Ég vissi alltaf innst inni að ég hefði þetta í mér,“ segir Mari í heimildamyndinni.

Mari sigraði Bakgarðshlaupið, sem fór fram í Öskjuhlíð um helgina, og setti nýtt Íslandsmet í leiðinni. Hún hljóp tæplega 382 kílómetra og hafði þá verið vakandi í 57 klukkustundir, frá því að hlaupið hófst klukkan níu á laugardagsmorgun. 

Mari segist ekki hafa byrjað að hlaupa af ráði fyrr en seint og um síðir. Hún var á krossgötum, nýhætt í sambandi en fyrrverandi kærastinn tilkynnti henni stuttu eftir sambandsslitin að hann ætlaði að taka þátt í Esju Ultra hlaupinu og stefndi á tvær ferðir upp og niður. 

„Og ég bara: Já ókei, ég ætla sko meira en þú. Þannig að ég mætti, næstum því í bikiníi, mjög stuttum buxum og pínkulitlum topp með bakpoka á bakinu að fara að keppa í Esju Ultra maraþoninu. Ég vissi ekkert um hlaup,“ segir Mari. 

Hvernig gekk það?

„Það gekk svo vel að ég var í þriðja sæti. Þarna byrjaði mín ástríða.“

Næsta markmið var að klára 50 kílómetra í Hengill Ultra, þar næsta var að klára 100 kílómetra.

„Ég var sú manneskja strax að ég vildi meira. Mér fannst, þegar ég er búin með 50 kílómetra þá má ég hoppa í 100.“

Horfa má á brot úr heimildamyndinni í spilaranum hér að neðan. Myndina má sjá á Stöð 2+.


Tengdar fréttir

„Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði

Hlaupaskórnir sem Mari Järsk var klædd í þegar hún hljóp 57 hringi í Bakgarðshlaupinu og sló Íslandsmet eru nú á uppboði. Uppboðið er á vegum góðgerðardags Hagaskóla, sem fór reyndar fram í fyrradag.

Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum

Mari Järsk gat ekki staðið upp í kvöld til að taka við verðlaunum sem sigurvegari Bakgarðshlaupsins í ár. Mari vann hlaupið eftir að hafa lokið 57 hringjum. Mari sagði fætur hennar hafa bólgnað svo upp eftir hlaupin að hún gæti ekki staðið upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×