Innlent

Eld­vörp lík­leg næst

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur telur líklegt að næst gjósi í Eldvörpum. Það sé mun hagstæðara svæði fyrir eldgos en við Sundhnúksgígaröðina. 
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur telur líklegt að næst gjósi í Eldvörpum. Það sé mun hagstæðara svæði fyrir eldgos en við Sundhnúksgígaröðina.  Vísir/Arnar

Eldfjallafræðingur telur líklegt að næsta gos á Reykjanesi verði í Eldvörpum. Það sé langbesti staðurinn til að fá nýtt eldgos því á svæðinu sé mikið flatlendi og langt í mikilvæga innviði. Nýtt eldgos geti hafist hvenær sem er

Veðurstofan tilkynnti formlega í morgun að eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina væri lokið. Það stóð yfir í 54 daga sem er mun lengra en þau gos sem hafa komið upp á svæðinu undanfarna mánuði. Kvikusöfnun heldur þó áfram undir Svartsengi og er talið að um þrettán milljón rúmmetrar af kviku hafi bæst við í kvikuhólfið síðustu vikur. Hættumat fyrir svæðið er því enn í gildi. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir nýtt eldgos geta hafist aftur hvenær sem er.

„Það er komið ívið meira í kvikuhólfið en hefur verið í þessum eldgosum. Það getur farið að gjósa hvenær sem er en þó með þeim annmörkum að við förum klárlega að finna fyrir því á skjálftamælum áður úr því að það lokaðist þetta gat sem var syðst á sprungunni. Þessi breyting sem varð á gosinu sem varð  við það getur þýtt að það sé að verða breyting á eldsumbrotum á svæðinu.  Ég tel þannig að  það fari að styttast í Eldvörp sem er miðjan í flekaskilum á svæðinu,“ segir Ármann.

Eldvörp besta svæðið fyrir eldgos

Eldvörp séu einna hagstæðasta svæði fyrir eldgos.

„Landið þar er  flatt en þá dreifist hraunið vel og það hægir til muna á framrás kvikunnar. Hún nær ekki að koma sér í einfaldar rásir. Þannig að Eldvörpin eru besti staðurinn til að fá þetta. Ef þetta fer út í Eldvörp þá er mjög klárt að við fáum mjög sterka hrinu áður því kerfið þar er ekki alveg búið að opnast fyrir kvikuna. 

Verra væri ef kvikan brytist aftur upp í Sundhnúksgígaröðinni.

„Það er verra ef kvikan fer í Sundhnúkanna því þar hefur gosið nokkrum sinnum síðustu mánuði og sprungan því heit. Þar er tiltölulega auðvelt fyrir kvikuna að brjótast upp á yfirborðið. Þannig að ef eldgosið kemur upp þar þá verður það tiltölulega kröftugt í byrjun en svo dregur úr því,“ segir Ármann. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×