Innlent

Sendi­herra, sveitar­stjóri og bæjar­stjóri skipuð í nefnd

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Árni Þór Sigurðsson sendiherra fyrir utan sendiráð Íslands í Moskvu.
Árni Þór Sigurðsson sendiherra fyrir utan sendiráð Íslands í Moskvu.

Árni Þór Sigurðsson fyrrverandi sendiherra, Guðný Sverrisdóttir fyrrverandi sveitarstjóri og Gunnar Einarsson fyrrverandi bæjarstjóri munu taka sæti í sérstakri framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Árni Þór verður formaður nefndarinnar.

Lög um framkvæmdanefndina voru samþykkt á Alþingi fyrr í vikunni en hún tekur formlega til starfa 1. júní nk. Undirbúningur er þó hafinn og mun nefndin m.a. hitta bæjarstjórn Grindavíkurbæjar í næstu viku. Nefndin mun einnig eiga undirbúningsfundi með stofnunum á vegum ríkisins sem hafa unnið að viðbragði vegna jarðhræringa við Grindavík.

„Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ er mikilvægt skref til þess að skerpa á ábyrgð og hlutverki stjórnvalda um málefni Grindavíkur. Þetta skref er til góðs fyrir Grindvíkinga. En ekki síður fyrir samfélagið allt, sem stendur með Grindvíkingum á þessum erfiðu tímum,“ segir Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra.

Reynsluboltar á ferð

Árni Þór Sigurðsson sat á Alþingi um árabil en var áður borgarfulltrúi í Reykjavík um þrettán ára skeið og sat um tíma í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Árni Þór hefur starfað í utanríkisþjónustunni frá árinu 2015 og verið sendiherra Íslands í Finnlandi, Rússlandi og nú síðast í Danmörku.

Guðný Sverrisdóttir var sveitarstjóri Grýtubakkahrepps í tæp 27 ár, allt til ársins 2014. Guðný hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstöfum. Hún var lengi formaður ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og gegndi þeim störfum fram til ársins 2023.

Gunnar Einarsson var bæjarstjóri í Garðabæ um 17 ára skeið og þar áður forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs bæjarins. Gunnar hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum og var m.a. í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga um tólf ára skeið.

Hlutverk nefndarinnar

Framkvæmdanefndin mun fara með stjórn, skipulag og framkvæmd tiltekinna verkefna sem henni er falin með lögum, samhæfingu aðgerða, tryggja skilvirka samvinnu við Grindavíkurbæ, önnur stjórnvöld og aðra hlutaðeigandi aðila og hafa heildaryfirsýn yfir málefni Grindavíkurbæjar. Framkvæmdanefndin er fjölskipað og sjálfstætt stjórnvald sem hefur með höndum verkefni sem snúa að úrlausnarefnum sem tengjast jarðhræringunum við Grindavík.

Helstu verkefni nefndarinnar munu snúa að samfélagsþjónustu með því að starfrækja þjónustuteymi á sviði velferðar- og skólaþjónustu og þá mun nefndin hafa yfirumsjón með framkvæmdum og viðgerðum á mikilvægum innviðum í Grindavík.

Verkefnið hefur verið undirbúið í góðu samstarfi við bæjarstjórn Grindavíkur sem óskaði eftir samstarfi um tilhögun og stjórnarfyrirkomulag verkefna við óvenjulegar aðstæður vegna jarðhræringa í Grindavík.


Tengdar fréttir

Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki

Ríkisstjórnin leggur til stuðningslán til grindvískra heimila og fyrirækja í Grindavík að viðbættum viðspyrnustyrkjum, framhaldi launastuðnings og hráefnis- og afurðatryggingum. Þá verður sérstakur húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga framlengdur til áramóta. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×