Skoðun

Á­kall til fram­tíðar: Nám í fé­lags­ráð­gjöf!

Steinunn Bergmann skrifar

Nám í félagsráðgjöf er fimm ára háskólanám sem skiptist í þriggja ára BA nám og tveggja ára MA nám. BA námið byggir á fjölbreyttum námskeiðum meðal annars um áföll og þroska, fjölskyldur, fátækt, ofbeldi, úrræði velferðarkerfsins, fjölmenningu, fötlun, samfélagið, stjórnkerfi og löggjöf um velferðar- og fjölskyldumál. Þetta eru námskeið sem búa nemendur undir að vinna með fólki. Nemendur sem ljúka BA námi í félagsráðjgöf hafa verið eftirsóttir starfskraftar í velferðarkerfinu en flest kjósa að halda áfram námi, ýmist til starfsréttinda í félagsráðgjöf eða á öðrum sviðum. Í starfsréttindanáminu felst stór hluti námsins í starfsþjálfun utan Háskóla Íslands undir handleiðslu sérþjálfaðra starfsþjálfunarkennara. Félagsráðgjafar geta að loknu MA námi sótt um starfsleyfi í félagsráðgjöf til Embættis Landlæknis og leyfi til að reka heilbrigðisþjónustu. Þá er mögulegt að stunda doktorsnám við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands auk þess er boðið upp á margvíslegar diplomalínur í framhaldsnámi svo sem í áfengis- og vímuefnamálum, barnavernd, farsæld barna og öldrunarþjónustu.

Mikilvægi félagsráðgjafar

Félagsráðgjafar vinna með einstaklingum, fjölskyldum, hópum og samfélögum sem eru að glíma við sálfélagslegan vanda og vilja gera breytingar á stöðu sinni sér í hag. Þeir búa yfir víðtækri þekkingu og beita fjölbreyttum gagnreyndum aðferðum í vinnu sinni. Þeir hitta fyrir í sínum daglegu störfum þau sem standa höllum fæti og sæta jaðarsetningu, því gegna þeir mikilvægu málsvarahlutverki fyrir þau sem eiga erfitt með að tala sínu máli. Stærsti hópur félagsráðgjafa starfar innan félagsþjónustu sveitarfélaga, til dæmis við barnavernd og farsæld barna og þeim fjölgar sem starfa innan grunnskóla. Stór hópur starfar hjá Landspítala háskólasjúkrahúsi, innan heilsugæslu og á fjölmörgum öðrum stofnunum ríkisins, til dæmis fangelsismálastofnun. Félagsráðgjafar starfa við endurhæfingu hjá ýmsum stofnunum og það er aukin eftirspurn eftir félagsráðgjöfum hjá hinum ýmsu félagasamtökum sem koma að velferðarmálum. Einnig eru margir félagsráðgjafar að bjóða upp á þjónustu á einkareknum stofum. Félagsráðgjafar eru ein af lykilstéttum þegar náttúru vá steðjar að, til að tryggja velferð viðkvæmra hópa og alls almennings, ekki síst þegar rýma þarf vegna jarðskjálfta, eldgosa eða flóða.

Það er ekki bara aukin eftirspurn eftir félagsráðgjöfum hér á landi því félagsráðgjöf er sú faggrein sem er í hröðustum vexti um allan heim og tölfræði margra landa bendir til frekari vaxtar. Í Bandaríkjunum er áætlaður 16% vöxtur í félagsráðgjöf á tímabilinu 2016 til 2026 þrátt fyrir niðurskurð á tímabili Trump stjórnarinnar. Gögn sýna fram á að fjárfesting í velferðarþjónustu hefur jákvæð áhrif á efnahag þjóða. Þegar félagsráðgjafar eru virkir í samfélaginu þá hefur það jákvæð áhrif á afbrotatíðni, heilbrigðistölfræði, mætingar í skóla og atvinnu (Rory Truell, 2. júlí 2018 – the Guardian). Ísland hefur líkt og hin Norðurlöndin verið í fararbroddi í þróun velferðarþjónustu og eru mörg lönd sem líta til þeirra sem fyrirmyndarríkja á því sviði.

Að lokum

Félagsráðgjöf er vaxandi fag hér á landi og virði félagsráðgjafarmenntunar mikilvægt fyrir samfélagið. Félagsráðgjafar vinna að velferð viðkvæmra hópa og standa vörð um mannréttindi. Þeir eru málsvarar og benda á leiðir til úrbóta. Ég hvet ungt fólk sem nú íhugar hvaða háskólanám það ætlar að velja að kynna sér vel nám í félagsráðgjöf. Fagið er nú í hraðri endurnýjun og þarf öflugt fólk til að takast á við framtíðaráskoranir.

Höfundur er formaður Félagsráðgjafafélags Íslands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×