Býst við að Sveindís Jane sé klár fyrir leikina mikilvægu Þorsteinn Halldórsson, þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu, býst við að Sveindís Jane Jónsdóttir sé klár í slaginn fyrir leikina mikilvægu gegn Austurríki í undankeppni EM 2025. Fótbolti 21. maí 2024 18:00
Benítez ráðleggur Slot fyrir komuna til Liverpool Rafael Benítez, fyrrum stjóri Liverpool á Englandi, skrifaði heljarinnar grein stílaða á Arne Slot, verðandi knattspyrnustjóra félagsins, í breska miðilinn Telegraph í dag. Þar gaf hann Hollendingnum ráð fyrir komandi áskorun. Enski boltinn 21. maí 2024 17:16
Fyrrum besta knattspyrnukona heims framlengir við Barcelona Ein besta knattspyrnukona heims, Alexia Putellas, hefur ákveðið að framlengja samning sinn við Barcelona um tvö ár. Fótbolti 21. maí 2024 16:00
Ráðherrar reiðir út í leikmann í frönsku deildinni Íþróttamálaráðherra Frakklands hefur kallað eftir því að fótboltafélaginu AS Mónakó verði refsað fyrir framgöngu eins leikmanns liðsins í lokaumferðinni í frönsku deildinni um helgina. Fótbolti 21. maí 2024 14:30
Sara Björk ekki áfram hjá Juventus Juventus gaf það út á miðlum sínum í dag að íslenska knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir verður ekki áfram leikmaður ítalska félagsins. Fótbolti 21. maí 2024 12:55
Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Lillian Thuram var ekki par sáttur með son sinn, Marcus Thuram, þegar hann hoppaði og klappaði fyrir lagi sem gerir lítið úr Juventus. Fótbolti 21. maí 2024 11:32
Toni Kroos hættir eftir EM í sumar Þýski knattspyrnumaðurinn Toni Kroos tilkynnti það í dag á samfélagsmiðlum sínum að hann ætli að leggja fótboltaskóna á hilluna eftir Evrópumótið í sumar. Fótbolti 21. maí 2024 11:07
Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Eigendur Inter Milan virðast ófærir um að endurgreiða neyðarlán sem félagið tók árið 2021. Þeir hafa til klukkan 15 í dag til að endurgreiða 375 milljónir evra, annars fer félagið í hendur bandaríska fjárfestingasjóðsins Oaktree Capital. Fótbolti 21. maí 2024 10:01
Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Það þótti heldur óvænt þegar tilkynnt var að Roberto De Zerbi myndi yfirgefa enska úrvalsdeildarfélagið Brighton & Hove Albion nú í sumar. Nú hefur verið greint frá því hvers vegna hann mun leita á önnur mið. Enski boltinn 20. maí 2024 23:31
Völdu Albert í lið ársins Fjölmiðillinn IFTV, Italian Football, TV, hefur valið landsliðsmanninn Albert Guðmundsson í lið ársins í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Fótbolti 20. maí 2024 22:31
Tuchel daðrar við Man United og Chelsea Þýski knattspyrnustjórinn Thomas Tuchel virðist hafa mikinn áhuga á að snúa aftur til Englands en hann stýrði Chelsea frá janúar 2021 til síðla árs 2022. Hann er nú orðaður við Manchester United sem og Chelsea á nýjan leik. Enski boltinn 20. maí 2024 21:30
Juventus skoraði þrjú á átta mínútum og bjargaði stigi Bologna komst 3-0 yfir gegn Juventus í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í fótbolta, en Juventus kom til baka og bjargaði stigi. Fótbolti 20. maí 2024 20:51
Tel að ég geti hjálpað liðinu að ná í fleiri sigra Aron Sigurðarson, leikmaður KR, var að vonum ánægður með sigur liðsins gegn FH þegar hann mætti í viðtal til Gunnlaugs Jónssonar strax að leik loknum. Aron kom KR yfir með marki úr vítaspyrnu eftir rúmlega hálftíma leik en það var hans fyrsta mark fyrir KR í deildinni. Íslenski boltinn 20. maí 2024 20:01
„Okkar langar rosalega að klífa upp töfluna“ Hallgrími Jónassyni, þjálfara KA, var eðlilega létt eftir að KA nældi í sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla í fótbolta eftir brösulega byrjun á tímabilinu. Íslenski boltinn 20. maí 2024 19:30
Hlín á skotskónum og Guðrún vann toppslaginn Hlín Eiríksdóttir skoraði bæði mörk Kristianstad sem vann 2-0 útisigur á Vaxjö í efstu deild kvenna í fótbolta í Svíþjóð. Guðrún Arnardóttir stóð vaktina í vörn Rosengård sem lagði Hammarby í toppslag deildarinnar. Fótbolti 20. maí 2024 19:25
Sverrir Ingi á skotskónum í ótrúlegum leik Miðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason bjargaði stigi fyrir Midtjylland þegar liðið kom til baka eftir að lenda 3-0 undir gegn Nordsjælland í næstsíðustu umferð dönsku úrvalsdeildar karla í fótbolta. Lokatölur 3-3 og Midtjylland nú jafnt Bröndby að stigum fyrir lokaumferðina. Fótbolti 20. maí 2024 18:07
Liverpool staðfestir komu Slot Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur staðfest að hinn hollenski Arne Slot verði næsti þjálfari liðsins. Hann skrifar undir þriggja ára samning. Enski boltinn 20. maí 2024 17:36
Víkingarnir fyrrverandi öflugir í Noregi Júlíus Magnússon og Logi Tómasson, fyrrverandi leikmenn Víkings hér á landi, spiluðu í dag stóra rullu í sigrum liða sinna í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fótbolti 20. maí 2024 17:15
Hildur, María og Lára urðu að sætta sig við silfur í bikarúrslitaleiknum Íslendingaliðið Fortuna Sittard tapaði í dag 3-1 á móti Ajax í hollenska bikarúrslitaleiknum sem fór fram á Koning Willem II leikvanginum. Fótbolti 20. maí 2024 14:26
Fékk rautt spjald fyrir brot á Sveindísi sem fór meidd af velli Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir fór meidd af velli eftir aðeins 22 mínútna leik í dag. Fótbolti 20. maí 2024 14:06
Draumainnkoma Sævars Atla breytti leiknum Sævar Atli Magnússon skoraði tvö mörk fyrir Lyngby í dag í 3-1 sigri á Viborg í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 20. maí 2024 14:02
Besiktas segist vera að ræða við Mourinho Allt lítur út fyrir að næsta starf knattspyrnustjórans José Mourinho verði í Tyrklandi. Fótbolti 20. maí 2024 11:31
Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Það muna eflaust einhverjir eftir Bomber Bo, Dananum Bo Henriksen, sem spilaði með þremur íslenskum félögum á árunum 2005 til 2006. Nú er kappinn að gera góða hluti sem þjálfari og er kallaður kraftaverkamaður í Mainz. Fótbolti 20. maí 2024 10:00
„Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Enski landsliðsmaðurinn Phil Foden lauk frábæru tímabili í ensku úrvalsdeildinni með tveimur mörkum er lokaumferðinni sem fram fór í gær. Fótbolti 20. maí 2024 08:01
Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Hákon Arnar Haraldsson skoraði fyrra mark Lille er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Nice í lokaumferð frönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 19. maí 2024 20:58
Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Jürgen Klopp stýrði Liverpool í síðasta sinn í dag þegar liðið vann 2-0 sigur gegn Wolves í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Fótbolti 19. maí 2024 20:00
Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í KV Kortrijk unnu mikilvægan 1-0 sigur er liðið heimsótti Lommel í umspili um laust sæti í efstu deild Belgíu í kvöld. Fótbolti 19. maí 2024 19:11
Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Nýkrýndir Spánarmeistarar Real Madrid gerðu 4-4 jafntefli er liðið heimsótti Villarreal í næstsíðustu umferð spænsku deildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 19. maí 2024 19:01
Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Breiðablik vann Stjörnuna 4-3 og er komið áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna. Venjulegum leiktíma lauk með 3-3 jafntefli en úrslitin réðust á kolröngum vítaspyrnudómi sem féll gegn Stjörnunni. Agla María steig á punktinn og skoraði sigurmarkið. Íslenski boltinn 19. maí 2024 18:45
Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Albert Guðmundsson og félagar hans í Genoa máttu þola 1-0 tap er liðið heimsótti Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 19. maí 2024 18:16
Uppgjör, viðtöl og myndir: HK - Breiðablik 0-2 | Blikar lönduðu þremur stigum í Kórnum Íslenski boltinn