Handbolti

Jóhanna Margrét frá­bær í góðum sigri Skara

Smári Jökull Jónsson skrifar
Jóhanna Margrét í leik með íslenska landsliðinu.
Jóhanna Margrét í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Getty

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir átti stórleik fyrir lið Skara þegar liðið mætti Sävehof í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Jóhanna Margrét og Skara tryggðu sér sæti í undanúrslitum með því að slá út lið Höör í 8-liða úrslitum. Leikurinn gegn Sävehof í kvöld var fyrsti leikur liðanna í undanúrslitum og var leikið á heimavelli Sävehof.

Jóhanna Margrét átti heldur betur frábært kvöld fyrir Skara. Hún var markahæst í liðinu með 8 mörk þegar Skara vann 24-23 sigur. Hún skoraði mikilvæg mörk á lokakafla leiksins og var sú sem sá til þess að Skara stal heimavallaréttinum með sigri í þessum fyrsta leik.

Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði eitt mark fyrir Skara í kvöld. Vinna þarf þrjá leiki til að fara í úrslitaeinvígið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×