Innlent

Dæmdur fyrir mann­dráp af gá­leysi vegna ofsaaksturs undir á­hrifum

Jón Þór Stefánsson skrifar
Eins og sjá má urðu miklar skemmdir á ökutækinu við bílveltuna. Bíllinn hafnaði 176 metrum frá staðnum þar sem hann fór út af veginum.
Eins og sjá má urðu miklar skemmdir á ökutækinu við bílveltuna. Bíllinn hafnaði 176 metrum frá staðnum þar sem hann fór út af veginum. RNSA

Karlmaður hefur hlotið níu mánaða fangelsisdóm, en þar af eru sex mánuðir skilorðsbundinir til tveggja ára, í Héraðsdómi Suðurlands fyrir manndráp af gáleysi. Maðurinn ók bíl sem endaði utan vegar við Meðallandsveg, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um nótt í júli 2022.

Einn farþegi, tvítug kona, sem var í aftursæti bílsins lést og annar farþegi slasaðist.

Í ákæru segir að maðurinn hafi ekið bílnum undir áhrifum áfengis, en víndandmagn í blóði mældist 1,23 prósent.

Manninum var gefið að sök að aka á 174 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var níutíu kílómetrar á klukkustund. Vegna þess hafi hann ekki haft fullt vald á bílnum sem varð til þess að hann missti stjórn, fór þvert yfir báðar akreinar vegarins og hafnaði utan vegar og valt síðan fjórar veltur.

Maðurinn játaði sök, en í dómi málsins segir að hann hafi sýnt mikla iðrun og„ljóst að sakarefni máls þessa er honum þungbær.”

Rannsóknarnefnd samgönguslysa fjallaði um málið í skýrslu árið 2023. Lesa má nánar um það hér.

Í þeirri skýrslu kemur fram að hin látna hafi látist vegna fjöláverka. Þá slösuðust tveir aðrir farþegar alvarlega en annar þeirra var í framsæti og hinn í aftursæti. Ökumaðurinn hlaut sjálfur minniháttar áverka. Þá segir að allir hafi verið í öryggisbelti þegar slysið varð.

Margar milljónir í bótagreiðslur

Dómnum þótti sannað að maðurinn hefði gerst sekur um það sem honum er gefið að sök. Líkt og áður segir hlaut hann níu mánaða fangelsisdóm, þar sem sex mánuðir eru skilorðsbundnir. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að hann hefði ekki hlotið refsingu áður. Þá er maðurinn sviptur ökurétti í tvö ár og sex mánuði.

Manninum er einnig gert að greiða farþeganum sem var í bílnum en lifði af tvær milljónir í miskabætur og 250 þúsund í málskostnað.

Honum er einnig gert að greiða öðrum einstaklingum bætur vegna málsins, annar þeirra fær 1,3 milljónir í skaðabætur og 3,5 milljónir í miskabætur. Og hinn fær 3,5 milljónir í miskabætur.

Þar að auki er manninum gert að greiða rúmar 1,8 milljónir króna í sakarkostnað.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×