Handbolti

Úr húsvarðarstarfi í at­vinnu­mennsku

Valur Páll Eiríksson skrifar
Einar Bragi átti viðburðarríka viku í meira lagi.
Einar Bragi átti viðburðarríka viku í meira lagi. Vísir/Einar

Óhætt er að segja að handboltamaðurinn Einar Bragi Aðalsteinsson hafi átt viðburðarríka viku. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik og skrifaði undir atvinnumannasamning erlendis.

Einar Bragi er uppalinn í HK en hefur síðan 2022 verið leikmaður FH sem er komið í úrslit Íslandsmótsins. Hann er 21 árs gamall og hefur farið mikinn með FH-ingum en hann sinnir handboltanum samhliða ýmsu öðru, þar á meðal er hann húsvörður í verslunarkjarna í Mosfellsbæ hvar fréttamaður hitti á Einar að störfum.

Þegar meiðsli komu upp í íslenska landsliðshópnum í síðasta verkefni fékk hann kallið í A-landsliðið í fyrsta sinn, fyrir umspilsleiki við Eistland. En hvernig var að klæðast bláu treyjunni?

„Tilfinningin var æðisleg. Gríðarlegur heiður og frábært að fá að taka þátt í þessu verkefni. Auðvitað voru þetta leikir um að fá að taka þátt í HM. Það er talsverð reynsla fólgin í þessu og mjög gaman,“ segir Einar Bragi. En kom á á óvart að fá kallið?

„Nei, það kom mér ekki á óvart. Þó svo það hafi auðvitað mikið gengið á og nokkrir dottið út, þá er maður klár þegar kallið kemur.“

Fyrsta skrefið í háum stiga

Þegar leið á vikuna komu næstu stórfréttir. Einar Bragi er á leið út í atvinnumennsku og flytur til Kristianstad í Svíþjóð í sumar.

„Mér líður mjög vel með það. Ég er gríðarlega ánægður með þetta skref. Ég fann það þegar þetta kom á borðið að þetta væri eitthvað sem mig langaði til. Þeir sóttust mikið eftir því að fá mig og ég var mjög ánægður með það,“ segir Einar Bragi.

Einhver önnur lið höfðu áhuga en honum líst vel á verkefnið í Kristianstad.

„Eftir að hafa melt þetta var það frekar að velja klúbbinn en deildina. Eins og menn sem fylgjast með handbolta vita þá er gæðamunurinn ekkert gígantískur á íslensku deildinni og sænsku. Þetta er atvinnumannaklúbbur, það er það sem maður leitar í. Maður þarf bara verkfærið og svo vinnur maður úr því,“ segir Einar Bragi. Þetta sé skref upp á við en fleiri skref séu fram undan.

„Algjörlega. Þó svo að ég sé með fulla einbeitingu núna á FH, svo er þetta, þá er fókusinn þar en það er bara eitt í einu,“ segir Einar Bragi.

Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×