Skoðun

Sagan sem verður að segja

Drífa Snædal skrifar

Það er komin vika síðan Blessing, Mary og Esther voru handteknar eins og glæpamenn hent í fangelsi að Hólmsheiði, neitað um heimsóknir (jafnvel presta og sálfræðinga) og síðan neyddar úr landi ásamt öðrum manni frá Nígeríu á mánudeginum. Þær eru að flýja mansal (skipulagðar nauðganir er reyndar réttnefni) sem þær voru hnepptar í árum saman. Það er þeirra glæpur.

Þær voru búnar að vera hér í mörg ár, stunda íslenskunám, eignast vini og reyna þrátt fyrir óörugga stöðu að vinna úr röð áfalla. Blessing var veik, þurfti á blóðgjöf að halda og utanumhaldi síðustu vikur, fyrir því var læknisvottorð frá Landspítalanum.

Hópur Íslendinga sem er ekki sama um þær hafa síðan reynt að afla upplýsinga og vera þeim til aðstoðar. Það er nefninlega þannig að þær voru skildar eftir á flugvellinum í Lagos, án skilríkja, án peninga og án bjargráða. Þannig förum við með mansalsþolendur og þetta þarf þjóðin að vita. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir fengum við ekki að vita hvert þær yrðu sendar eða hvenær þær myndu lenda fyrr en um tveim tímum fyrir lendingu í Nígeríu. Við áttum því erfitt með að finna einhvern til að taka á móti þeim þó það hafi verið reynt.

Eftir mikil og flókin samskipti var hægt að panta fyrir þær gistiaðstöðu í Lagos. Þær eru hræddar, óttast um öryggi sitt, svangar og í áfalli. Nú reynum við af öllum mætti að finna handa þeim athvarf í gegnum alþjóðlegt net kvenna sem berjast gegn ofbeldi. Við vitum ekki hvort það gangi en erum á þessari stundu nokkuð vongóð. Næstu dagar skera úr um það.

Það er nefninlega ekki þannig að þegar við hendum fólki úr landi eins og einhverju rusli að þar með sé sagan búin. Framkoma okkar hefur afleiðingar þó við fréttum ekki endilega af því. Grimmd íslenska ríkisins gagnvart þessum konum er eitthvað sem ég á erfitt með að skilja. Ekki nóg með að koma fram við þær eins og glæpamenn heldur virðist ekkert hafa verið gert til að tryggja öryggi þeirra, ekki svo mikið sem haft samband við hjálparsamtök þarna úti.

Stjórnmálafólki þykir þetta frekar miður og jafnvel sárt, en þetta er manngerður vandi og ég kalla fólk í valdastöðum til ábyrgðar. Fólk sem hefur samþykkt meiri hörku, neitað mansalsþolendum um skjól og fólk sem framkvæmir hörkuna án þess að blikna.

Á sama tíma fylgjumst við með forsetafrabjóðendum ræða mannréttindi, lýðræði og umburðalyndi. Það er svo mikilvægt. Enginn þeirra hefur fordæmt þessar aðgerðir. Þetta er eins og að búa í hliðarveruleika við grimmdina.

Ég fer fram á að mál Esther, Mary og Blessing falli ekki í gleymsku, ég fer fram á að við aðstoðum þær og reynum að draga úr skaðanum og ég fer fram á að fólk í valdastöðum geti ekki bara hrist þetta af sér eins og einhver óþægindi heldur verður gert ábyrgt fyrir grimmdinni.

Höfundur er talskona Stígamóta.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×