Golf

Schauffele heldur for­ystunni en Tiger langt frá niður­skurðinum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Xander Schauffele er í góðum málum eftir annan keppnisdag PGA-meistaramótsins.
Xander Schauffele er í góðum málum eftir annan keppnisdag PGA-meistaramótsins. Michael Reaves/Getty Images

Eftir annan keppnisdag á PGA-meistaramótinu í golfi er Xander Schauffele enn á toppnum. Tiger Woods átti hins vegar afleitan dag og var langt frá því að ná niðurskurðinum.

Schauffele hélt góðri spilamennsku sinni áfram í dag og fékk þrjá fugla á fyrri níu holum hringsins. Hann nældi sér þó í skolla á elleftu holu, eftir tvo fugla í röð á níundu og tíundu, en það var fyrsti og eini skollinn hans á mótinu til þessa.

Schauffele endaði hringinn á 68 höggum, eða þremur höggum undir pari, og hefur því samtals leikið á tólf höggum undir pari. Hann leiðir með einu höggi, en Collin Morikawa situr í öðru sæti á ellefu höggum undir pari og Sahith Theegala situr í þriðja sæti á tíu höggum undir pari. Þó hafa ekki allir lokið leik þegar þetta er ritað.

Hins vegar átti Tiger Woods, einn besti kylfingur allra tíma, ekki góðan dag á Valhalla-vellinum í dag. Hann lék fyrstu fjórar holur dagsins á sjö höggum yfir pari og gróf sig þar með niður í holu sem hann komst aldrei upp úr. Alls lék Tiger á 77 höggum, eða sjö höggum yfir pari vallarins og var langt frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.

Til að ná niðurskurðinum þurftu kylfingar að vera á einu höggi undir pari.

PGA-meistaramótið er í beinni á Stöð 2 Sport 4 alla helgina en bein útsending frá öðrum hring mótsins hefst klukkan 18:00 á Stöð 2 Sport 4 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×