Innlent Hryðjuverkadraumórar raktir ítarlega í nýrri ákæru Órum tveggja sakborninga í hryðjuverkamálinu svonefnda um að myrða nafngreint fólk og fremja hryðjuverk er lýst ítarlega í nýrri ákæru sem þingfest var í málinu í dag. Mennirnir tveir sóttu sér einnig efni um þekkta hryðjuverkamenn eins og Anders Behring Breivik. Innlent 12.6.2023 15:14 Finna engar skýringar á árásum unglinga á strætisvagna Myndavélar hafa verið settar upp í strætisvögnum Akureyrar eftir að hópur unglinga réðst á kvenkyns bílstjóra í maíbyrjun. Vitað er hverjir gerendurnir eru en málið verður ekki kært til lögreglu. Innlent 12.6.2023 15:10 Séra Kristján áfram vígslubiskup í Skálholti Séra Kristján Björnsson hefur verið endurkjörinn vígslubiskup í Skálholtsumdæmi. Þetta varð ljóst í hádeginu þegar kjörinu lauk, en það stóð yfir dagana 7. til 12. júní. Innlent 12.6.2023 14:35 Skapar samfélag mæðra eftir fæðingu: „Þetta snýst um móðurina ekki barnið“ Elín Ásbjarnardóttir Strandberg gerði heimspekilega viðtalsrannsókn á mæðrum eftir fæðingu barns. Flestar mæðranna upplifðu ekki bleika skýið þegar þær fengu barnið í hendurnar og nánast öllum fannst sjálf þeirra hafa stækkað. Í samvinnu við ljósmæður hefur hún þróað samfélag fyrir mæður eftir fæðingu. Innlent 12.6.2023 13:54 Ræðukóngurinn ekki þekktur fyrir málgleði utan þingsalarins Ræðukóngur liðins þingvetrar segir það ekki vera sérstakt markmið að tala sem mest í ræðupúlti Alþingis. Það hafi einfaldlega verið svo oft sem tilefni hafi verið til þess að taka til máls. Aðeins eitt þingmannamál stjórnarandstöðunnar var samþykkt á þessu 153. löggjafarþingi. Innlent 12.6.2023 13:13 Vill frekar eyða fjármunum í þjónustu við fatlaða en bætur Borgarstjóri segir Reykjavíkurborg í óþolandi þröngri stöðu gagnvart málaflokki fatlaðs fólks sem bíður eftir tímasettum áætlunum þegar kemur að húsnæðisúrræðum. Milljarða vanti í málaflokkinn og svör frá ríkinu um fjármögnum frestast í sífellu. Innlent 12.6.2023 12:30 Flutt inn í smáhýsin í Laugardal á næstu dögum Búið er að úthluta fimm smáhýsum í Laugardal til heimilislausra í Reykjavík. Borgin hefur verið gagnrýnd fyrir þann langa tíma sem húsin stóðu auð en formaður velferðarráðs segir það hafa tekið eðlilegan tíma að úthluta hýsunum. Innlent 12.6.2023 11:49 Segir þunglyndi og offitu meiri á Íslandi en víðast hvar Hjúkrunarfræðingurinn og næringarþerapistinn Þorbjörg Hafsteinsdóttir telur ekki ólíklegt að Íslendingar séu sólgnari í sykur en aðrar þjóðir. Innlent 12.6.2023 11:46 Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum segjum við frá því að búið er að úthluta fimm smáhýsum til heimilislausra í Reykjavík en borgin hafði legið undir ámæli fyrir seinagang í því að koma húsunum í notkun. Innlent 12.6.2023 11:36 Keypti eftirlíkingu á 27 milljónir og situr uppi með Svarta-Pétur Noah Siegel, bandarískur fjárfestir, pókerspilari og skákmaður, keypti taflborð í þeirri trú að um væri að ræða borð sem notað var í einvígi aldarinnar milli þeirra Bobby Fischers og Borisar Spasskí. Hins vegar kom á daginn að um var að ræða eftirlíkingu og Siegel keypti þannig köttinn í sekknum. Innlent 12.6.2023 09:02 Stúlkan sem lögregla lýsti eftir er fundin heil á húfi Stúlka sem lögregla á Suðurnesjum lýst eftir fyrr í morgun eftir að hún hafði ekki skilað sér heim er fundin heil á húfi. Innlent 12.6.2023 08:50 Nauðsynlegt að „spenna beltið“ þegar kemur að netöryggi „Við getum í raun ekki starfað lengur sem litli sveitaskólinn sem enginn hefur áhuga á. Við verðum að horfa á þetta þannig að við erum skotmark; verðum að gera ráð fyrir því þannig að við séum betur í stakk búin þegar eitthvað kemur upp á.“ Innlent 12.6.2023 07:38 Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra lang fyrirferðarmesta málið Alls voru haldnir 123 þingfundir á 153. löggjafarþingi, sem lauk á föstudag. Þingfundadagar voru 105 og stóðu þingfundirnir í samtals 659 og hálfa klukkustund. Innlent 12.6.2023 07:03 Skoðunar- og nagladekkjatrassar í sigti lögreglu Vaktin í gærkvöldi og nótt virðista hafa verið með rólegra móti hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem fór þó eftirför á eftir ökumanni stolinnar bifreiðar. Innlent 12.6.2023 06:17 Meirihlutann skorti viljann en ekki lóðir Byggingarfyrirtæki fær ekki úthlutaða lóð þrátt fyrir að áform þeirra gætu betrumbætt húsnæðismarkaðinn í Reykjavík. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir svör borgarinnar og segir fordæmalaus verkefni þurfa fordæmalausar lausnir. Innlent 11.6.2023 23:00 Spyr hver beri ábyrgð á bílhræi Kona sem rekur ferðaþjónustufyrirtæki spyr sig hver beri ábyrgð á bílhræi, sem legið hefur í vegkanti í sveitinni síðan á aðfaranótt laugardags. Hún segir vegfarendur um fjölfarinn veginn stöðva við hræið og það valdi þannig slysahættu. Innlent 11.6.2023 21:59 Segir borgina brjóta lög með verklagi sínu sem snerti á annað hundrað manns Reykjavíkurborg brýtur lög með verklagi sínu í kringum biðlista einstaklinga eftir sértækum húsnæðisúrræðum að sögn lögmanns Landssamtakanna Þroskahjálp. Á annað hundrað manns eru á biðlista og enginn veit hvenær röðin kemur að honum. Innlent 11.6.2023 21:00 Þrír handteknir af sérsveit í morgunsárið Í umdæmi lögreglustöðvarinnar á Vínlandsleið í Reykjavík var tilkynnt um hnífstungu í morgunsárið. Sá sem fyrir árásinni varð náði að koma sér sjálfur út úr íbúðinni, þar sem hún var framin, og óskaði eftir aðstoð. Innlent 11.6.2023 19:09 Nauðgaði stjúpdóttur æskuvinar sem varaði hann við að reyna við gifta konu Ingi Valur Davíðsson, Ólafsfirðingur á fertugsaldri, hefur verið dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að nauðga sextán ára stjúpdóttur æskuvinar síns. Fyrir dómi bar maðurinn það fyrir sig að stúlkan hefði „gefið honum merki“ um að hún vildi stunda með honum kynlíf. Innlent 11.6.2023 18:52 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Reykjavíkurborg brýtur lög með verklagi sínu í kringum biðlista einstaklinga eftir sértækum húsnæðisúrræðum að sögn lögmanns Landssamtakanna Þroskahjálp. Á annað hundrað manns eru á biðlista og enginn veit hvenær röðin kemur að þeim. Innlent 11.6.2023 17:50 Smáhýsin í Laugardal standa enn auð Smáhýsi fyrir heimilislaust fólk í Laugardal, sem reist voru í lok febrúar standa enn auð. Ragnar Erling Hannesson, sem hefur beitt sér í málefnum heimilislausra segir ástandið í málaflokknum grafalvarlegt. Innlent 11.6.2023 17:30 Hjólaslys í Laugardal Lögregla og sjúkrabílar voru kölluð til í Laugardal nú fyrir stundu vegna einstaklings sem fallið hafði af rafmagnshlaupahjóli. Innlent 11.6.2023 16:46 Þurfa að fara í „veiðiferð“ til að nálgast metan „Við erum að kljást við það lúxusvandamál að það hefur aldrei verið selt meira af metan heldur en um þessar mundir. Eftirspurnin hefur vaxið umfram það sem við höfum getað framleitt,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson upplýsingafulltrúi Sorpu. Innlent 11.6.2023 16:18 Fundu erfðabreytu sem hefur áhrif á tónhæð raddar Rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar á upptökum af tali um þrettán þúsund Íslendinga varpar ljósi á erfðabreytu sem hefur áhrif á hversu djúp eða há röddin er. Erfðabreytan er sú fyrsta sem vitað er að hafi áhrif á tónhæð að sögn vísindamanns. Innlent 11.6.2023 15:00 „Við erum öll öðruvísi en allir hinir“ Kristján Hreinsson, skáld, segir taka þurfi umræðuna um minnihlutahópa á „æðra stig“. Við séum öll öðruvísi og „enginn geti í krafti einhverrar hneigðar eða einhverjar upplifunar, ákveðið að hann sé sérstakri en einhver annar“. Innlent 11.6.2023 14:38 Þorgerður Katrín bregst við gagnrýni: „Þessi leiðu mistök breyta hins vegar ekki stóru myndinni“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar viðurkennir að hafa ranglega sagt formann Samtaka fyrirtækja í landbúnaði og aðstoðarforstjóra Kaupfélags Skagfirðinga vera heiðursræðismann Rússa á Íslandi. Um er að ræða forstöðumann kjötafurðarstöðvar Kaupfélags Skagfirðinga sem samhliða störfum sínum fyrir Kaupfélagið er heiðursræðismaður Rússlands hér á landi. Innlent 11.6.2023 14:01 Komi til allsherjarverkfalls muni það hafa gríðarleg áhrif Innlent 11.6.2023 12:27 Kallar eftir samstöðu og býst við lækkun verðbólgu Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir þörf á heildarlausn við verðbólguvandanum. Forsvarsmenn mismunandi fylkinga þurfi að setjast niður og setja saman stefnu fyrir framtíðina. Hann segist einnig telja að verðbólga muni lækka hraðar en spár geri ráð fyrir. Innlent 11.6.2023 12:24 Hádegisfréttir Bylgjunnar Rafiðnaðarsamband Íslands reiknar fastlega með því að til verkfalla komi í lok mánaðar að sögn varaformanns sambandsins, þar sem ekki hefur tekist að semja um kjarasamning við Landsnet. Verkfall muni hafa áhrif á raforkudreifingu á landinu öllu. Innlent 11.6.2023 11:37 Nýbyggingar, endurvinnsla og seðlabankastjóri á Sprengisandi Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er á dagskrá Bylgjunnar frá klukkan tíu til klukkan tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem efst eru á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 11.6.2023 09:30 « ‹ 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Hryðjuverkadraumórar raktir ítarlega í nýrri ákæru Órum tveggja sakborninga í hryðjuverkamálinu svonefnda um að myrða nafngreint fólk og fremja hryðjuverk er lýst ítarlega í nýrri ákæru sem þingfest var í málinu í dag. Mennirnir tveir sóttu sér einnig efni um þekkta hryðjuverkamenn eins og Anders Behring Breivik. Innlent 12.6.2023 15:14
Finna engar skýringar á árásum unglinga á strætisvagna Myndavélar hafa verið settar upp í strætisvögnum Akureyrar eftir að hópur unglinga réðst á kvenkyns bílstjóra í maíbyrjun. Vitað er hverjir gerendurnir eru en málið verður ekki kært til lögreglu. Innlent 12.6.2023 15:10
Séra Kristján áfram vígslubiskup í Skálholti Séra Kristján Björnsson hefur verið endurkjörinn vígslubiskup í Skálholtsumdæmi. Þetta varð ljóst í hádeginu þegar kjörinu lauk, en það stóð yfir dagana 7. til 12. júní. Innlent 12.6.2023 14:35
Skapar samfélag mæðra eftir fæðingu: „Þetta snýst um móðurina ekki barnið“ Elín Ásbjarnardóttir Strandberg gerði heimspekilega viðtalsrannsókn á mæðrum eftir fæðingu barns. Flestar mæðranna upplifðu ekki bleika skýið þegar þær fengu barnið í hendurnar og nánast öllum fannst sjálf þeirra hafa stækkað. Í samvinnu við ljósmæður hefur hún þróað samfélag fyrir mæður eftir fæðingu. Innlent 12.6.2023 13:54
Ræðukóngurinn ekki þekktur fyrir málgleði utan þingsalarins Ræðukóngur liðins þingvetrar segir það ekki vera sérstakt markmið að tala sem mest í ræðupúlti Alþingis. Það hafi einfaldlega verið svo oft sem tilefni hafi verið til þess að taka til máls. Aðeins eitt þingmannamál stjórnarandstöðunnar var samþykkt á þessu 153. löggjafarþingi. Innlent 12.6.2023 13:13
Vill frekar eyða fjármunum í þjónustu við fatlaða en bætur Borgarstjóri segir Reykjavíkurborg í óþolandi þröngri stöðu gagnvart málaflokki fatlaðs fólks sem bíður eftir tímasettum áætlunum þegar kemur að húsnæðisúrræðum. Milljarða vanti í málaflokkinn og svör frá ríkinu um fjármögnum frestast í sífellu. Innlent 12.6.2023 12:30
Flutt inn í smáhýsin í Laugardal á næstu dögum Búið er að úthluta fimm smáhýsum í Laugardal til heimilislausra í Reykjavík. Borgin hefur verið gagnrýnd fyrir þann langa tíma sem húsin stóðu auð en formaður velferðarráðs segir það hafa tekið eðlilegan tíma að úthluta hýsunum. Innlent 12.6.2023 11:49
Segir þunglyndi og offitu meiri á Íslandi en víðast hvar Hjúkrunarfræðingurinn og næringarþerapistinn Þorbjörg Hafsteinsdóttir telur ekki ólíklegt að Íslendingar séu sólgnari í sykur en aðrar þjóðir. Innlent 12.6.2023 11:46
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum segjum við frá því að búið er að úthluta fimm smáhýsum til heimilislausra í Reykjavík en borgin hafði legið undir ámæli fyrir seinagang í því að koma húsunum í notkun. Innlent 12.6.2023 11:36
Keypti eftirlíkingu á 27 milljónir og situr uppi með Svarta-Pétur Noah Siegel, bandarískur fjárfestir, pókerspilari og skákmaður, keypti taflborð í þeirri trú að um væri að ræða borð sem notað var í einvígi aldarinnar milli þeirra Bobby Fischers og Borisar Spasskí. Hins vegar kom á daginn að um var að ræða eftirlíkingu og Siegel keypti þannig köttinn í sekknum. Innlent 12.6.2023 09:02
Stúlkan sem lögregla lýsti eftir er fundin heil á húfi Stúlka sem lögregla á Suðurnesjum lýst eftir fyrr í morgun eftir að hún hafði ekki skilað sér heim er fundin heil á húfi. Innlent 12.6.2023 08:50
Nauðsynlegt að „spenna beltið“ þegar kemur að netöryggi „Við getum í raun ekki starfað lengur sem litli sveitaskólinn sem enginn hefur áhuga á. Við verðum að horfa á þetta þannig að við erum skotmark; verðum að gera ráð fyrir því þannig að við séum betur í stakk búin þegar eitthvað kemur upp á.“ Innlent 12.6.2023 07:38
Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra lang fyrirferðarmesta málið Alls voru haldnir 123 þingfundir á 153. löggjafarþingi, sem lauk á föstudag. Þingfundadagar voru 105 og stóðu þingfundirnir í samtals 659 og hálfa klukkustund. Innlent 12.6.2023 07:03
Skoðunar- og nagladekkjatrassar í sigti lögreglu Vaktin í gærkvöldi og nótt virðista hafa verið með rólegra móti hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem fór þó eftirför á eftir ökumanni stolinnar bifreiðar. Innlent 12.6.2023 06:17
Meirihlutann skorti viljann en ekki lóðir Byggingarfyrirtæki fær ekki úthlutaða lóð þrátt fyrir að áform þeirra gætu betrumbætt húsnæðismarkaðinn í Reykjavík. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir svör borgarinnar og segir fordæmalaus verkefni þurfa fordæmalausar lausnir. Innlent 11.6.2023 23:00
Spyr hver beri ábyrgð á bílhræi Kona sem rekur ferðaþjónustufyrirtæki spyr sig hver beri ábyrgð á bílhræi, sem legið hefur í vegkanti í sveitinni síðan á aðfaranótt laugardags. Hún segir vegfarendur um fjölfarinn veginn stöðva við hræið og það valdi þannig slysahættu. Innlent 11.6.2023 21:59
Segir borgina brjóta lög með verklagi sínu sem snerti á annað hundrað manns Reykjavíkurborg brýtur lög með verklagi sínu í kringum biðlista einstaklinga eftir sértækum húsnæðisúrræðum að sögn lögmanns Landssamtakanna Þroskahjálp. Á annað hundrað manns eru á biðlista og enginn veit hvenær röðin kemur að honum. Innlent 11.6.2023 21:00
Þrír handteknir af sérsveit í morgunsárið Í umdæmi lögreglustöðvarinnar á Vínlandsleið í Reykjavík var tilkynnt um hnífstungu í morgunsárið. Sá sem fyrir árásinni varð náði að koma sér sjálfur út úr íbúðinni, þar sem hún var framin, og óskaði eftir aðstoð. Innlent 11.6.2023 19:09
Nauðgaði stjúpdóttur æskuvinar sem varaði hann við að reyna við gifta konu Ingi Valur Davíðsson, Ólafsfirðingur á fertugsaldri, hefur verið dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að nauðga sextán ára stjúpdóttur æskuvinar síns. Fyrir dómi bar maðurinn það fyrir sig að stúlkan hefði „gefið honum merki“ um að hún vildi stunda með honum kynlíf. Innlent 11.6.2023 18:52
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Reykjavíkurborg brýtur lög með verklagi sínu í kringum biðlista einstaklinga eftir sértækum húsnæðisúrræðum að sögn lögmanns Landssamtakanna Þroskahjálp. Á annað hundrað manns eru á biðlista og enginn veit hvenær röðin kemur að þeim. Innlent 11.6.2023 17:50
Smáhýsin í Laugardal standa enn auð Smáhýsi fyrir heimilislaust fólk í Laugardal, sem reist voru í lok febrúar standa enn auð. Ragnar Erling Hannesson, sem hefur beitt sér í málefnum heimilislausra segir ástandið í málaflokknum grafalvarlegt. Innlent 11.6.2023 17:30
Hjólaslys í Laugardal Lögregla og sjúkrabílar voru kölluð til í Laugardal nú fyrir stundu vegna einstaklings sem fallið hafði af rafmagnshlaupahjóli. Innlent 11.6.2023 16:46
Þurfa að fara í „veiðiferð“ til að nálgast metan „Við erum að kljást við það lúxusvandamál að það hefur aldrei verið selt meira af metan heldur en um þessar mundir. Eftirspurnin hefur vaxið umfram það sem við höfum getað framleitt,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson upplýsingafulltrúi Sorpu. Innlent 11.6.2023 16:18
Fundu erfðabreytu sem hefur áhrif á tónhæð raddar Rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar á upptökum af tali um þrettán þúsund Íslendinga varpar ljósi á erfðabreytu sem hefur áhrif á hversu djúp eða há röddin er. Erfðabreytan er sú fyrsta sem vitað er að hafi áhrif á tónhæð að sögn vísindamanns. Innlent 11.6.2023 15:00
„Við erum öll öðruvísi en allir hinir“ Kristján Hreinsson, skáld, segir taka þurfi umræðuna um minnihlutahópa á „æðra stig“. Við séum öll öðruvísi og „enginn geti í krafti einhverrar hneigðar eða einhverjar upplifunar, ákveðið að hann sé sérstakri en einhver annar“. Innlent 11.6.2023 14:38
Þorgerður Katrín bregst við gagnrýni: „Þessi leiðu mistök breyta hins vegar ekki stóru myndinni“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar viðurkennir að hafa ranglega sagt formann Samtaka fyrirtækja í landbúnaði og aðstoðarforstjóra Kaupfélags Skagfirðinga vera heiðursræðismann Rússa á Íslandi. Um er að ræða forstöðumann kjötafurðarstöðvar Kaupfélags Skagfirðinga sem samhliða störfum sínum fyrir Kaupfélagið er heiðursræðismaður Rússlands hér á landi. Innlent 11.6.2023 14:01
Kallar eftir samstöðu og býst við lækkun verðbólgu Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir þörf á heildarlausn við verðbólguvandanum. Forsvarsmenn mismunandi fylkinga þurfi að setjast niður og setja saman stefnu fyrir framtíðina. Hann segist einnig telja að verðbólga muni lækka hraðar en spár geri ráð fyrir. Innlent 11.6.2023 12:24
Hádegisfréttir Bylgjunnar Rafiðnaðarsamband Íslands reiknar fastlega með því að til verkfalla komi í lok mánaðar að sögn varaformanns sambandsins, þar sem ekki hefur tekist að semja um kjarasamning við Landsnet. Verkfall muni hafa áhrif á raforkudreifingu á landinu öllu. Innlent 11.6.2023 11:37
Nýbyggingar, endurvinnsla og seðlabankastjóri á Sprengisandi Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er á dagskrá Bylgjunnar frá klukkan tíu til klukkan tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem efst eru á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 11.6.2023 09:30