Handbolti

Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úr­slit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukur Þrastarson er í stóru hlutverki hjá Kielce.
Haukur Þrastarson er í stóru hlutverki hjá Kielce. getty/Tom Weller

Haukur Þrastarson átti góðan leik þegar Kielce tryggði sér sæti í úrslitum um pólska meistaratitilinn í dag.

Kielce sigraði þá Chrobry Glogów örugglega. Haukur og félagar voru níu mörkum yfir í hálfleik, 17-8, og unnu á endanum tólf marka sigur, 34-22.

Kielce vann einvígið, 2-0. Í hinu undanúrslitaeinvíginu leiðir Wisla Plock, 1-0, gegn Gór­nik Za­brze.

Haukur hefur spilað vel fyrir Kielce að undanförnu og virðist vera kominn á fulla ferð eftir meiðslin erfiðu sem héldu honum svo lengi frá keppni.

Kielce hefur orðið pólskur meistari síðustu ellefu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×