Enski boltinn

New­cast­le setti met þegar það skaut Sheffi­eld niður um deild

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sheffield United leikur í Championship-deildinni, ensku B-deildinni, á næstu leiktíð.
Sheffield United leikur í Championship-deildinni, ensku B-deildinni, á næstu leiktíð. Robbie Jay Barratt/Getty Images

Sheffield United er fallið úr ensku úrvalsdeild karla í fótbolta. Þetta var endanlega staðfest eftir að Sheffield tapaði 5-1 fyrir Newcastle United í dag en á sama tíma settu Norðanmenn met.

Þegar liðin mættust í Sheffield fór Newcastle með 8-0 sigur af hólmi. Þó leik liðanna í dag hafi lokið með 5-1 sigri Newcastle þá komust gestirnir í Sheffield óvænt yfir í upphafi leiks.

Anel Ahmedhodžić með markið eftir sendingu Gustavo Hamer. Það tók heimamenn smá stund að ná áttum en um miðbik fyrri hálfleiks jafnaði Alexander Isak metin eftir sendingu Jacob Murphy. Staðan 1-1 í hálfleik en á rúmum tíu mínútna kafla í síðari hálfleik gerðu heimamenn út um leikinn.

Hinn brasilíski Bruno Guimarães skoraði á 54. mínútu eftir sendingu Anthony Gordon og skömmu síðar fékk Newcastle vítaspyrnu sem Isak skoraði úr. Þá varð Ben Osborn fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 65. mínútu og staðan orðin 4-1.

Varamennirnir Callum Wilson og Harvey Barnes teiknuðu svo upp síðasta mark leiksins þegar sá fyrrnefndi skoraði eftir sendingu frá Barnes. Lokatölur 5-1 og aldrei hefur lið skorað jafn mörg mörk gegn einum og sama andstæðingnum á einu tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Alls skoraði Newcastle 13 mörk í tveimur deildarleikjum gegn Sheffield.

Newcastle er nú með 53 stig í 7. sæti, stigi á eftir Manchester United þegar bæði lið eiga fjóra leiki eftir. Sheffield situr á botninum með 16 stig að loknum 35 leikjum og er fallið.

Önnur úrslit í leikjum ensku úrvalsdeildarinnar sem hófust klukkan 14.00 voru þau að Fulham og Crystal Palace gerðu 1-1 jafntefli, Rodrigo Muniz kom heimamönnum yfir en varamaðurinn Jeffrey Schlupp jafnaði fyrir Palace. 

Þá unnu Úlfarnir 2-1 sigur á Luton Town, Hwang Hee-Chan og Toti með mörkin fyrir Úlfana á meðan Carlton Morris skoraði fyrir Luton.


Tengdar fréttir

Enn ein vonbrigðin fyrir United

Manchester United og Burnley skildu jöfn, 1-1, á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í dag. Jóhann Berg Guðmundsson lék síðustu átján mínúturnar fyrir Burnley.

Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins

Titilvonir Liverpool eru orðnar afar veikar eftir 2-2 jafntefli við West Ham United í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool var undir í hálfleik, kom til baka en Michail Antonio skoraði jöfnunarmark West Ham þegar þrettán mínútur voru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×