Fótbolti

Dortmund fær meira fyrir að tapa en vinna úr­slita­leikinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jude Bellingham fagnar hér sigri Real Madrid á Bayern München í seinni undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni.
Jude Bellingham fagnar hér sigri Real Madrid á Bayern München í seinni undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni. Getty/Alberto Gardin

Borussia Dortmund er í mjög sérstakri stöðu fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fótbolta sem fer fram á Wembley leikvanginum í byrjun næsta mánaðar.

Sú staða er komin upp að þýska félagið hagnast hreinlega á því peningalega að tapa leiknum.

Dortmund mætir Real Madrid í úrslitaleiknum en með spænska liðinu spilar Jude Bellingham. Real keypti Bellingham frá Dortmund síðasta sumar.

Þýska blaðið Bild slær því upp að í kaupsamningnum hafi verið bónusgreiðsla ef að Bellingham vinnur Meistaradeildina á sínu fyrsta tímabili.

Liðið sem vinnur Meistaradeildina fær tuttugu milljónir evra í verðlaunafé frá UEFA en liðið sem tapar fær fimmtán milljónir.

Það er aftur á móti 25 milljóna evru bónusgreiðsla í boði frá Real Madrid ef spænska liðið vinnur Meistaradeildina á fyrsta tímabili enska landsliðsmannsins.

Dortmund fengi því fjörutíu milljónir evra ef liðið tapar leiknum á Wembley 1. júní næstkomandi en aðeins tuttugu milljónir evra ef liðið vinnur leikinn.

Fjörutíu milljónir evra eru sex milljarðar í íslenskum krónum og Dortmund fær því þremur milljörðum meira ef liðið tapar á Wembley.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×