Innlent

Rað­rúðu­brjóturinn enn á ferð í mið­borginni

Jakob Bjarnar skrifar
Artush Adam Zarni segir málið með öllu óskiljanlegt. Hann hefur enga trú á lögreglunni, ætlar sér að leysa málið sjálfur og fara með raðrúðubrjótinn á lögreglustöðina.
Artush Adam Zarni segir málið með öllu óskiljanlegt. Hann hefur enga trú á lögreglunni, ætlar sér að leysa málið sjálfur og fara með raðrúðubrjótinn á lögreglustöðina. vísir/vilhelm

Artush Adam Zarni, eigandi Just Kebab, ætlar sér að finna þann sem braut rúðurnar á stað hans Just Kebab og fara með hann á lögreglustöðina.

Í nótt voru rúður brotnar á staðnum Just Kebab. Artush var mæðulegur þegar Vísir ræddi við hann nú undir hádegi en þá voru menn í óða önn að setja nýtt rúðugler í gluggana. Skemmdarvargurinn var iðinn við kolann og braut allar rúður staðarins.

„Já, hann var aftur á ferð í nótt,“ segir Artush. „Sami maðurinn geri ég ráð fyrir en hann hefur komið tvisvar.“

Vísir greindi frá því og þá virtist ljóst að um væri að ræða sama aðila og hefur verið að brjóta rúður á matvöruverslun á Skólavörðustíg, ummerkin voru þau sömu.

Artush segist ekki vita hver þetta er. Hann segist hafa verið á Íslandi í sjö ár og án vandræða, hann hafi ekki átt í útistöðum við neinn.

„Ég er að nú að leita að þessum manni alls staðar. Og ég mun finna hann. Og fara með hann á lögreglustöðina.“

Arthush segir að lögreglan hafi verið kölluð til, hún hafi tekið skýrslu en svo ekki aðhafst neitt í málinu.

Eigendur Just Kebab stóðu í ströngu í morgun, við að skipta út ónýtum rúðum í gluggum staðar síns.vísir/vilhelm

„Ég veit ekki hvað er í gangi,“ segir Artush og gefur lögreglunni ekki háa einkunn. „Ég væri ekki að hringja í lögguna ef ég vissi hver þetta væri. Ég myndi bara fara með manninn sjálfur á lögreglustöðina. Ég mun finna hann.“

Artush segir þetta mál óskiljanlegt, mjög skrítið að hann skuli þurfa að eiga við raðrúðubrjót eða serial „window crasher“ en þessi er staðan í dag.


Tengdar fréttir

Spell­virkinn lætur til skarar skríða á ný

Í nótt var maður á ferð sem lét sig ekki muna um að brjóta rúður í versluninni Korakmarket sem er við Skólavörðustíg 21. Ætla má að þarna sé sami maðurinn á ferð og fyrir fáeinum dögum en þá voru nánast allar rúður brotnar í versluninni.

Rúður skotnar í spað í verslun inn­flytj­enda

Aðfararnótt mánudags gekk grímuklæddur maður inn Njálsgötuna, upp að Skólavörðustíg 21 og stillti sér upp fyrir framan nýlenduvöruverslunina Korakmarket. Þar skaut hann með reglubundnum hætti gat á hverja einustu rúðu. Þrjátíu að tölu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×